Fréttablaðið - 18.01.2014, Side 57

Fréttablaðið - 18.01.2014, Side 57
| ATVINNA | Lágafellsskóli Mosfellsbæ Viljum ráða kennara til byrjendakennslu í íslensku og stærðfræði í tímabundið verkefni út skólaárið. Um er að ræða 40 -50% starfshlutfall. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Menntunar- og hæfnikröfur: • Leyfisbréf grunnskólakennara • Sérkennaramenntun æskileg • Áhugi á starfi með börnum • Frumkvæði og sjálfstæði • Góð færni í samskiptum Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Upplýsingar um starfið veitir Jóhanna Magnúsdóttir skólastjóri í síma 5259200. Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist rafrænt á netfangið johannam@lagafellsskoli.is. Vanur kranamaður óskast Eykt ehf óskar eftir öflugum kranamanni með réttindi til að stjórna byggingakrana til starfa sem fyrst vegna byggingar hótels við Höfðatorg. Mikil vinna framundan. Sækja skal um starfið á heimasíðu Eyktar. eykt@eykt.is undir „Atvinna“ fyrir 24. janúar næstkomandi. Nánari upplýsingar veitir Pétur Einarsson alla virka daga milli kl 09:00 -16:00 í síma 822-4437 Eykt ehf. Stórhöfða 34-40. 110 Reykjavík S: 595-4400 kopavogur.is Kópavogsbær Lögfræðingur í lögfræðideild Kópavogsbæjar Lögfræðideild annast ráðgjöf við öll svið bæjar- félagsins, stofnanir þess og nefndir. Undir deildina heyra m.a. tryggingamál, leyfisveitingar, hvers kyns lögfræðiráðgjöf, löginnheimta og málarekstur fyrir úrskurðarnefndum og dómstólum. Undir deildina heyrir einnig skjalavarsla bæjarfélagsins. Bæjarlögmaður er yfirmaður deildarinnar. Helstu verkefni og ábyrgð Lögfræðileg ráðgjöf á starfssviði sveitarfélagsins Gerð álitsgerða og samninga Afgreiðsla stjórnsýsluerinda Umsagnir til nefnda Afgreiðsla kærumála Önnur tilfallandi verkefni Menntunar og hæfniskröfur Kandídats eða meistarapróf í lögfræði (hafi lokið 5 ára laganámi) Þekking á starfsemi sveitarfélaga Staðgóð þekking á opinberri stjórnsýslu Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti Lipurð í mannlegum samskiptum Frekari upplýsingar Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2014. Nánari upplýsingar um starfið veitir Harpa Hallsdóttir eða Hulda Kristín Sigmarsdóttir í starfsmannadeild Kópavogsbæjar í síma 570- 1500 eða í tölvupósti, harpahalls@kopavogur.is eða huldasigmars@kopavogur.is. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið. Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is Blaðamenn – 365 miðlar óska eftir Blaðamönnum Viltu slást í hóp öflugustu blaðamanna landsins? Í boði er áhugaverð vinna á skemmtilegum vinnustað í stöðugri sókn. Umsækjendur þurfa: - að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi og brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar - að hafa gott vald á íslenskri tungu - að vera færir í mannlegum samskiptum - að geta unnið undir álagi Reynsla af fréttamennsku er æskileg en ekki skilyrði. Áhugasamir sæki um starfið ekki síðar en 3. febrúar n.k. Eingöngu er tekið við umsóknum á vef 365 miðla – www.365midlar.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Mikael Torfason, aðalritstjóri, á netfanginu: mikael@365.is SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi www.hagvangur.is LAUGARDAGUR 18. janúar 2014 17
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.