Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 6
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
EFNAHAGSMÁL Verðbólga í janúar
fer úr 4,2% í 3,5% gangi spár grein-
ingardeilda Íslandsbanka og Arion
banka eftir. Hjöðnunin nemur 0,7
prósentustigum.
Greiningardeild Arion segir þó
erfitt að spá um endanleg áhrif
skatta- og gjaldskrárhækkana
þar sem stjórnvöld hafi heitið því
að lækka eldsneytisgjöld og eftir
atvikum önnur gjöld til að styðja
við forsendur kjarasamninga.
Greiningardeildir beggja banka
segja sterkari krónu og tiltölu-
lega hóflega hækkun launa í ný-
afstöðnum kjarasamningum hafa
góð áhrif á verðbólguþróunina.
„Þannig munu verslanir væntan-
lega kaupa inn nýjan varning á
hagstæðara gengi eftir útsölur en
útsöluvarningurinn var upphaflega
keyptur inn á,“ segir í Morgunkorni
Greiningar. Útsölulok hafi því ekki
jafn sterk áhrif og áður.
Í spá Íslandsbanka er gert ráð
fyrir að verðbólga fari í 2,6% í
febrúar, en taki svo að stíga að nýju
og verði 3,1% í árslok. - óká
Vísitala neysluverðs lækkar í janúar gangi spá greiningardeilda eftir:
Verðbólguhorfur hafa batnað
TÖK Á TILVERUNNI –
námskeið við athyglisbresti og kvíða
Átt þú erfitt með að einbeita þér?
• Ertu gleyminn og utan v ði þig?
• Eru á hyggjur að plaga þ ig?
• Átt þú erfitt með að halda utan um allt sem
þú þ arft að gera?
• Gætir þú gert svo m iklu b etur?
Á þessu námskeiði lærir fólk aðferðir til að bæta
einbeitingu, minni og skipulag, draga úr frestun
og öðrum afleiðingum athyglisbrests. Jafnframt
lærir fólk leiðir til að minnka áhyggjur og kvíða með
aðfe ðr um hugrænnar atferlismeðferðar. Stjórnendur
námskeiðs eru Sigríður D. Benediktsdóttir og
Sóley D. Davíðsdóttir sálfræðingar.
PIPA
R
\
TBW
A
S SÍA
1414
018
4
01811
Sunnudaginn 19. janúar
Bláfjöll
Sjáumst í Bláfjöllum
á sunnudaginn!
Snjór um víða veröld – World Snow Day
Frítt í fjallið fyrir 16 ára og yngri
Tilboð á skíðaleigu
Frí skíða- og brettakennsla fyrir alla kl. 14–16
DJ Emmsjé Gauti og Steinar kl. 14–16
Heitt kakó eins og fólk getur í sig látið
Styrkir
til náms í hafrétti
Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og fræðslustofnun á sviði
hafréttar við Háskóla Íslands og er meginmarkmið stofnunarinnar að
treysta þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar. Að stofnuninni standa
Háskóli Íslands, utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið.
Hafréttarstofnun auglýsir hér með eftirfarandi styrki til náms í hafrétti til
umsóknar:
1. Styrk til framhaldsnáms í hafrétti á háskólaárinu 2014 - 2015.
2. Styrki til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í hafrétti
29. júní - 18. júlí 2014.
Umsóknir berist Hafréttarstofnun Íslands, utanríkisráðuneytinu,
Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík fyrir 3. febrúar nk.
Nánari upplýsingar veitir Tómas H. Heiðar, forstöðumaður
stofnunarinnar, í síma 545 9900.
Í BÚÐARFERÐ Útsölulok hafa ekki jafn-
sterk áhrif til aukinnar verðbólgu og oft
áður. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
REYKJAVÍK Formaður Barnavistunar,
félags dagforeldra, segir félags-
menn ekki kannast við að dag-
foreldrar segi eldri börnum upp
til að koma yngri börnum að. Sam-
félagssíða félagsins hefur logað
vegna málsins. Fulltrúi meirihlut-
ans í skóla- og
frístundaráði
Reykjavíkur
segir hagsmuni
foreldra og dag-
foreldra ekki allt-
af fara saman.
„Ég hef ekki
heyrt um þetta
í mínu félagi og
held að þessi til-
felli séu fá. Það logar allt á Face-
book-síðunni okkar þar sem margir
fullyrða að þeir starfi ekki svona.
Maður setur ekki barn út í kuld-
ann,“ segir Guðný Ólafsdóttir, dag-
móðir og formaður Barnavistunar.
