Fréttablaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 24
4. MARS 2014 ÞRIÐJUDAGUR4 ● íslandsmót iðn- og verkgreina 2014
Einhverra hluta vegna hefur
Börkur Guðmundsson raf-
virki alltaf heillast af raf-
magni. Þar fetar hann aðrar
slóðir en margir karlmenn
í fjölskyldu hans en flestir
starfa þeir sem smiðir. „Áhug-
inn kom greinilega mjög
snemma því mamma kom að
mér fjögurra ára gömlum uppi
á eldhúsbekk þar sem ég var
búinn að finna eldgamla og
handónýta snúru og stinga
henni í samband. Ég var hrein-
lega heppinn að drepa mig
ekki en það stoppaði mig ekki.“
Þegar grunnskóla lauk hóf
Börkur tveggja ára nám í raf-
virkjun við Verkmenntaskól-
ann á Akureyri. Tíminn þar var
skemmtilegur að sögn Barkar.
„Ég var auðvitað ekki lengi að
troða mér inn í Yggdrasil, leik-
félag skólans, til að aðstoða við
ljósin. Að tveimur árum liðnum
þurfti ég að velja milli rafvirkj-
unar eða rafeindavirkjunar og
valdi rafvirkjun enda sterkari á því sviði. Vi
útskrift. Í dag starfa ég hjá Víkurrafi á Húsa
ljósauppsetningu og stjórnun.“
Börkur tók þátt í Íslandsmóti iðn- og verk
leysa tvö verkefni en teikningar vegna þeirr
uðum fyrr. Teikningum var hins vegar breyt
af stað fyrri daginn en passaði mig betur da
Hann var einnig einn fjögurra keppend
iðn- og verkgreina í Leipzig í Þýskalandi á
aðstæður en maður á að venjast heima, ti
lífsreynsla og virkilega skemmtilegt en þa
mörgum löndum á fjórum dögum.“
Aðspurður um nýliðun og horfur í grein
nokkuð góðar. „Mér sýnist þetta líta ágætl
Atvinnuhorfur eru fínar og launin góð.“
Ég vissi alltaf hvað mig langaði til að
gera, alveg frá því ég var þriggja ára
hef ég ætlað mér að verða hársnyrt-
ir. Starfið er mín ástríða,“ segir Lena
Magnúsdóttir hársnyrtimeistari á
Eplinu í Borgartúni
Lena vann keppni hársnyrtinema á
Íslandsmóti iðn- og verkgreina á síð-
asta ári og keppti í framhaldinu fyrir
hönd Íslands á heimsmeistaramóti
hársnyrta sem haldið var í Þýskalandi.
Hún segir heimsmeistaramótið
hafa verið magnaða lífsreynslu
„Þetta var mikil reynsla, bæði fyrir mig sem fagmanneskju en líka pers-
ónuleg reynsla, að stíga svona hressilega út fyrir þægindarammann,“ segir
Lena. „Keppninni fylgdi mikið stress og ég kom varla niður matarbita þessa
daga. Þarna er fjöldi manns að fylgjast með manni vinna allan tímann. Þús-
undir gesta fara þarna í gegn og dómarar fara um allt keppnissvæðið og
taka út vinnu keppenda.
Ég var úti í tíu daga en keppnin sjálf stóð í fjóra daga. Keppnisliðirnir voru
átta og keppt í tveimur liðum á dag, uppgreiðslu og litun og dömuklipp-
ingu, í sama haus þannig að liturinn þurfti að virka líka í klippingunni, gala-
greiðslu, formblæstri og klippingu, skeggklippingu, permanenti og fleiru,“
útskýrir Lena.
Hún undirbjó sig vel og var í stífri þjálfun í eitt ár og þrjá mánuði fyrir
keppnina.
„Það er allt önnur tíska í keppnisheiminum, allt aðrir litir og allt miklu ýkt-
ara. Ég hafði ekkert viðmið og þurfti að setja mig inn í hvað væri flott og
virkaði í keppni og hvað ekki.
Svo þurfti ég bara að æfa mig aftur og aftur á því sama, til að ná bæði
tækninni og þeim hraða sem þurfti sem var frekar erfitt,“ útskýrir Lena.
Í keppninni fékk hún „Best of nation“-verðlaun og lenti í 15. sæti af 29
keppendum. Hún er sátt við frammistöðu sína í keppninni enda reynsl-
unni ríkari.
„Ég lærði ótrúlega mikið af þessu og kom heim stútfull af reynslu. Eftir
keppnina hef ég verið að kenna í Tækniskólanum, sem er æðislega gaman.“
En tæki hún aftur þátt í svona stórri keppni?
