Fréttablaðið - 27.02.2014, Page 12
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 12
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vill
að leynd verði aflétt af niðurstöð-
um PISA-könnunarinnar.
Kjartan segir niðurstöðurnar á
margan hátt merkilegar og að þær
eigi ekki að vera einkamál kerfis-
karlanna. Foreldrar og aðrir geti
einnig dregið af þeim margvísleg-
an lærdóm.
Í tillögu sem Kjartan lagði
fram fyrir hönd sjálfstæðis-
manna á fundi skóla- og frí-
stundaráðs í síðustu viku, en var
ekki afgreidd, segir meðal ann-
ars:
„Sundurgreindar upplýsingar
um árangur hvers skóla í les-
skilningi, náttúrufræðilæsi og
stærðfræðilæsi, verði sendar
viðkomandi skólastjórnendum,
skólaráði og stjórn foreldrafélags
í því skyni að hvetja til upplýstr-
ar umræðu um kennsluhætti og
námsárangur.“
Ásgeir Beinteinsson, skóla-
stjóri Háteigsskóla, er þessu
ósammála.
„Ég hef látið í ljós þá skoðun
mína í bréfi til yfirvalda. Við
vitum að börn í ákveðnum skól-
um, þar sem félagsleg staða for-
eldra er verri en annars staðar,
munu alltaf standa verr,“ segir
Ásgeir. „Kerfiskarlarnir þurfa
að vita það og beita sér í umbót-
um fyrir þessa ákveðnu skóla.
Það væri sorglegt að birta slíkan
samanburð.“
Ásgeir bendir á að unnt eigi að
vera að finna leiðir til að birta
opinberlega mat á einstökum
skólum miðað við þær vænting-
ar sem hægt er að gera til þeirra.
„Öðruvísi samanburður þjónar
engum tilgangi.“
Að sögn Ásgeirs eru til saman-
burðarupplýsingar um skólana,
sem segi heilmikið um gæði
þeirra, á vef skóla- og frístunda-
sviðs. - ibs
Tillaga sjálfstæðismanna í skóla- og frístundaráði:
Leynd verði aflétt af
niðurstöðum PISA
„Ég verð að viðurkenna að ég er
orðin langþreytt á aðgerðaleysinu
og endalausu hjali um að börnunum
líði vel. Ég veit ekki betur en að það
sé þverpólitísk samstaða í lögum
um að skólinn tryggi að öll börn
séu með lágmarksfærni og þekk-
ingu. Allar undanfarnar greining-
ar benda til að svo sé ekki.“
Þetta segir Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir, fulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins í borgarstjórn, í kjölfar fundar
skóla- og frístundaráðs í síðustu
viku.
Fjallað var um niðurstöður PISA-
könnunarinnar á fundinum. Lítill
munur var á grunnskólum í Reykja-
vík í mælingum PISA 2009 og 2012.
Í bókun meirihlutans um niður-
stöðurnar segir meðal annars að
líðan og lýðheilsa barna í reykvísk-
um skólum hafi batnað jafnt og þétt
síðastliðinn áratug. Tekið er fram að
menntun og uppeldi barna sé lang-
hlaup og að PISA taki ekki til helstu
styrkleika íslenskra skóla sem er
áhersla á list- og verkgreinar og þar
með skapandi hugsun.
Þorbjörg Helga segir að taka
verði alvarlega niðurstöður um að
árangur sé ekki viðunandi.
„Taka þarf læsi föstum tökum
og setja mælanleg markmið þann-
ig að engir nemendur séu í þeirri
stöðu 15 ára að geta ekki lesið sér
til gagns. Jafnframt þarf að veita
afburðanemendum meiri þjónustu.
Gera þarf mun betur og einkum
fyrir ákveðna grunnskóla borgar-
innar. Það eru mikil vonbrigði að
svar meirihlutans við niðurstöðun-
um sé að setja enn einn starfshópinn
af stað. Allar greiningar og þarfir
liggja fyrir nú þegar.“
Ásgeir Beinteinsson, skólastjóri
Háteigsskóla, sem er í starfshópn-
um sem á að finna leiðir til að bæta
námsárangur, segist í raun sam-
mála málflutningi bæði meiri- og
minnihlutans.
