Fréttablaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 20
FÓLK|HEILSA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir EKKI MEGRUN Á MEÐGÖNGU „Meðganga er tímabil þar sem konur þurfa að gæta sérstak- lega vel að hollu og næringarríku matar æði. Þá er ekki æskilegt að vera í megrun.” Einfalda svarið er nei, í ljósi stöðu þekkingar um LKL-mataræði í dag,“ segir Ingibjörg Th. Hreiðars- dóttir, ljósmóðir með sérþekkingu á sykursýki og fjölskyldumiðaðri umönn- un í gegnum barneignaferlið. Ingibjörg segir skilgreiningar á LKL- mataræði vera margar og ólíkar. „Þrengsta skilgreining þess, þar sem allverulega er dregið úr kolvetnainn- töku, hentar ekki barnshafandi konum. Hafi kona dregið úr kolvetnainntöku, svo sem neyslu á skyndibitum, sælgæti og sætum drykkjum, en innbyrðir þá ráðlagða dagskammta af kolvetnum og skilgreinir það sem LKL-mataræði, má segja að það sé í lagi.“ Ingibjörg brýnir fyrir verðandi mæðr- um að neyta trefja og ávaxta á með- göngu, en í LKL-mataræði er algengt að neysla þeirra sé takmörkuð. „LKL-fæði inniheldur einnig mikla neyslu á fitu og salti sem ekki er hægt að mæla með á meðgöngu. Mataræðið kann að henta takmörkuðum hópi fólks sem þarf að léttast en slíkt á ekki við á meðgöngu.“ Að sögn Ingibjargar hefur LKL-matar- æði áhrif á vöxt fósturs í móðurkviði. „Sé verðandi móðir á ströngu LKL- mataræði getur það dregið úr eðlileg- um vexti barnsins vegna vannæringar móður. Á meðgöngu er mikilvægt að tryggja gott næringarástand með tilliti til þroska fósturs í móðurkviði. Fæðið getur komið í veg fyrir að móðir og barn fái næringarefni sem báðum eru mikil- væg til að viðhalda heilbrigði.“ Lágkolvetnafæði á meðgöngu getur einnig valdið óæskilegu þyngdartapi verðandi móður. „Það getur valdið orkuleysi, al- mennri vanlíðan og sleni. Ekki er hægt að tryggja að verðandi móðir fái þau næringarefni sem æskileg eru á með- göngunni til að viðhalda heilbrigði og skortur á trefjum í fæði getur valdið vandamálum í meltingarfærum, eins og hægðatregðu.“ Í nýjum norrænum ráðleggingum um næringarefni, sem voru birtar fyrir síðustu áramót, er mælt með að hlutfall kolvetna sé á bilinu 45 til 65 prósent af daglegri næringarinntöku. Sömu ráð- leggingar eiga við á meðgöngu og fyrir almenning. Lágmark ráðlagðra kolvetna í fæði hefur lítillega lækkað á undan- förnum árum. „Meðganga er tímabil þar sem konur þurfa að gæta sérstaklega vel að hollu og næringarríku mataræði. Þá er ekki æskilegt að vera í megrun,“ segir Ingi- björg. „Mikilvægt er að borða almennt fæði samkvæmt manneldismarkmiðum, borða reglulega yfir daginn og fimm til sex máltíðir í skömmtum sem eru í samræmi við næringarþörf. Hafi konur áhyggjur af þyngdarstjórnun á með- göngu geta ljósmæður, læknar og nær- ingarfræðingar veitt leiðsögn og stutt þær í baráttunni. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að dagleg hreyfing er veigamikill hluti af heilbrigðum lífsstíl og þyngdarstjórnun.“ Þegar kemur að vanfærum konum sem greinast með meðgöngusykur- sýki mælir Ingibjörg ekki heldur með ströngu LKL-mataræði. „Þunguðum konum með meðgöngu- sykursýki er ráðlagt að borða reglu- lega yfir daginn vel samsett, fjölbreytt og hollt fæði. Það er alltaf jákvætt að skerða inntöku fínunninna kolvetna og forðast sykraða drykki, kökur, sælgæti og snakk. Hjá þunguðum konum með meðgöngusykursýki eru reglulegar mál- tíðir, hollt fæði, skerðing fínunninna kol- vetna auk daglegrar hreyfingar lykillinn að farsælli útkomu móður og barns.“ ■ thordis@365.is LKL Á MEÐGÖNGU? LKL-MATARÆÐI Lágkolvetnamataræði nýtur nú mikilla vinsælda í því skyni að brenna kílóum hratt en hentar lágkolvetnamataræði barnshafandi konum? NÝTT LÍF Ingibjörg Th. Hreiðars- dóttir, hjúkrunarfræð- ingur og ljósmóðir, segir LKL-mataræði á með- göngu geta dregið úr eðlilegum vexti fósturs í móðurkviði. MYND/GVA Tvö 6 vikna námskeið hefjast í Hlíðasmára 15, þriðjudaginn 11. mars: kl. 16.30 og 17.30 Ef ekki næst full þátttaka verða námskeið felld niður eða sameinuð. Takmarkaður fjöldi Skráning og nánari upplýsingar: grindarbotn@gmail.com eða í síma 564-5442 Grindarbotn Kvennaheilsa

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.