Fréttablaðið - 27.02.2014, Síða 17
FIMMTUDAGUR 27. febrúar 2014 | FRÉTTIR | 17
UTANRÍKISMÁL Utanríkismála-
nefnd Alþingis mælir með því, í
nýútgefnu nefndaráliti, að þings-
ályktunartillaga um stuðning við
sjálfsákvörðunarrétt íbúa Vest-
ur-Sahara verði samþykkt.
Í henni felst bæði staðfesting
á fyrri afstöðu Íslands að sjálfs-
ákvörðunarréttur íbúa Vestur-
Sahara verði virtur og hvatning
til utanríkisráðherra um að beita
sér með virkum hætti á alþjóða-
vettvangi fyrir þeirri stefnu.
Vestur-Sahara var innlimað af
Marokkó fyrir rúmum 30 árum.
Þó hafa vestræn ríki, og þar með
talið Ísland, hvorki viðurkennt
sjálfstæði Vestur-Sahara né inn-
limun Marokkó. - þj
Álit utanríkismálanefndar:
Ráðherra styðji
Vestur-Sahara
KL. 13.00 SETNING
Hvernig gerum við iðnnámið
samkeppnishæft við bók
námið og hvaða áhrif hefur
stytting framhaldsskólans
á iðnnám?
Illugi Gunnarsson, mennta-og
menningarmálaráðherra
KL. 13.30 UM STYTTINGU IÐN- OG VERKNÁMS
Hvernig munu skólar
bregðast við styttingar-
áformum? Hvaða áhrif hefur
stytting náms til stúdents
prófs á lengd iðnnáms?
Iðnnám og framhalds-
skólapróf.
Ingi Bogi Bogason,
aðstoðarskólameistari
Borgarholtsskóla
Fyrirspurnir og viðbrögð
KL. 14.00 VINNUSTAÐANÁM / STARFSÞJÁLFUN
Er starfsþjálfun á
vinnustað nauðsynleg?
Hvernig er vinnustaðanámi
háttað í Hollandi og
Finnlandi.
Ólafur Ástgeirsson, sviðsstjóri
bygginga- og mannvirkjasviðs
IÐUNNAR Fræðsluseturs
Er það samfélagskylda fyrir
tækjanna að taka nema í
starfsþjálfun?
Dagmar Viðarsdóttir,
starfsmannastjóri ÍAV
Skóli sem vinnustaður,
vinnustaður sem skóli.
Baldur Gíslason,
skólameistari Tækniskólans,
Fyrirspurnir og viðbrögð
KL. 15.00 FRAMHALDSMENNTUN IÐNAÐARMANNA
Er þörf á sérstökum
fagháskóla?
Hilmar Harðarson,
formaður Samiðnar
Nám við HR í framhaldi af
iðnnámi, hvernig mætum
við þörfum iðnaðarmanna
og atvinnulífsins.
Dr.Ing. Guðrún Arnbjörg
Sævarsdóttir, forseti tækni-
og verkfræðideildar hjá HR
Hvernig menntun
þarf atvinnulífið?
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
forstöðumaður mennta-
og nýsköpunarsviðs SA.
Fyrirspurnir og viðbrögð
KL. 16.15 SAMANTEKT
Dr. Elsa Eiríksdóttir
Lektor í verk- og starfsmenntun
við Menntavísindasvið HÍ
KL. 16.30 RÁÐSTEFNUSLIT
Stytting framhaldsskólans,
vinnustaðanám og fagháskóli
Ráðstefnustjóri:
Edda Jóhannesdóttir náms- og
starfsráðgjafi hjá IÐUNNI Fræðslusetri
Menntaþing SAMIÐNAR verður haldið
föstudaginn 28. febrúar 2014 á Grand Hóteli Reykjavík
FRAMTÍÐ IÐNNÁMS
Samiðn
SAMBAND IÐNFÉLAGAMENNTAÞINGIÐ ER ÖLLUM OPIÐ
ÞÝSKALAND, AP Stjórnlagadóm-
stóll Þýskalands hefur ógilt
þá reglu að flokkar í framboði
til Evrópuþingsins þurfi að fá
að minnsta kosti þrjú prósent
atkvæða til að ná þingsætum.
