Fréttablaðið - 27.02.2014, Side 46
27. febrúar 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
FIMMTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
27. FEBRÚAR 2014
Tónleikar
20.00 Hljómsveitin Loji spilar á
Hlemmur Square.
20.30 Stefán Hilmarsson verður gestur
Jóns Ólafssonar í tónleikaröðinni Af
fingrum fram. Tónleikarnir fara fram í
Hofi á Akureyri. Miðaverð 3.900 krónur.
21.00 Hljómsveitin Kiss the Coyote
heldur tónleika á Loft Hostel í Banka-
stræti 7 þar sem sveitin leikur lög af
fyrstu breiðskífu sinni ásamt nýju efni.
21.00 Tónleikur heldur tónleika í Stúd-
entakjallaranum.
21.00 Vísnakvöld í tilefni af 100 ára
afmæli Ása í Bæ á Café Rosenberg.
22.00 Skúli mennski heldur tónleika
á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Ókeypis inn!
Íþróttir
17.00 Coca-Cola-bikarinn hefst í dag
í Laugardagshöll. Helgarpassi kostar
5.000 krónur.
Heimildarmyndir
18.00 Call me Kuchu sýnd í Bíó Paradís
á vegum Samtakanna ’78 og Amnesty
International. Miðaverð 1.000 krónur.
Kvikmyndir
19.30 Konfúsíusarstofnunin Norður-
ljós sýnir heimildarmyndina Frelsi og
réttlæti í stofu 101 í Odda í Háskóla
Íslands.
Bókmenntir
20.00 Norræna húsið býður til höf-
undakvölds með Herman Lindqvist
rithöfundi.
Leikrit
19.00 Með allt á hreinu í Austurbæ.
Miðaverð 2.500 krónur.
19.30 Spamalot sýnt í Þjóðleikhúsinu.
Miðaverð 5.650 krónur.
19.30 Aðalæfing á Svanir skilja ekki.
Sýnt í Þjóðleikhúsinu. Miðaverð 2.000
krónur.
#BYLGJANBYLGJAN989
HLUSTAÐU
HVAR SEM ER,
HVENÆR SEM ER
RÚNAR OG JÓI HENDA
Í NOKKRAR SORTIR
BAKARÍIÐ
ER Í LOFTINU
MILLI KL. 09:00 - 12:00LAUGARDAG
„Auðvitað kjósa einhverjir að
hverfa inn í skápinn við þessar
aðstæður, en annað fólk er búið
að ákveða að berjast og við ætlum
að bakka upp þá baráttu,“ segir
Anna Pála Sverrisdóttir, formað-
ur Samtakanna ’78, sem standa
ásamt Íslandsdeild Amnesty fyrir
sýningu á heimildarmyndinni Call
me Kuchu í Bíói Paradís í dag til
styrktar hinsegin fólki í Úganda.
Miðaverð á heimildarmynd-
ina er þúsund krónur, og upp-
hæðin rennur óskipt til grasrótar
hinsegin fólks í Úganda. „Lög-
gjöfin, sem núna hefur verið sett,
þrengir ofboðslega að þeim. Það
er verið að herða reipið utan um
hálsinn á þeim, og nógu slæmt
var ástandið fyrir. Þessi hópur
þarf auðvitað að huga að öryggi
sínu og það er alls konar kostn-
aður sem myndast við lögfræði-
lega aðstoð, öryggisaðstoð og
svo framvegis,“ segir Anna Pála.
„Samkynhneigð kona frá Úganda,
sem heitir Angel P´Ojara, kemur
og talar við sýningargesti í dag.
Hún býr hér á landi og er vinkona
baráttukonunnar Köshu Jaqueline
Nabagesera, sem Amnesty bauð
hingað til lands í fyrra. Angel
er meðlimur í baráttusamtökum
hinsegin fólks í Úganda sem við
erum í samstarfi við. Ég býst við
því að það verði mjög upplýsandi
að ræða við hana um þróun mála,“
segir Anna Pála.
Call me Kuchu verður sýnd í
Bíói Paradís í dag klukkan 18.
Hægt er að kaupa miða frá klukk-
an 17. - ue
Styrkja hinsegin fólk í Úganda
Lesbísk baráttukona frá Úganda ræðir við sýningargesti eft ir sýningu á Call me
Kuchu í Bíói Paradís í dag um aðstæður hinsegin fólks í Úganda.
Spamalot
★★★ ★★
„Ef menn mæta ekki til að leita ein-
hvers sem alls ekki er þar má njóta
kraftmikillar kabarettsýningar;
söngur, dans og skemmtan fín.“
Jakob Bjarnar Grétarsson.