„Ég sé ekki eftir orkunni og tímanum sem fór í þetta en það er meira en
nóg að gera þetta einu sinni um ævina.“
Laufey Dröfn Matthíasdóttir hafnaði í þriðja sæti á Íslandsmóti iðn- og
verkgreina árið 2012. „Fyrsta daginn áttum við að hanna matseðil og
seinni daginn ljósmyndabækling og plakat fyrir ljósmyndasýningu. Venj-
an er að sigurvegarinn fari á heimsmeistaramótið en hann má þó ekki
vera orðinn tuttugu og eins. Bæði sigurvegarinn og strákurinn sem lenti
í öðru sæti voru orðnir of gamlir sem varð til þess að ég fékk að fara,“
útskýrir Laufey.
Hún segist ekki hafa gert sér grein fyrir því þegar hún hélt utan
hversu stór viðburður þetta var. „Þetta var ekkert smá flott mót og skipu-
lagið til fyrirmyndar. Keppnin sjálf var með sams konar sniði og heima
og áttum við meðal annars að hanna bæklinga, tímaritasíður, lógó og
umbúðir.“ Laufey endaði í 22. sæti af 26 með 480 stig. Hún segist sátt við
árangurinn og að þátttakan í keppninni hafi verið góð reynsla.
Aðspurð segist Laufey upphaflega hafa ætlað í ljósmyndun. „Grunn-
námið í Tækniskólanum fyrir ljósmyndun og grafíska hönnun er það
sama og einhvers staðar á miðri leið áttaði ég mig á að mig langaði
frekar að læra grafíska hönnun.“
Í dag er Laufey að vonast til að komast á samning til að geta farið í
sveinspróf og lokið náminu. „Ég þarf að komast á samning hjá auglýs-
ingastofu eða prentsmiðju í 28 vikur til að geta farið í prófið. Í framtíð-
inni langar mig svo í ítarlegra nám í háskóla og fara þá meira út í hönn-
unina. Draumurinn er svo að vinna á flottri auglýsingastofu.“
Þorri Pétur Þorláksson leiddist út í
píparanám í gegnum fjölskylduna.
„Pabbi minn er pípari og á fyrir-
tæki sem mér var hálfvegis skófl-
að inn í. Ég var búinn að vinna í
fjölskyldufyrirtækinu í þó nokkurn
tíma áður en ég byrjaði í náminu
og vissi því sitt lítið af hverju um
pípulagnir.“
NÓG AÐ GERA
Hann segir píparastarfið vera fjöl-
breytt og skemmtilegt. „Þetta er
alls ekki eitthvert átta til fimm starf
þar sem sami hluturinn er endur-
tekinn dag eftir dag. Ég er að
vinna með ýmiss konar efnivið,
allt frá stáli til plasts. Svo legg ég
jafnt grófar lagnir í nýbygging-
ar og hengi upp fín og smágerð tæki sem þarf að láta passa upp á milli-
metra. Það er líka nóg að gera hjá mér, ég gæti þess vegna unnið allan
sólarhringinn ef ég vildi og er heppinn ef ég fæ frí um helgar.“
GEKK VEL FRAMAN AF
Þorri Pétur var einn af þeim sem fóru á heimsmeistaramót iðn- og verk-
greina, Worldskills í Leipzig 2013. „Mótið var risastórt og flott, ég á erf-
itt með að lýsa upplifuninni. Ég fékk teikningu að verkefni í hendurnar
þar sem ég átti að leggja lagnir í tilbúinn vegg. Ég fékk fimmtán klukku-
stundir sem dreift var á tvo daga til að klára verkið. Mér gekk mjög
vel fyrsta einn og hálfan daginn en þá var ég bæði andlega og líkam-
lega búinn og allt fór í klessu. Það endaði svo með því að ég náði ekki
að klára en það var aðeins einn sem kláraði verkefnið, heimamaðurinn,
Þjóðverjinn.“
IÐNNÁMIÐ SKEMMTILEGT
„Mótið úti fékk mikla athygli og greinilegt að þar er iðngreinum gert
hátt undir höfði. Ég myndi alveg vilja sjá þetta hérna heima líka enda
iðnnám skemmtilegt og fjölbreytt,“ segir Þorri Pétur.
Íslenski hópurinn í Leipzig. Keppendur, dómarar sem jafnframt eru þjálfarar keppendanna, liðstjórar og kennarar í Hársnyrtiskólanum.
Ólýsanleg upplifun
Þorri Pétur Þorláksson pípari hefur
nóg að gera og segist vera heppinn
ef hann fær frí um helgar. MYND/GVA
Er reynslunni ríkari
Laufeyju dreymir um að vinna á flottri auglýsingastofu í framtíðinni. MYND/GVA
Nóg að gera þetta
einu sinni á ævinni
Lena Magnúsdóttir hársnyrtir tók þátt
í heimsmeistarakeppni hársnyrta.
Worldskills í Leipzig
Á Worldskills er keppt í öllum hugsanlegum iðn- og verkgreinum, bæði stórum og smáum. Fjórir Íslendinga
Dröfn Matthíasdóttir, Lena Magnúsdóttir og Þorri Pétur Þorláksson, tóku þátt í heimsmeistaramóti iðngrei
Heillaður af
„Ég var h
það stop
rafvirki.