Fréttablaðið - 04.03.2014, Blaðsíða 22
4. MARS 2014 ÞRIÐJUDAGUR2 ● íslandsmót iðn- og verkgreina 2014
Vinnumarkaðurinn er stöðugt að breytast og
samkeppni harðnar ríkja á milli um þekkingu,
hæfni og nýsköpun í atvinnulífi og menntun.
Á sama tíma gerir launafólk ríkari kröfur um
tækifæri til menntunar og starfsframa.
Þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir eru sífellt að
verða stærri og mikilvægt að vinna markvisst að samfélagi
velmegunar og velferðar til framtíðar, samfélagi sem trygg-
ir öllum góð lífskjör og störf við hæfi.
Á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar hefur rík áhersla
verið lögð á að efla samstarf samtaka launafólks, atvinnu-
rekenda, fræðslustofnana og stjórnvalda við uppbyggingu
og þróun starfsmenntunar. Því starfi verður að halda áfram
og efla enn frekar.
Auka þarf vægi verk- og starfsnáms í íslensku mennta-
kerfi með áherslu á fjölbreytni í námsframboði. Af hálfu
verkalýðshreyfingarinnar hefur í því starfi verið lögð rík
áhersla á að verk- og starfsmenntun verði metin jafngild
bóknámi. Mikilvægur liður í því er að þróa nýjar námsleiðir
og tryggja að þeim sem lokið hafa starfsnámi á
framhaldsskólastigi gefist kostur á frekara námi
í beinu framhaldi með áherslu á aukna faglega
þekkingu og sérhæfingu á fagháskólastigi og að
núverandi meistaranám falli þar undir.
Samstarf fyrirtækja, samtaka launafólks
og fræðsluaðila um starfstengt nám þarf að
efla. Við skipulagningu og framkvæmd þarf að
horfa til þess að samþætta væntingar og hags-
muni nemenda og atvinnulífs, auka verklega
þáttinn í starfsmenntun almennt og samþætta
bóklega og verklega hluta námsins með virkari þátttöku
starfsgreinaráðanna.
Það er mikilvægt að hefja kynningu á mikilvægi starfs-
menntunar við upphaf skólagöngu og nemendur komist í
snertingu við þær námsgreinar er lúta að starfsnámi. Jafn-
framt að þeir fái tækifæri til að sinna verklegum viðfangs-
efnum iðn- og verkgreina. Mikilvægt er að efla kynningar
á starfsnámi sem beinist að ungu fólki sem hyggur á fram-
haldsskólanám og forráðamönnum þess, ásamt því að vekja
almenning til vitundar um fjölbreytt framboð starfsnáms og
mikilvægi þess fyrir atvinnulíf og samfélag.
ASÍ hafði frumkvæði að því að móta þá
stefnu að hlutfall Íslendinga 25-64 ára sem
ekki hafa formlega framhaldsmenntun lækki
úr 30% í 10% fyrir árið 2020. Til að þetta
geti orðið að raunveruleika á næstu 10 árum,
eða 2024, þarf skilvirkni í menntakerfinu að
aukast verulega, brotthvarf að minnka auk
þess sem gera þarf stórátak í að auka mennt-
un þeirra sem nú starfa á vinnumarkaði og
hafa aðeins lokið grunnskólanámi. Hér er um
gríðarlegt verkefni að ræða sem kallar á að á
næstu 10 árum verða 30 þúsund einstaklingar sem nú eru
á vinnumarkaði eða í atvinnuleit að útskrifast með fram-
haldsskólamenntun.
Nauðsynlegt er að samtök launafólks gæti hagsmuna
félagsmanna sinna með því að taka virkan þátt í mótun og
framkvæmd menntunar. Þá er einnig mikilvægt að Íslend-
ingar taki virkan þátt í umræðu og samstarfi um mennta-
mál á alþjóðavísu og hagnýti sér þá þekkingu og reynslu sem
þar verður til.
Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands Íslands
Íslandsmót iðn- og verkgreina fer fram
helgina 6.-8. mars í Kórnum í Kópavogi.
Tilgangur mótsins er að veita ungu
fólki í starfsnámi tækifæri til að sýna
færni sína og kunnáttu í iðn- og
verkgreinum.
