Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 34
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 34
Hver vill ekki láta gögnin sín dvelja á
öruggum og aðgengilegum stað? Ef
þú ert að vinna með hópi fólks sem
dreift er víðs vegar um heiminn er
forritið einkar hentugt. Það skiptir
engu máli hvar þú ert staddur í
heiminum, þú getur alltaf komist
inn í smáforritið, að því gefnu að
nettenging sé fyrir hendi.
Uppfært Fyrir skömmu var smáfor-
ritið Box uppfært verulega og er nú
ein áhugaverðasta rafræna gagna-
geymslan sem til er. Box er ásamt
Dropbox eitt vinsælasta gagna-
geymsluforrit sem til er. Í nýjustu
uppfærslunni er boðið upp á fimmtíu
gígabæta gagnageymslu frítt, sem er
veruleg uppfærsla. Það er eitt stærsta
gagnageymsluplássið sem hægt er að
nálgast án endurgjalds. Box gerir þér
kleift að geyma alls kyns gögn eins
og skjöl, tónlist og í raun hvað sem er
og er öll uppsetning og allt skipulag
mjög fágað og snyrtilegt.
Möguleikar Þá er hægt að skoða öll
gögn í forritinu á einfaldan og snyrti-
legan máta þannig að ekki er þörf á
að hala niður ákveðnum gögnum án
gaumgæfilegrar forskoðunar.
Sem stendur eru notendur Box um
20 milljónir manna en einnig nota
um 200 þúsund fyrirtæki forritið í
starfi sínu.
Hentugt Hægt er að sækja smáfor-
ritið fyrir iPhone, iPad og iPod touch.
Einnig virkar það fyrir Android og
Windows.
1 Hvað halda margir um þig sem er alls ekki rétt? Að ég sé Nilli.
2 Hvað kæmi fólki sem kynntist þér mest á óvart? Ég á mér rosalega praktíska hlið. Mér finnst alveg geggjað að nostra við einhver
Excel-skjöl. Eftirfylgni Excel-skjala áætlana.
Ekki jafn góð.
3 Hvað kemur út á þér tárunum? Ég er við-kvæmur snemma á morgnana. Mynd af krökkum sem söfnuðu 3.500 krónum með
tombólu fyrir Rauða krossinn getur dugað til.
4 Hvað gerir þig pirraðan? Að kaupa í matinn, skafa bílinn, mæta á fundi, að þurfa að pissa, svara tölvupósti, bíða eftir fólki, bíða
eftir mat, of kaldar sturtur, sírennsli í klósettum,
þegar maður er blautur á fótunum, skammdegið,
kuldinn, vindurinn, útrunnin matvæli, umferðin
og þá helst dónaskapur í umferðinni. Þetta virkar
eins og ég sé alltaf pirraður en ég tek fram að
þetta er algjörlega tæmandi listi. Ég er í raun
mjög skapgóður og dagfarsprúður náungi.
5 Hvað er fyndnast í heimi? Segjum bara Mið-Íslandsuppistandið. Lítillæti er svo mikið anno 2008-2011.
6 Er líf á öðrum hnöttum? Mér finnst það líklegt. Hef ekki miklar áhyggjur samt. Ég er „team“ Homo sapiens. Við erum
langflottust.
7 Hvert er fallegasta hljóð sem þú hefur heyrt? Windows 95 startup-„soundið“. Ég var svo spenntur þegar ég fékk tölvu að ég
endurræsti hana 120 sinnum á dag til að heyra
þetta hljóð. Hún bræddi úr sér á innan við þremur
vikum.
8 Hvað gerirðu þegar allir aðrir eru sofnaðir? Stari á Gordon Ramsey-þætti í iPadinum. Ég sofna alltaf svangur eins og börnin hans
Bjarts í Sumarhúsum.
9 Hvaða frægu persónu ertu skotinn í? Ég er óður í þessar helstu. Ég er sérstaklega ánægður með hvað Bandaríkin eru góð að
pródúsera heitar píur sem heita Jennifer. Fyrst
voru það Jennifer Aniston og Jennifer Lopez.
Jennifer Caprati var flott í tennisnum. Svo kom
Jennifer Connelly sterk inn áður en hún byrjaði
með Jason Priestley. Svo mætti auðvitað nefna
Jennifer Garner, Jennifer Jason Leigh og auðvitað
Jennifer Love Hewitt, sem var alveg með þetta á
tímabili. En nú er það Jennifer Lawrence með sitt
„girl next door“-útlit sem er algjörlega tekin við
og heldur manni við efnið.
10 Ef þú mættir taka eina bók, eina plötu og eina bíómynd með þér á eyðieyjuna, hvað yrði fyrir valinu? Alltaf kemur nú
þessi spurning. En ætli ég myndi ekki segja fjórði
árgangurinn af Eimreiðinni, Í fylgd með fullorðn-
um með Bjartmari og Persona eftir Bergmann.
Það er hæfileg dýpt í henni en „dass“ af erótík
líka, svona þar sem maður er fastur á eyðieyju.
11 Hver er fyrsta minningin þín? Standar með öskubökkum á göngunum í Kringlunni þegar
hún var nýopnuð. Að minnsta kosti
eftirminnilegt. Hvað var fólk að spá?
12 Hvað verðurðu að gera eftir fimm ár? Taka úr vél, setja í vél, útrétta, skafa bílinn,
bíða eftir fólki, bíða eftir mat, gera
skattaskýrsluna, redda ryksugum.
Þetta tekur yfirleitt mesta tímann.
Vonandi fær maður einhverjar lím-
ónur þess á milli.
13 Ricky Gervais eða Richard Pryor? Báðir góðir. En Pryor var meistari í
uppistandi. Algjör frumkvöðull.
14 Hver var æskuhetjan þín? Michael J. Fox. Ég horfði örugglega 55 sinnum á
myndina Doc Hollywood. Hún er
arfaslök.
15 Horfirðu á EM í handbolta? Alveg límdur. Bara áðan öskraði ég leikleysa í röð sem
mér fannst ekki ganga nógu hratt.
Ég er sérstak-
lega ánægður með
hvað Bandaríkin
eru góð að pródús-
era heitar píur sem
heita Jennifer.
YFIRHEYRSLAN JÓHANN ALFREÐ KRISTINSSON, GRÍNISTI Í MIÐ-ÍSLANDI
Geggjað að nostra við Excel
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/VILH
ELM
APP VIKUNNAR BOX
Löður er með
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
Skýringar App fyrir Apple-tæki App fyrir Android-tæki App fyrir Windows
Eitt af því allra nýjasta á
árinu 2014 verður að lita
hárið ljóst. Sumir geta
verið svo djarfir að lita
hárið nánast hvítt en aðrir
lýsa aðeins dökka hárið.
Stjörnurnar vestan hafs
hafa ekki farið varhluta af
þessari tískubólu og hafa
fjölmargar stjörnur tekið
stakkaskiptum og skipt úr
dökkum lokkum yfir í ljósa
upp á síðkastið.
Ekki skemmir fyrir að
ljósu lokkarnir geta lýst
upp hversdagsleikann í
vetrarmyrkrinu.
HVERNIG VÆRI AÐ PRÓFA AÐ LITA HÁRIÐ LJÓST Á ÞESSU ÁRI?
BEYONCE KNOWLES ASHLEY GREENE KIM KARDASHIAN CIARA