„Skólinn er stundum talaður
niður. Það má ekki gleyma áherslu
á verk- og listgreinar. Ég fékk heim-
sókn í minn skóla frá skólastjór-
nendum í Evrópu sem fannst mennt-
unin svo fjölbreytt að þeir höfðu á
orði að sumir þyrftu ekki að fara í
framhaldsnám þar sem þeir væru
með svo mikla færni á mörgum
sviðum. Um leið og PISA segir að
gera þurfi betur, og það eigum við
að taka alvarlega, megum við ekki
gleyma því sem tekst vel.“
Það er mat Ásgeirs að hugsað
sé allt of skammt fram í tímann
þegar breytingar eru skipulagð-
ar. „Það er verið að hugsa þrjú til
fjögur ár fram í tímann þegar það
ætti að hugsa fimm til tíu ár fram
í tímann. Það tekur langan tíma
að breyta skóla.“
Í nýrri aðalnámskrá er lögð
meiri áhersla lögð á hæfni en
áður hefur verið gert, að því
er Ásgeir greinir frá. „Þetta er
mikil áskorun fyrir kerfið og þar
með er mikillar endurmenntunar
kennara þörf. Breyta þarf mats-
kerfinu og fara meira út í leiðsögn
með hverjum nemanda. Auðvitað
er margt af þessu í kerfinu hjá
okkur en við verðum að fá tíma
til að finna leiðina.“
Skólastjóranum finnst spennandi
tímar fram undan en hann tekur
það fram að samtal vanti á milli
yfirvalda og skólayfirvalda. „Yfir-
völd í Reykjavík hafa verið upp-
tekin af því að breyta sjálfum sér
í stað þess að hlusta á grasrótina.
Svo vantar líka samtal samfélags-
ins. Foreldrum er boðið á fyrir-
lestra en þeir koma ekki.“
Ásgeir segir skólayfirvöld í
Reykjavík einnig hafa verið upp-
tekin af því að berjast við foreldra
sem vilja fá að velja þjónustu í sér-
skólum. „Við erum í alltof mörgum
tilfellum að halda nemendum með
öðruvísi samsetta greind sem við
getum ekki sinnt. Við náum ekki
utan um þau og maður fær þess
vegna sting í hjartað á hverjum
degi.“
ibs@frettabladid.is
Þreytt á aðgerðaleysi og
hjali um vellíðan barna
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir segir að taka verði alvarlega niðurstöður úr PISA-könnun um að árangur sé ekki
viðunandi. Yfirvöld í Reykjavík þurfa að hlusta á grasrótina, segir Ásgeir Beinteinsson skólastjóri.
Niðurstöður greiningar Efna-
hags- og framfarastofnunarinn-
ar, OECD, á niðurstöðum PISA-
könnunarinnar 2012 sýna tengsl
á milli árangurs nemenda og
starfs foreldra. Tengslin eru
mismunandi milli landa.
Börn menntamanna standa
sig að meðaltali best í stærð-
fræði. Undantekning er þó þar
á í Kólumbíu, Indónesíu, Ítalíu,
Mexíkó, Perú og Svíþjóð en
þar ná börn stjórnenda, eins
og framkvæmdastjóra og for-
stjóra, bestum árangri.
Munurinn á árangri barna
menntamanna og annarra nem-
enda er meiri í stærðfræði en í
lestri.
Greining OECD sýnir að í
Bandaríkjunum og Bretlandi,
þar sem menntamenn eru meðal
þeirra hæst launuðu í heimi, er
árangur barna lækna og lög-
fræðinga í stærðfræði lakari en
barna ræstingafólks í Sjanghæ
og Singapúr.
- ibs
OECD um PISA-könnun:
Störf foreldra
breyta árangri
barna í námi
Í SJANGHÆ Börn ræstingafólks í
Sjanghæ standa sig betur í stærðfræði
samkvæmt PISA-könnuninni en börn
lækna og lögfræðinga í Bandaríkjunum
og Bretlandi. NORDICPHOTOS/AFP
Í RÉTTARHOLTSSKÓLA Í nýrri aðalnámskrá er lögð meiri áhersla á hæfni en áður
hefur verið gert. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Það eru
mikil von-
brigði að svar
meirihlutans
við niðurstöð-
unum sé að
setja enn einn
starfshópinn
af stað. Allar greiningar
og þarfir liggja fyrir nú
þegar.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Við
vitum að
börn í
ákveðnum
skólum, þar
sem félags-
leg staða
foreldra er verri en annars
staðar, munu alltaf standa
verr.
Ásgeir Beinteinsson
skólastjóri Háteigsskóla.
UMHVERFISMÆLAR
Súrefnismælar • hitamælar • pH mælar o.m.fl
Veit á vandaða lausn
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
F
A
S
TU
S
_H
_0
5.
01
.1
4