Guðný segir dagforeldra í mið-
borginni síður lenda í vandræðum
heldur en dagforeldrar í úthverfum
þegar börn komast inn á leikskóla.
„Ég starfa í hverfi 105 þar sem eftir-
spurnin eftir dagforeldrum er mjög
mikil og lendi því aldrei í svona
vandræðum,“ útskýrir hún.
Guðný segir dagforeldra í Reykja-
vík hafa staðið í ströngu við að fá
borgina til þess að virða mánaðar
uppsagnafrest og að það sé nú gert í
flestum tilfellum. Dagforeldrar hafi
mánuð til þess að fylla laus pláss.
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi
og talsmaður meirihlutans í Reykja-
vík í málefnum dagforeldra, segir
leitt að heyra að dagforeldrar finni
sig knúna til að segja börnum upp.
Eva segir framlag borgarinnar
með börnum vera óháð aldri þeirra,
en eftir því sem þau eldist aukist
vissulega líkurnar á því að þau fái
leikskólapláss. „Eftir hrun hafa
nærri öll börn fengið pláss á haust-
in, en eftir því sem fjármagn hefur
leyft höfum við boðið börnum fædd-
um í janúar og febrúar pláss utan
skilgreinds tíma,“ segir Eva, en
hagsmunir foreldra og dagforeldra
fari ekki alltaf saman í þessu tilliti.
Eva segir skóla- og frístundasvið
vera í miklu sambandi við dagfor-
eldra til þess að miðla upplýsingum
um leikskólapláss.
Sigrún Edda Lövdal, formaður
Barnsins, félags dagforeldra í
Reykjavík, sagði við Fréttablaðið í
vikunni að dagforeldrar vilji fá leyfi
borgarinnar fyrir því að hafa tíma-
bundið fleiri börn en leyfilegt er til
að koma í veg fyrir uppsagnir. Eva
segir borgina fara eftir reglugerð í
þeim efnum. „Ég skil vel að einhver
hugsi að það sé í lagi að hafa tíma-
bundið aukabarn, en við viljum að
foreldrar geti treyst því að farið sé
að reglum.“ eva@frettabladid.is
Kannast ekki við að
börnum sé sagt upp
Formaður Barnavistunar, félags dagforeldra, segist ekki kannast við að félagsmenn
segi upp eldri börnum til að koma yngri að. Borgarfulltrúi segir leitt að dagfor-
eldrar sjái sig knúna til að segja börnum upp. Ekki stendur til að breyta reglum.
Það logar allt á
Facebook-síðunni okkar
þar sem margir fullyrða
að þeir starfi ekki svona.
Maður setur ekki barn út
í kuldann.
Guðný Ólafsdóttir, formaður Barna-
vistunar, félags dagforeldra
DAGFORELDRAR
Formaður Barna-
vistunar segist
ekki kannast við
uppsagnir hjá
dagforeldrum.
Myndin tengist
fréttinni ekki
beint.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
EVA
EINARSDÓTTIR
STJÓRNMÁL „Þetta er sérkenni-
leg stjórnsýsla,“ segir Arna Lára
Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-lista
á Ísafirði, um styrkveitingu sem
Ísafjarðarbær fékk frá forsætis-
ráðuneytinu.
Um er að ræða tveggja milljóna
króna styrk til viðgerðar á Svarta
pakkhúsinu á Flateyri og tíu
milljóna króna styrk til gerðar
nákvæmra þrívíddarlíkana af
bæjar kjörnum þorpanna fimm
sem tilheyra Ísafjarðarbæ.
Arna Lára bókaði á fundi
bæjarráðs að þetta sætti undrun,
sérstaklega þar sem ekki var
formlega óskað eftir þessum fjár-
veitingum. Eðlilegra hefði verið að
hafa samráð við heimamenn um
forgangsröðun verkefna.
„Við erum þakklát og þetta eru
góð verkefni. Hins vegar er búið
að skera niður fjárveitingu til ann-
arra verkefna hér á Vestfjörðum
sem sammælst hefur verið um að
séu afar mikilvæg og gæluverk-
efni ráðherra eru fjármögnuð í
staðinn,“ sagði Arna. - eh
Bæjarfulltrúi Í-lista á Ísafirði gagnrýnir styrkveitingar frá forsætisráðherra:
Eigin gæluverkefni í forgangi
STYRKVEITING Arna Lára Jónsdóttir
telur að samráð við bæjarfulltrúa hefði
verið eðlilegra.