Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 58

Fréttablaðið - 18.01.2014, Page 58
STYRKIR ÚR HÚSVERNDARSJÓÐI REYKJAVIKURBORGAR Húsverndarsjóður Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsóknum um styrki til viðgerðar og endurgerðar á byggingum í Reykjavík sem hafa sérstakt varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum. Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í umsókn: 1. Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum. 2. Tímaáætlun. 3. Kostnaðaráætlun. 4. Ljósmyndir af húsinu eins og það er nú og eldri ljósmyndir ef þær eru til. Frekari upplýsingar eru veittar í Húsverndarstofu í Árbæjarsafni sem opin er á miðvikudögum frá kl. 16-18 og í síma 411 6333 á sama tíma. Umsóknum skal skila á „Mínar síður“ á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar má sjá á: http://reykjavik.is/ thjonusta/husverndarsjodur-reykjavikurborgar Umsóknareyðublöð liggja einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar í Borgartúni 12-14. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 15. febrúar 2014. Vakin er athygli á því að styrkir sem úthlutað verður 2014 og verða ekki nýttir á árinu falla niður. kopavogur.is Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Kópavogi. Glaðheimar – austurhluti. Breytt deiliskipulag. Í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breyttu deiliskipulagi fyrir austur hluta Glaðheima. Skipulagssvæðið, sem er 3,6 ha að flatarmáli, nær til þess hluta Glaðheima sem liggur austan fyrirhugaðs Glaðheimavegar milli Bæjarlindar og Lindarvegar og að norðurmörkum lóða við Askalind 2a, 2, 4 og 6. Á svæðinu er nú Áhaldahús bæjarins, reiðskemma Gusts og hluti gamla skeiðvallarins, mannvirki sem verða fjarlægð. Í gildandi deiliskipulagi frá 2009 er gert ráð fyrir blandaðri landnotkun á svæðinu þ.e. verslun, þjónustu og íbúðarhúsnæði um 38.500 m2 að samanlögðum gólffleti, þar af um 13.000 m2 í verslun og þjónustu. Í umræddri tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir svæðið er fallið frá hugmyndum um að hluti þess verði fyrir verslun og þjónustu og þess í stað verði eingöngu byggðar íbúðir á svæðinu alls um 300 talsins. Í miðju svæðisins er gert ráð fyrir leikskóla og útivistarsvæði (bæjargarði). Aðkoma verður frá Lindarvegi og fyrirhuguðum Glaðheimavegi. Byggingarmagn á svæðinu breytist óverulega frá gildandi deiliskipulagi, en miðað er við um 38.000 m2 í íbúðarhúsnæði og um 9.000 m2 í niðurgröfnum bílageymslum eða samtals um 47.000 m2. Nýtingarhlutfall svæðisins er því áætlað um 1,0 og um 1,3 ef bílgeymslur neðanjarðar eru meðtaldar. Gert er ráð fyrir 1,7 bílastæðum á íbúð að meðaltali. Í tillögunni er fyrirkomulagi byggingarreita breytt miðað við gildandi deiliskipulag, hæð fyrirhugaðra húsa breytist svo og fyrirkomulag bílastæða á lóðum. Áætlað er að á svæðinu komi til með að búa liðlega 700 íbúar. Uppdráttur í mkv 1:1000 ásamt greinargerð, skipulagsskilmálum og skýringarmyndum dags. 6. desember 2013. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Ofangreind tillaga verður til sýnis á skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 20. janúar 2014. Einnig má sjá tillöguna á hei- masíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs, Fannborg 6, 200 Kópavogi eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 3. mars 2014. Save the Children á Íslandi Mótaðu með okkur framtíðina ISS Ísland óskar eftir að ráða öflugan sölufulltrúa í fullt starf á sölusviði fyrirtækisins. ISS á Íslandi er öflugt alþjóðlegt þjónustufyrirtæki sem býður fjölbreytta þjónustu. Við erum með öflugt ræstingasvið, erum að framleiða hátt í 2000 máltíðir á hverjum degi á veitingasviði ISS fyrir ýmis fyrirtæki og stofnanir og erum með fasteignaumsjónardeild og ýmsa sérhæfða þjónustu. Við leitum eftir hressum áhugasömum einstaklingum til að taka þátt í að móta framtíðina með okkur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsókarfrestur er til 31. janúar 2014. Umsóknir sendist á sölu- og markaðsstjóra, arni@iss.is Spennandi starf fagaðila á heimili fatlaðs fólks. Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis auglýsir til umsóknar tvær stöður fagaðila á heimili. Um er að ræða störf sem verða hluti af þverfaglegu teymi sem mun stýra og útfæra endurskipulagningu á innra starfi í einu af búsetuúrræðum Þjónustumiðstöðvarinnar. Um er að ræða fullt starf í vaktavinnu. Helstu verkefni og ábyrgð: • Hvatning, ráðgjöf og stuðningur við íbúa • Vinna að gerð einstaklings- og þjónustuáætlana og eftirfylgd þeirra • Stuðningur og ráðgjöf við starfsmenn • Virkt notendasamráð og samvinna við aðstandendur og aðra hagsmunaaðila • Þróun og þátttaka í þverfaglegu starfi og faglegri uppbyggingu Menntunar og hæfnikröfur: • Háskólamenntun á sviði félags-, mennta- og/eða heilbrigðisvísinda s.s. þroskaþjálfunar, félagsráðgjafar, sálfræði eða iðjuþjálfunar. • Þekking og/eða reynsla í starfi með fötluðu fólki • Reynsla af vinnu með einstaklingum með einhverfu æskileg • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og valdeflingu • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar um störfin veitir Þórdís Guðmundsdóttir í síma 411-1500 eða með því að senda fyrirspurnir á thordis.linda.gudmundsdottir@reykjavik.is Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að sækja um störfin á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf Umsóknarfrestur er til 2. febrúar nk. Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Velferðarsvið | ATVINNA | 18. janúar 2014 LAUGARDAGUR18
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.