Fréttablaðið - 06.03.2014, Síða 2
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
HEILBRIGÐISMÁL Mörg dæmi eru
um að ljósmæður hafi orðið við
beiðni nýbakaðra mæðra sem hafa
viljað taka fylgjuna með sér heim
af fæðingardeildinni. Þetta tíðkast
þó að óheimilt sé samkvæmt reglu-
gerð að fjarlægja líkamshluta eða
vefi af spítalanum.
„Frá mínum
bæjardyrum séð
þá er ekki eðli-
legt að afhenda
líffæri og með-
h ö nd l a ut a n
stofnunarinnar,“
segir Hi ldur
Harðardóttir,
yfi rlæk nir á
kvennadeild
Landspítalans.
Hildur segir að sóttvarnasjónar-
mið vegi þar þyngst. „Það kemur
til greina að setja þetta í sérstaka
verklagsreglu, um hvernig fylgjan
er meðhöndluð,“ segir Hildur.
Undir þessi sjónarmið tekur
Haraldur Briem sóttvarnalæknir.
„Þetta hljómar ekki vel og er eitt-
hvað sem þarf að skoða nánar,“
segir Haraldur.
Samkvæmt verklagsreglum
Landspítalans og reglugerð um
meðhöndlun úrgangs eru fylgjan
og aðrir líkamshlutar sem falla til
jafnan brenndir.
Kona, sem starfar sem dúla og
vildi ekki láta nafns síns getið,
segir afar sjaldgæft að mæður
vilji taka fylgjuna heim af fæð-
ingardeildinni. „Það er alltaf gert
í samráði við starfsfólk spítalans,“
segir konan.
Hún segir ólíkar ástæður geta
verið fyrir því en sumar mæður
vilji borða fylgjuna. „Ég hef aðstoð-
að þær með að útbúa hylki með
þurrkaðri fylgju,“ segir konan.
Í þeim tilfellum er fylgjan þurrk-
uð og mulin og sett í hylki, sem
móðirin tekur síðan inn.
Hún segir það gert fyrir þær
mæður sem hugnist ekki að borða
fylgjuna en vilji samt neyta henn-
ar. Sumar borði hana þó án þurrk-
unar að sögn konunnar. Á netinu
má finna fjölda uppskrifta þar sem
fylgjan er hluti af matreiðslunni.
Konan segist ekki þiggja greiðslu
fyrir þessa þjónustu. „Þetta er ekki
hefðbundin dúluþjónusta.“ Hún
neitar því að mæðurnar óski eftir
þjónustunni vegna ráðlegginga
hennar. „Það eru til rannsóknir
sem að hafa sýnt fram á ávinning
af þessu,“ segir konan.
johanness@frettabladid.is
Smygla fylgjum út af
fæðingardeildinni
Ljósmæður á Landspítalanum heimila stundum mæðrum að taka fylgjuna með
sér heim af fæðingardeildinni. Yfirmaður fæðingardeildar og sóttvarnalæknir
segja slíkt ólöglegt. Sumar mæður leita sér aðstoðar við matreiðslu fylgjunnar.
„Dúlur eru konur sem aðstoða
barnshafandi konur og fjölskyld-
ur þeirra í, fyrir og eftir fæðingu
og veita samfellda þjónustu og
eru stuðningsaðilar,“ segir Soffía
Bæringsdóttir dúla.
„Hlutverk þeirra er ekki
klínískt og við vinnum fyrir fjöl-
skyldurnar á þeirra forsendum,“
bætir hún við.
Soffía segir að dúlur geti
meðal annars hjálpað til við
að veita jákvæðari upplifun af
fæðingum.
Soffía segir það af og frá að
matreiðsla fylgju sé hefðbundin
þjónusta dúlu.
Hvað er dúla?
FYLGJA S umir telja neyslu fylgjunnar leið a af sér heilsufarslegan ávinning.
MYND/JEREMY KEMP
HILDUR
HARÐARDÓTTIR
REYKJAVÍK Hallfríður Tryggvadóttir, ellilífeyrisþegi og fyrrverandi
handmenntakennari, segir að veggjakrotarar sem kroti á eigur fólks
geri sér líklegast ekki grein fyrir tjóninu sem þeir valda.
„Eina ráðið er að mála fljótt yfir aftur. Nú verð ég bara að vona
að þeir láti þetta vera í bili,“ segir Hallfríður, sem málaði í gær yfir
veggjakrot á vegg við Suðurgötu 18 þar sem hún býr. Hún segist ekki
vera að mála yfir veggjakrot á veggnum í fyrsta skiptið.
„Þetta eru unglingar sem gera þetta í skjóli nætur. Sennilega vegna
spennunnar,“ segir Hallfríður. - js
Veggjakrotarar gera sér ekki grein fyrir tjóni sem þeir valda:
Krota á veggi húsa í skjóli nætur
VEGGJAKROT Hallfríður Tryggvadóttir, ellilífeyrisþegi og fyrrverandi kennari, málar
yfir veggjakrot á vegg við Suðurgötu í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Bryndísi Sigrúnu
Richter voru í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær dæmdar
tvær milljónir króna í skaða-
bætur frá Seltjarnarnesbæ.
Ástæðan er sú að bænum láð-
ist að framkvæma mat á nauð-
syn þess að leggja niður stöðu
sem hún gegndi sem deildar-
stjóri launadeildar bæjarins
áður en það var gert.
Að auki hefði bærinn að mati
dómsins átt að kanna hvort
hægt væri að veita henni nýja
stöðu mannauðsstjóra áður en
hún missti vinnuna hjá bænum.