ÚGANDA Sýningin á Call me Kuchu er
fyrsti liðurinn í átaki Samtakanna ’78
og Íslandsdeildar Amnesty til að safna
fyrir grasrót hinsegin fólks í Úganda.
Það verður einhver tryllingur í gangi á tónleikunum.
Við ætlum að spila lög af nýju plötunni minni, Saman-
safni. Hljómsveitin er að fara að vinna að nýrri plötu
núna á næstu dögum!
Loji Höskuldsson heldur tónleika á Hlemmur Square klukkan 20 í kvöld.
TRYLLINGUR Á HLEMMUR SQUARE
20.00 Eldklerkurinn sýndur í Tjarnar-
bíói. Miðaverð 3.500 krónur / 2.500
krónur.
20.00 Gullna hliðið sýnt í Samkomu-
húsinu á Akureyri. Miðaverð 4.400
krónur.
20.00 Óskasteinar í Borgarleikhúsinu.
Miðaverð 4.750 krónur.
Uppistand
20.00 Mið-Ísland í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Miðaverð 2.900 krónur.
Tónlist
21.00 Hits and Tits kynna Febrúar-
syngjó (karókí) á Harlem.
21.00 Útgáfufögnuður fyrir plötuna
You Sound Asleep með Einari Indra á
Bravó, Laugavegi 22. Aðgangur ókeypis.
22.00 Frumsýningarpartí á Prikinu í til-
efni af útgáfu tónlistarmyndbands við
lagið Nýju fötin keisarans með Emmsjé
Gauta.
Fyrirlestrar
12.00 Árdís Kristín Ingvarsdóttir heldur
fyrirlestur undir yfirskriftinni Þetta er
heima fyrir pabba í stofu 201 í Árna-
garði í Háskóla Íslands.
12.30 Michael Biggs heldur opinn fyrir-
lestur í myndlistardeild Listaháskóla
Íslands, að Laugarnesvegi 91. Allir eru
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
16.00 Dr. Árni Daníel Júlíusson flytur
fyrirlesturinn Naut, kindur, fólk og
önnur dýr. Um samhengi landbúnaðar í
Noregi fyrir 800 og á Íslandi til 1800, í
stofu 101 í Lögbergi í Háskóla Íslands.
16.00 Fyrirlesturinn Danska sem
móðurmál, annað mál og erlent mál
verður fluttur í stofu 101 í Odda í
Háskóla Íslands.
Myndlist
18.00 Opnun á sýningunni Heim og
heiman, samsýningu þriggja ungra lista-
kvenna úr Breiðholtinu í Gerðubergi.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is
„Ég skulda vinum mínum enda-
laust af tónleikum í barnaafmæl-
um í framtíðinni,“ segir Emmsjé
Gauti, sem frumsýnir í kvöld nýtt
tónlistarmyndband sem hann
fékk vini sína til að gera með sér.
„Síðast þegar ég gerði tónlistar-
myndband styrkti Vífilfell gerð
myndbandsins, en þetta mynd-
band styrkir ekkert fyrirtæki. Ég
nöldraði hins vegar út greiða hjá
fjölmörgum vinum mínum. Í stað-
inn geta þeir alltaf komið í heim-
sókn ef þeir eru svangir, og hver
veit nema maður gefi þeim bjór á
morgun,“ segir Emmsjé Gauti.
„Myndbandið er allt tekið upp
á einum degi af strákum sem
heita O.B.O.C. Við fórum út með
upptökuvél og löbbuðum í hringi.
Sveinn Rúnar vinur minn er í
aðalhlutverki í myndbandinu,
og það er pródúserað af Helga
Sæmundi í Úlfi úlfi. Efnið er
vægast sagt skemmtilegt. Það
þarf ekkert alltaf að eyða millj-
ónum í tónlistarmyndbönd,“ segir
Emmsjé Gauti.
Myndbandið er við lag sem heit-
ir Nýju fötin keisarans af plötunni
Þeyr, sem kom út í nóvember.
„Lagið fjallar um hluti sem fara í
taugarnar á mér.“ Frumsýningar-
partíið hefst klukkan 20 á Prik-
inu og stendur til klukkan 22.
„Þá taka plötusnúðar við sem
heita Young Ones. Þeir fyrstu
sem mæta fá glaðning á barnum.
Ég vildi hafa þetta snemma svo
fólk gæti sötrað bjór og hlustað
á plötusnúðana,“ segir Emmsjé
Gauti. - ue
Nöldraði út greiða hjá vinum
Emmsjé Gauti heldur frumsýningarpartí í kvöld út af nýju tónlistarmyndbandi.
RAPP Emmsjé Gauti gaf út plötuna Þeyr í nóvember.
365/DANÍEL RÚNARSSON