Þar með aukast verulega mögu-
leikar minni flokka í Þýskalandi,
svo sem Pírata og hægri þjóðern-
issinna, á því að koma fulltrúum
sínum á Evrópuþingið.
Í þingkosningum í Þýskalandi
þurfa flokkar að fá þrjú prósent
atkvæða til að komast á þjóðþing-
ið, en dómstóllinn segir þessa
reglu mismuna þýskum flokkum
þegar kosið er til Evrópuþingsins.
- gb
Dómarar í Þýskalandi:
Smærri flokkar
fá tækifæri
AUSTURRÍKI, AP Ulrike Haider-
Quercia verður í fyrsta sæti
flokks austurrískra þjóðernis-
sinna í kosningum til Evrópu-
þingsins í vor.
Flokkurinn heitir Bandalag um
framtíð Austurríkis og var stofn-
aður árið 2005 af föður hennar,
Jörg Haider, sem lést árið 2008.
Hann var um skeið í forystusveit
austurríska Frelsisflokksins og
var þekktur fyrir hægri popúl-
isma og þjóðernisdekur.
Nýi flokkurinn komst inn á
þing árið 2009, stuttu eftir lát
Haiders, en mælist með sáralítið
fylgi núna.
- gb
Dóttir Jörgs Haider:
Býður sig fram
til Evrópuþings
ÚKRAÍNA, AP Átök brutust út milli and-
stæðra fylkinga mótmælenda á Krímskaga í
Úkraínu í gær.
Meirihluti íbúanna þar hallast að nán-
ara sambandi við Rússland. Þeir studdu
því Viktor Janúkovítsj forseta og efndu til
mótmæla í gær gegn bráðabirgðaforsetan-
um, fulltrúa þeirra sem steyptu Janúkovítsj
af stóli. Aðrir íbúar Krímskaga eru hins
vegar hæstánægðir með að búa í sjálfstæðri
Úkraínu og komu saman til að lýsa yfir
stuðningi við hina nýju stjórn, sem væntan-
lega verður kynnt í dag.
Stjórnarmyndunartilraunir hafa þó geng-
ið brösuglega, þar sem engan veginn er
samhljómur meðal þeirra ólíku hópa sem
tóku þátt í mótmælunum gegn Janúkovítsj.
Upphaflega átti að kynna nýju stjórnina á
þriðjudag, en stefnt er að því að stefna hennar
og ráðherralisti liggi fyrir í dag.
Rússar hafa svo enn aukið á spennuna með
því að efna til heræfinga í vestanverðu Rúss-
landi. Þær hefjast á morgun og standa í fjóra
daga. Um 150 þúsund hermenn taka þátt í
þeim og notaðir verða 880 skriðdrekar, 90
herþotur og 80 herskip.
Með heræfingunum sýna Rússar fram á
ótvíræða getu sína til að grípa inn í, líki þeim
ekki þróun mála í Úkraínu.
- gb
Innbyrðis ágreiningur meðal andstæðinga Janúkovítsj hefur flækt stjórnarmyndun í Úkraínu:
Átök milli mótmælenda á Krímskaga
HINNA LÁTNU MINNST Á Maidan-torginu í Kænu-
garði hélt fólk á ljósmyndum af látnum ástvinum
sínum, sem höfðu tekið þátt í mótmælum þar.
NORDICPHOTOS/AFP
STJÓRNLAGADÓMARAR Þýskar kosn-
ingareglur hafa mismunað flokkum í
Evrópuþingkosningum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JÖRG HAIDER Þjóðernissinnar vonast
til þess að framboð dóttur hans auki
fylgið. NORDICPHOTOS/AFP