Keppendur á Íslandsmóti iðn- og verk-
greina eru ýmist enn í námi eða nýútskrif-
aðir frá framhaldsskólum vítt og breitt um
landið. Þeir takast á við hagnýt og krefjandi verkefni sem
reyna á hæfni, skipulag og fagmennsku. Keppt er í yfir
20 faggreinum, en einnig fer fram sýning á margvísleg-
um iðn- og tæknistörfum.
Verkiðn, samtök um keppnir í iðn- og verk-
greinum á Íslandi, standa að Íslandsmótinu með
stuðningi mennta- og menningarmálaráðuneyt-
isins. Ástæða er til að fagna þessu þarfa fram-
taki Verkiðnar og því mikla kynningarstarfi
sem hér fer fram. 6.000 grunnskólanemendum
er boðið sérstaklega á þennan viðburð og verð-
ur hann vonandi til þess að opna augu þeirra
fyrir þeim margvíslegu tækifærum sem eru í
boði í starfsnámi á Íslandi. 25 framhaldsskólar
munu nú í fyrsta skipti kynna námsframboð sitt
á sama stað og sama tíma, bóklegt nám jafnt sem verk-
legt. Starfsfólk skólanna verður á staðnum og mun veita
upplýsingar um það nám sem er í boði í hverjum skóla og
um inntökuskilyrði.
Allt það sem gert er til að kynna starfsnám, auka sýni-
leika þess og vekja um leið áhuga grunnskólanemenda er
af hinu góða. Auk þess að sýna það sem í boði er í verk-
námi gefur mótið ungu og upprennandi starfsfólki í iðn-
og verkgreinum tækifæri til að sýna hvernig það hefur
náð góðum tökum á tækni- og verkkunnáttu. Það er full
ástæða fyrir þetta unga fólk að vera stolt af þeim góða
árangri.
Ég vil þakka Verkiðn fyrir mikilvægt framlag samtak-
anna til eflingar iðn- og verkgreinum á Íslandi og óska
keppendum og öðrum þátttakendum í Íslandsmóti iðn- og
verkgreina árið 2014 alls hins besta.
Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráðherra
Keppnisgreinar á Íslandsmóti iðn- og verkgreina eru
24 og varpa ljósi á fjölbreytta flóru.
Við hjá Samtökum iðnaðarins erum stolt og glöð yfir því
að hafa tekið þátt í að styðja Íslandsmótið frá upphafi.
Nú eru keppnisgreinar orðnar 24 sem er glæsilegt. Öll
keppni er þannig í eðli sínu að sífellt hækka þau við-
mið sem keppendur þurfa að ná til að sigra og það er
stórmerkilegt að þessi metnaður nái nú til svo margra
greina. Að auki fylgja keppninni skólakynningar allra
framhaldsskóla landsins sem einnig er frábær árangur.
Verkiðn sem stendur að mótinu eru
samtök sem stofnuð voru sérstaklega í
þeim tilgangi að skipuleggja og halda Ís-
landsmótið í verk- og iðngreinum. Það var
mikið gæfuspor að tengja mótið alþjóð-
legri keppni World Skills og glæða þann-
ig Íslandsmótið þeirri alþjóðlegu vídd
sem við þekkjum úr öllum íþróttum, vís-
indum og keppni meistara í iðngreinum
s.s. matreiðslu, hárgreiðslu og kökugerð.
Það er okkar trú að þegar ungt fólk sér
þessi stórkostlegu tækifæri til að velja sér fag og sækja
fram til fagmennsku á heimsmælikvarða efli það
hag landsins og einstaklingana sem verða for-
ystufólk í samfélaginu til framtíðar. Þess vegna
er líka svo skemmtilegt að bjóða nemendum úr
grunnskólum í þúsundatali að koma og sjá, læra
og nú í fyrsta skipti prófa sjálfir að leysa ýmis
dæmigerð viðfangsefni meistarafagmanna í
vandasamri iðn.
Kristrún Heimisdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
Öflugt iðn- og verknám
Mikilvægi verk- og starfsmenntunar
Stórkostleg tækifæri
Útgefandi: Verkiðn, Stórhöfða 31,
110 Reykjavík.
Ábyrgðarmaður: Björn Ágúst
Sigurjónsson. Netfang: bjorn@verkidn.is.
Ritstjóri: Lilja Sæmundsdóttir. Heimasíða: www.verkidn.is
Blaðið er gefið út í tilefni af Íslandsmóti iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningarinnar sem fer fram í Kórnum í Kópavogi 6.-8. mars 2014.