Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 80
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 44TÍMAMÓT Ástkær systir okkar, EDDA INGIMUNDARDÓTTIR COLLINS SCHRA lést í Fairborn, Ohio, þann 27. desember 2013. Útför hennar fór fram þann 31. desember. Gunnar Ingimundarson Ásmundur Ingimundarson Grétar Ingimundarson Stefanía Ingimundardóttir Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR ÁRNASONAR Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilisins Höfða fyrir einstaka umönnun. Sigríður Sigurjónsdóttir Guðrún Þórðardóttir Ingileifur S. Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR JÓNSDÓTTIR frá Sólheimum, Flyðrugranda 6, Reykjavík, sem lést 12. janúar sl., verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 21. janúar kl. 15. Valgerður J. Gunnarsdóttir Ingi Kr. Stefánsson Ragnar Gunnarsson Sigríður H. Gunnarsdóttir Eyþór Árnason Ingibjörg Á. Gunnarsdóttir Sigvaldi Thordarson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGI EIRÍKUR PÁLSSON Vatnsnesvegi 29, Keflavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 7. janúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir auðsýnda samúð og hlýhug. Hrönn Kristinsdóttir Kristrún Bragadóttir Guðmundur Karl Tómasson Pálmi Bragason Hanneke Post barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BÁRA ELÍASDÓTTIR Goðabraut 3, Dalvík, lést þriðjudaginn 14. janúar á Dvalarheimilinu Dalbæ. Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 25. janúar klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Dalbæ. Sture Karlsson Vignir Árnason Petra Árnason Þorsteinn Árnason María Sigurjónsdóttir Elías Árnason Svandís Hannesdóttir Friðrika Árnadóttir Sigurður Bjarnason og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR DEL’ETOILE (Didda Eiríks) Jóruseli 4, Reykjavík, áður í Keflavík og Florida, USA, kvaddi þennan heim í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 10. janúar. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 29. janúar kl. 13.00. Maryann Guðrún Phillips Linda Stefanía DeL’Etoile Jón Gunnar Edvardsson Janet Morgan DeL´Etoile Ronald Sigurður DeL’Etoile Heather DeL´Etoile ömmubörn, langömmubörn og systkini. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁKA STEFÁNSSONAR skipstjóra. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sigurlaug Magnúsdóttir Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR LILLÝJAR ÁGÚSTSDÓTTUR Sérstaklega viljum við þakka starfsfólkinu á Einihlíð, Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri, fyrir alúð og góða umönnun. Gunnar Einarsson Guðrún S. Kristjánsdóttir Hjörleifur Einarsson Sigurbjörg Sigurðardóttir Þóra Einarsdóttir Rúnar Garðarsson barnabörn og barnabarnabörn. „Mér líður þokkalega. Ég er aðeins far- inn að velta fyrir mér dauðanum en ekk- ert alvarlega. Það er samt frekar glatað að eldast. Ég reyni bara að anda djúpt enda ekkert við þessu að gera,“ segir söngvarinn Páll Rósinkrans. Þessi hæfi- leikaríki tónlistarmaður er fertugur í dag og býður nánustu fjölskyldu í kaffi. „Ég býð fjölskyldunni í kökusneið og mjólkurglas í dag. Ég pantaði einhverja tertu hjá Tertugalleríi Myllunnar. Ég treysti mér ekki til að baka hana sjálfur því ég hreinlega nenni ekki að standa í því.“ Páll státar af farsælum ferli í tón- listinni og sló fyrst í gegn með hljóm- sveitinni Jet Black Joe sem gaf út þrjár plötur á árunum 1992 til 1994. Síðari ár hefur hann haft nóg að gera á sólóferli sínum. „Ég vinn við það að syngja og er búinn að gera það eingöngu í fimmtán ár. Maður er eins og jólasveinninn – mætir bara þegar maður er pantaður. Ætli það sé ekki plata í bígerð hjá mér og kannsi „Best of“ líka. Það er alltaf nóg af hug- myndum en spurning hvað gerist. Stund- um er best að gera ekki neitt,“ segir Páll. „Ég kannski fer aðeins yfir lífshlaupið á þessum tímamótum, horfi til baka og hvað ég ætla að gera næst. Það er ýmis- legt sem stendur upp úr en ég rifja það ekki allt saman upp hér. Það eru margar sögur og margt sem hefur gerst á ferlin- um. Það er efni í heila bók,“ segir Páll en efast um að sú bók muni líta dagsins ljós. „Ég er nú lítið hrifinn af því að nota einhverjar sögur á gráu svæði og skand- ala til að selja bækur og eintök. Það er ekki alveg minn stíll.“ Páll tók sig til og breytti um lífsstíl fyrir þremur árum og er mjög dugleg- ur að hreyfa sig. „Ég er í nokkuð góðu formi núna. Ég gerði samning við sjálfan mig um að byrja að mæta og vera flottur. Enda er maður ekkert að yngjast eins og þetta viðtal gefur til kynna.“ liljakatrin@frettabladid.is „Það er glatað að eldast“ Söngvarinn Páll Rósinkrans fagnar fertugsafmæli í dag. Hann breytti um lífsstíl fyrir þrem ur árum og hefur aldrei verið í betra formi. Hann býður fj ölskyldu í kökuveislu í dag. Það er ýmislegt sem stendur upp úr en ég rifja það ekki allt saman upp hér. Það eru margar sögur og margt sem hefur gerst á ferlinum. Það er efni í heila bók. Í FLOTTU FORMI Páll hefur verið duglegur í ræktinni síðustu þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MERKISATBURÐIR 1886 Hokkí eins og það þekkist í dag verður til með tilkomu Hokkísambandsins á Englandi. 1944 Metropolitan-óperuhúsið í New York heldur djasstónleika í fyrsta sinn. Flytjendur eru Louis Armstrong, Benny Goodman, Lionel Hampton, Artie Shaw, Roy Eldridge og Jack Teagarden. 1967 Albert DeSalvo, betur þekktur sem kyrkjarinn í Boston, er dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir ýmsa glæpi. 1978 Mannréttindadómstóll Evrópu sakfellir Bretland fyrir illa með- ferð á föngum á Norður-Írlandi en telur landið saklaust af pyntingum. 2002 Borgarastyrjöldinni í Sierra Leone lýkur. 2003 Fjórir deyja og rúmlega fimm hundruð heimili eyðileggjast í skógareldum í Canberra í Ástralíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.