Bryndís fékk við starfslokin
greidd mánaðarlaun í tólf mán-
uði eftir að staða hennar var
lögð niður. - js
Láðist að framkvæma mat:
Fær bætur fyrir
að missa vinnu
Hildur, ertu að springa?
„Nei, en meirihlutinn mætti eyða
talsvert meira púðri í þetta mál.“
Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokks, segir borgina ekki hafa brugðist
við ítrekuðum kvörtunum íbúa undanfarinn
mánuð vegna sprenginga á Lýsisreitnum.
SPURNING DAGSINS
Samfestingur
Kr. 3.990.-
Jakkaföt
frá kr. 19.980.-
NEXT • KRINGLUNNI • SÍMI 551 3200
SAMGÖNGUR Bændasamtök
Íslands ályktuðu á nýliðnu Bún-
aðarþingi að stjórn samtakanna
hefðu viðræður við innheimtu-
aðila vanrækslugjalda sem eru
innheimt ef bifreið undirgengst
bifreiðaskoðun of seint.
Í ályktuninni segir að gjaldið
leggist of þungt á þá sem búa
langt frá skoðunarstöðvum og
vilja að þeir sem búi hvað lengst
frá næstu skoðunarstöð fái und-
anþágu frá tímamörkum sem
eru sett um álagningu gjaldsins.
Á strjálbýlustu stöðunum er
að sögn samtakanna ómögulegt
að láta skoða öll ökutæki. Skoð-
unarmenn stoppa þar stutt við
og anna ekki eftirspurn.
- js
Ályktun frá Búnaðarþingi:
Vilja frest frá
vanrækslugjaldi
GARÐABÆR „Það kom verulega
á óvart að heyra af þessari svo-
kölluðu átta ára reglu,“ segir Páll
Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Garðabæ, sem
hlaut ekki brautargengi við upp-
stillingu á framboðslista fyrir
komandi kosningar.
Ástæðan sem Páli var gefin
fyrir því að hann fengi ekki sæti
ofarlega á lista, eins og hann
sóttist eftir, var að hann hefði
verið átta ár í bæjarstjórn og að
uppstillingarnefnd Sjálfstæðis-
flokksins í Garðabæ miðaði við
að enginn bæjarfulltrúi ætti að
sitja lengur en tvö kjörtímabil.
Páll segir regluna aldrei hafa
borið á góma áður en fulltrúi
nefndarinnar hafði samband við
hann og bauð honum að sitja í 20.
sæti listans.
„Í janúar var ég boðaður í við-
tal hjá nefndinni. Þar var farið
yfir minn pólitíska feril og hvað
ég hefði fram að færa til bæjar-
búa. Þar var aldrei minnst á
þessa reglu, enda hefði ég aldrei
boðið mig fram ef ég hefði vitað
af þessari reglu.“
Undir þessi orð tekur annar
bæjarfulltrúi, Stefán Konráðsson.
„Ef ég hefði vitað af þessari reglu
hefði ég aldrei sóst eftir sæti á list-
anum. Ég held að þetta sé fyrir-
sláttur til að komast frá málinu.“
Aðeins einn af núverandi bæj-
arfulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins verður á listanum, fyrir utan
Erling Ásgeirsson sem er í heið-
urssæti. Gunnar Einarsson bæj-
arstjóri mun leiða listann. - kak
Sitjandi bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks í Garðabæ óánægðir með vinnubrögð uppstillingarnefndar:
Vissu ekki af reglunni um átta ára hámark
Á FUNDI UPPSTILLINGARNEFNDAR
Tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
eru ósáttir við störf uppstillingarnefnd-
arinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SJÁVARÚTVEGUR Samningavið-
ræðum Íslands, ESB, Noregs og
Færeyja í makríldeilunni hefur
verið slitið fyrir yfirstandandi
ár. Samningafundur í málinu var
haldinn í Edinborg í gærkvöldi en
hann bar ekki tilætlaðan árangur.
Á fundinum átti að reyna til
þrautar að ná sátt um skiptingu
veiðiheimilda í makrílstofninum.
„Það er mikil synd að ekki
hafi tekist að ljúka samningi,
tækifærið var svo sannarlega til
staðar eftir mun hærri ráðgjöf
Alþjóða hafrannsóknarráðsins
nú í haust. Hægt hefði verið að
semja um veiðar innan marka
ráðgjafar án þess að nokkurt
ríki hefði þurft að draga úr veið-
um sínum,“ segir Sigurður Ingi
Jóhannsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, í fréttatil-
kynningu.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði
því við teljum ákaflega brýnt
að ná stjórn á veiðum á þess-
um stofni og óttumst ofveiði á
honum,“ segir Kolbeinn Árnason,
framkvæmdastjóri LÍÚ.
„Við óttumst að núna verði
veitt án samninga þetta ár og
það er þá ekki nema með haust-
inu á næsta ári sem hægt verður
að setjast að samningaborðinu að
ný,“ segir Kolbeinn.
Þangað til er hætt við að veitt
verði umfram það sem ráðlegt
þykir, sem geti bitnað á makríl-
stofninum. -js
Samningar strandríkjanna um makrílveiðar báru ekki tilætlaðan árangur:
Viðræðunum slitið til næsta árs
MAKRÍL-
VINNSLA Samn-
ingaviðræður
um skiptingu
veiðiheimilda úr
makrílstofninum
fóru út um þúfur
í gær þannig að
ljóst er að ekki
mun nást sátt á
þessu fiskveiðiári.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P.
FRIÐRIKSSON