Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 57
| ATVINNA |
Lágafellsskóli Mosfellsbæ
Viljum ráða kennara til byrjendakennslu í íslensku og stærðfræði
í tímabundið verkefni út skólaárið. Um er að ræða 40 -50%
starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Leyfisbréf grunnskólakennara
• Sérkennaramenntun æskileg
• Áhugi á starfi með börnum
• Frumkvæði og sjálfstæði
• Góð færni í samskiptum
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga
og KÍ.
Upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í
síma 5259200. Umsóknir með upplýsingum um menntun,
starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið
johannam@lagafellsskoli.is.
Vanur kranamaður óskast
Eykt ehf óskar eftir öflugum kranamanni með réttindi
til að stjórna byggingakrana til starfa sem fyrst vegna
byggingar hótels við Höfðatorg. Mikil vinna framundan.
Sækja skal um starfið á heimasíðu Eyktar. eykt@eykt.is
undir „Atvinna“ fyrir 24. janúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Pétur Einarsson
alla virka daga milli kl 09:00 -16:00 í síma 822-4437
Eykt ehf. Stórhöfða 34-40. 110 Reykjavík S: 595-4400
kopavogur.is
Kópavogsbær
Lögfræðingur í
lögfræðideild
Kópavogsbæjar
Lögfræðideild annast ráðgjöf við öll svið bæjar-
félagsins, stofnanir þess og nefndir. Undir deildina
heyra m.a. tryggingamál, leyfisveitingar, hvers
kyns lögfræðiráðgjöf, löginnheimta og málarekstur
fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum. Undir
deildina heyrir einnig skjalavarsla bæjarfélagsins.
Bæjarlögmaður er yfirmaður deildarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Lögfræðileg ráðgjöf á starfssviði sveitarfélagsins
Gerð álitsgerða og samninga
Afgreiðsla stjórnsýsluerinda
Umsagnir til nefnda
Afgreiðsla kærumála
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar og hæfniskröfur
Kandídats eða meistarapróf í lögfræði (hafi
lokið 5 ára laganámi)
Þekking á starfsemi sveitarfélaga
Staðgóð þekking á opinberri stjórnsýslu
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti
Lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2014.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa
Hallsdóttir eða Hulda Kristín Sigmarsdóttir í
starfsmannadeild Kópavogsbæjar í síma 570-
1500 eða í tölvupósti, harpahalls@kopavogur.is
eða huldasigmars@kopavogur.is.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja
um starfið.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Blaðamenn
– 365 miðlar óska eftir Blaðamönnum
Viltu slást í hóp öflugustu blaðamanna landsins?
Í boði er áhugaverð vinna á skemmtilegum vinnustað í stöðugri sókn.
Umsækjendur þurfa:
- að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi og brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar
- að hafa gott vald á íslenskri tungu
- að vera færir í mannlegum samskiptum
- að geta unnið undir álagi
Reynsla af fréttamennsku er æskileg en ekki skilyrði.
Áhugasamir sæki um starfið ekki síðar en 3. febrúar n.k. Eingöngu er tekið við umsóknum á vef 365 miðla – www.365midlar.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Mikael Torfason, aðalritstjóri, á netfanginu: mikael@365.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í
íslensku atvinnulífi
www.hagvangur.is
LAUGARDAGUR 18. janúar 2014 17