Fréttablaðið - 27.02.2014, Side 8
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
EVRÓPUMÁL Eftir að Vinstri græn
lögðu í fyrrakvöld fram þings-
ályktunartillögu sína um fram-
hald aðildarviðræðnanna við ESB
liggja þrjár tillögur fyrir Alþingi
um sama efni, sem nálgast það þó
hver á sinn hátt.
Þar að auki eru ýmsar aðrar
hugmyndir á lofti og einnig er oft
vísað til kosningaloforða Sjálf-
stæðisflokksins og samstarfssátt-
málans milli stjórnarflokkanna.
Skýrsla Hagfræðistofnunar
um stöðu viðræðnanna og tillag-
an um viðræðuslit sem utanríkis-
ráðherra lagði í framhaldinu fram
í síðustu viku hleypti málinu svo
upp og í kjölfarið komu fram til-
lögur frá stjórnarandstöðunni.
Meginlínurnar snúast annars
vegar um hvort viðræðum verði
slitið, eins og stjórnarflokkarn-
ir vilja, eða hvort hún verði látin
liggja óhreyfð um óákveðinn
tíma og hins vegar um hvort og
hvenær þjóðin eigi að fá að segja
sína skoðun á málunum í þjóðar-
atkvæðagreiðslu og að hverju
verði þar spurt.
Slit eða bið?
Stjórnarflokkarnir hyggjast slíta
viðræðum og hljóðar þingsálykt-
unartillaga þeirra upp á það.
Það sem stjórnarandstaðan
leggur áherslu á er að umsókn-
in verði ekki dregin til baka þar
sem það mundi lengja til muna
endurupptökuferlið þegar/ef póli-
tískur vilji væri til staðar. Þess í
stað verði fordæmi Svisslendinga
fylgt og umsóknin látin liggja inni
hjá ESB.
Verði ferlið hafið á ný þurfi
ekki að bíða samþykkis allra
aðildarríkjanna. Til samanburðar
leið rúmt ár frá því að Ísland lagði
inn aðildarumsókn sína í júní árið
2009 þar til að aðildarviðræðurn-
ar hófust.
Aðkoma þjóðarinnar
Skiptar skoðanir eru líka um
aðkomu þjóðarinnar að ákvörðun-
inni. Sjálfstæðisflokkurinn hét því
í aðdraganda alþingiskosninga að
framhald viðræðnanna yrði borið
undir þjóðina á kjörtímabilinu, en
í stjórnarsáttmálanum var ekkert
látið uppi um tímasetningar, held-
ur aðeins að ekki yrði haldið áfram
án þjóðaratkvæðagreiðslu. Tillag-
an um viðræðuslit er á sama veg.
Tvær línur eru hins vegar um
málið innan stjórnarandstöðunnar.
Annars vegar vilja Vinstri græn
kjósa fyrir lok kjörtímabilsins og
hins vegar vilja Samfylking, Björt
framtíð og Píratar láta kjósa um
málið samhliða sveitarstjórnar-
kosningunum í vor.
thorgils@frettabladid.is
Aðkoma þjóðarinnar í brennidepli
Þrjár meginlínur eru á þingi um framhald aðildarviðræðnanna við ESB og enn fleiri eru í umræðunni. Í megindráttum snýst málið annars
vegar um hvort draga eigi umsóknina til baka eða setja hana í bið og hins vegar um hver aðkoma almennings verði að framhaldinu.
Á AUSTURVELLI Fjölmenn mótmæli hafa farið fram á Austurvelli síðustu daga þar
sem aðalkrafan er að þjóðin fái að tjá hug sinn í þjóðaratkvæðagreislu um framhald
ESB-viðræðnanna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
➜ Kosningaloforð
Sjálfstæðis-
flokksins
Ekki verði gengið í
ESB. Hagsmunum
Íslands sé betur
borgið utan sam-
bandsins, en
„kjós endur ákveði
í þjóðaratkvæða-
greiðslu á kjör-
tímabilinu hvort
aðildarviðræðum
skuli haldið áfram“.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
CLIO DÍSIL
3,4 L/100 KM*
ÞÚ TANKAR SJALDNAR Á RENAULT
FRÍTT Í STÆÐI Á
MIÐBORGARSVÆÐINU
RENAULT CLIO – VERÐ FRÁ 2.390.000 KR.
Renault Clio er einn vinsælasti bílIinn á Íslandi. Þegar fallegt útlit, ríkulegur staðalbúnaður, úrval
sparneytinna bensín- og dísilvéla, hagstætt verð og einstök ný „Dual Clutch“ sjálfskipting smellur
saman er ástæðan augljós. Komdu og reynsluaktu nýjum Renault Clio.
www.renault.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.bilahusid.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
13
10
➜ Stjórnarsáttmáli
Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks
Gert verði hlé á aðildarvið-
ræðum Íslands við Evrópu-
sambandið og úttekt gerð á
stöðu viðræðnanna og þróun
mála innan sambandsins. „Ekki
verður haldið lengra í aðildar-
viðræðum við Evrópusambandið
nema að undangenginni þjóðar-
atkvæðagreiðslu,“ en ekkert
kemur þar fram um tímasetn-
ingu eða hvort boðað verði til
slíkrar atkvæðagreiðslu.
➜ „Svissneska leiðin“
Umsóknin verði sett
á bið um óákveðinn
tíma þar til pólitískar
aðstæður breytast, að
fyrirmynd Svisslendinga.
Hún verði þó ekki
dregin formlega til baka,
sem þýðir að Ísland
þurfi ekki að endur-
nýja samþykki allra 28
aðildarríkja ESB til að
öðlast formlega stöðu
sem umsóknarríki.
➜ Fundarályktun
Sjálfstæðra
Evrópumanna
Ekki verði tekin ákvörðun
í málinu fyrr en Alþjóða-
málastofnun hafi gefið út
skýrslu sína. „Telji menn
að því búnu rétt að flytja
tillögu til þingsályktunar
um að slíta viðræðum við
Evrópusambandið fyrir
fullt og allt verði gildistaka
hennar bundin samþykki
þjóðarinnar í allsherjar-
atkvæðagreiðslu.“
➜ Þings-
ályktunar-
tillaga Vinstri
grænna
Formlegt hlé
verði gert á
aðildarviðræðum
og þeim ekki
haldið áfram
nema að undan-
genginni þjóðar-
atkvæðagreiðslu
sem skuli efnt
til fyrir lok kjör-
tímabilsins.
➜ Þingsályktunartillaga
Pírata, Samfylkingar
og Bjartrar framtíðar
Ráðgefandi þjóðar-
atkvæðagreiðsla um
hvort halda skuli áfram
aðildarviðræðum fari fram
samhliða sveitarstjórnar-
kosningum hinn 31. maí
2014. Þar svari kjósendur
spurningunni „Vilt þú að
stjórnvöld haldi áfram
aðildarviðræðum Íslands
við Evrópusambandið?“
játandi eða neitandi.
➜ Þings ályktunar-
tillaga utanríkis-
ráðherra
Umsókn Íslands um
aðild að Evrópusam-
bandinu verði dregin
til baka og ekki verði
sótt um aðild á nýjan
leik án þess að fyrst
fari fram þjóðar-
atkvæðagreiðsla um
hvort íslenska þjóðin
stefni að aðild að
Evrópusambandinu.