Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 58
STYRKIR ÚR
HÚSVERNDARSJÓÐI
REYKJAVIKURBORGAR
Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar auglýsir
eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og
endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem
hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða
menningarsögulegum ástæðum.
Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í
umsókn:
1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum.
2. Tímaáætlun.
3. Kostnaðaráætlun.
4. Ljósmyndir af húsinu eins og það er nú
og eldri ljósmyndir ef þær eru til.
Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu
í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá
kl. 16-18 og í síma 411 6333 á sama tíma.
Umsóknum skal skila á „Mínar síður“ á
heimasíðu Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar má sjá á: http://reykjavik.is/
thjonusta/husverndarsjodur-reykjavikurborgar
Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi í
þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14.
Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 15. febrúar
2014.
Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað
verður 2014 og verða ekki nýttir á árinu falla niður.
kopavogur.is
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Kópavogi.
Glaðheimar – austurhluti. Breytt deiliskipulag.
Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir austur hluta
Glaðheima. Skipulagssvæðið, sem er 3,6 ha að flatarmáli, nær til þess hluta Glaðheima sem liggur austan fyrirhugaðs
Glaðheimavegar milli Bæjarlindar og Lindarvegar og að norðurmörkum lóða við Askalind 2a, 2, 4 og 6. Á svæðinu er
nú Áhaldahús bæjarins, reiðskemma Gusts og hluti gamla skeiðvallarins, mannvirki sem verða fjarlægð. Í gildandi
deiliskipulagi frá 2009 er gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á svæðinu þ.e. verslun, þjónustu og íbúðarhúsnæði
um 38.500 m2 að samanlögðum gólffleti, þar af um 13.000 m2 í verslun og þjónustu. Í umræddri tillögu að breyttu
deiliskipulagi fyrir svæðið er fallið frá hugmyndum um að hluti þess verði fyrir verslun og þjónustu og þess í stað
verði eingöngu byggðar íbúðir á svæðinu alls um 300 talsins. Í miðju svæðisins er gert ráð fyrir leikskóla og
útivistarsvæði (bæjargarði). Aðkoma verður frá Lindarvegi og fyrirhuguðum Glaðheimavegi.
Byggingarmagn á svæðinu breytist óverulega frá gildandi deiliskipulagi, en miðað er við um 38.000 m2 í
íbúðarhúsnæði og um 9.000 m2 í niðurgröfnum bílageymslum eða samtals um 47.000 m2. Nýtingarhlutfall svæðisins
er því áætlað um 1,0 og um 1,3 ef bílgeymslur neðanjarðar eru meðtaldar. Gert er ráð fyrir 1,7 bílastæðum á íbúð að
meðaltali. Í tillögunni er fyrirkomulagi byggingarreita breytt miðað við gildandi deiliskipulag, hæð fyrirhugaðra húsa
breytist svo og fyrirkomulag bílastæða á lóðum. Áætlað er að á svæðinu komi til með að búa liðlega 700 íbúar.
Uppdráttur í mkv 1:1000 ásamt greinargerð, skipulagsskilmálum og skýringarmyndum dags. 6. desember 2013.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Ofangreind tillaga verður til sýnis á skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00
mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 20. janúar 2014. Einnig má sjá tillöguna á hei-
masíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna.
Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs, Fannborg 6,
200 Kópavogi eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 3. mars 2014.
Save the Children á Íslandi
Mótaðu með
okkur framtíðina
ISS Ísland óskar eftir að ráða öflugan sölufulltrúa
í fullt starf á sölusviði fyrirtækisins.
ISS á Íslandi er öflugt alþjóðlegt þjónustufyrirtæki
sem býður fjölbreytta þjónustu. Við erum með
öflugt ræstingasvið, erum að framleiða hátt í 2000
máltíðir á hverjum degi á veitingasviði ISS fyrir
ýmis fyrirtæki og stofnanir og erum með
fasteignaumsjónardeild og ýmsa
sérhæfða þjónustu.
Við leitum eftir hressum áhugasömum
einstaklingum til að taka þátt í að móta
framtíðina með okkur.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsókarfrestur er til 31. janúar 2014.
Umsóknir sendist á sölu- og
markaðsstjóra, arni@iss.is
Spennandi starf fagaðila á heimili fatlaðs fólks.
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis auglýsir til umsóknar tvær stöður fagaðila á heimili.
Um er að ræða störf sem verða hluti af þverfaglegu teymi sem mun stýra og útfæra
endurskipulagningu á innra starfi í einu af búsetuúrræðum Þjónustumiðstöðvarinnar.
Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Hvatning, ráðgjöf og stuðningur við íbúa
• Vinna að gerð einstaklings- og þjónustuáætlana og eftirfylgd þeirra
• Stuðningur og ráðgjöf við starfsmenn
• Virkt notendasamráð og samvinna við aðstandendur og aðra hagsmunaaðila
• Þróun og þátttaka í þverfaglegu starfi og faglegri uppbyggingu
Menntunar og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði félags-, mennta- og/eða heilbrigðisvísinda s.s.
þroskaþjálfunar, félagsráðgjafar, sálfræði eða iðjuþjálfunar.
• Þekking og/eða reynsla í starfi með fötluðu fólki
• Reynsla af vinnu með einstaklingum með einhverfu æskileg
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs
• Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og valdeflingu
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Þórdís Guðmundsdóttir í síma 411-1500 eða með því að senda
fyrirspurnir á thordis.linda.gudmundsdottir@reykjavik.is
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf
Umsóknarfrestur er til 2. febrúar nk.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Velferðarsvið
| ATVINNA | 18. janúar 2014 LAUGARDAGUR18