Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 48
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING TÓNLIST | 40 Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. LAGALISTINN TÓNLISTINN 27.2.2014 ➜ 5.3.2014 1 Pharrell Happy 2 Pollapönk Enga fordóma 3 Ed Sheeran I See Fire 4 Mono Town Peacemaker 5 Gary Barlow Let Me Go 6 Rudimental / Emeli Sandé Free 7 Björgvin Halldórsson / Jón Jónsson Kæri vinur 8 Greta Mjöll Eftir eitt lag 9 U2 Invisible 10 John Legend All Of Me Síðustu vikur hafa framlög hinna ýmsu landa til Eurovision verið kunngjörð. Þó ekki öll, enda má ekki gefa allt sælgætið í einu, en hins vegar er hægt að fá góða hugmynd um hvað bíður okkar þessa skemmtilegu viku í byrjun maí í kóngsins København. Það kemur svo sem lítið á óvart. Frakkar taka keppnina núll-alvarlega eins og vanalega og senda eitthvert stórfurðulegt lag með sveitinni Twin Twin sem heitir Moustache. Strákarnir þrír sem flytja það eru svo hrikalegir söngvarar að ég hefði frekar búist við því að rekast á þá á afdönkuðum karaókíbar í Taílandi. Svo eru það Hollendingar sem senda krúttaðan þjóð- lagadúett sem er afar fram- bærilegur en passar engan veginn í þessa keppni. Vissulega sætt en á aldrei eftir að komast á toppinn. Eistar hins vegar færa sig upp á skaftið með grípandi tölvu- popplagi sem gæti hugsanlega heillað Evrópu. Ekki skemmir fyrir að söngkonan, Tanja, er þrusudansari og býður upp á dramatískan nútímadans í stíl við lagið sitt Amazing. Allar Eurovision-formúlur nýttar í botn og enginn fer á klósettið í miðju lagi. Næstu vikur munu enn fleiri lög verða opinberuð og ég get eiginlega ekki beðið. Er pínulítið að pissa á mig. Ég nefnilega elska Eurovision. Ég gleymi því aldrei þegar ég sá Siggu Beinteins dilla sér í rauða kjólnum í Zagreb árið 1990. Ég trúði því ekki að svona kjólar væru búnir til. Flottasti kjóll sem ég hef á ævi minni séð. Og ég man ennþá hvað ég var svekkt þegar Selma vann ekki með All Out of Luck árið 1999. Gina G frá Bretlandi hreyfði við mér árið 1996 en ókrýnd Eurovision-drottning, að öðrum ólöstuðum, er að sjálfsögðu Ruslana frá Úkraínu sem kom, sá og sigraði með Wild Dances árið 2004. Margir hafa reynt en öllum mistekist að fanga hjarta mitt eins og Ruslana gerði. Ætli einhver nái því í ár? Þá byrjar ballið TRYLLT Það jafnast ekkert á við Ruslönu. Nýjasta plata Pharrells Williams, G I R L, kom út í vikunni og þótt hann hafi verið viðloðandi tónlistar- bransann í fjöldamörg ár þá er þetta aðeins hans önnur sólóplata. Tónlistarferill Pharrells hófst þegar hann hitti Chard Hugo í sumartónlistarbúðum á unglingsárun- um. Þá spilaði Pharrell á hljómborð og trommur en Chard á tenórsaxófón. Þeir voru saman í lúðrasveit og stofnuðu sveitina The Neptunes með vinum sínum Shay Haley og Mike Etheridge á tíunda áratugnum. Þeir tóku þátt í hæfileikakeppni meðal miðskóla og voru uppgötvaðir af Grammy-verðlaunahafanum Teddy Riley sem bauð þeim samning strax við útskrift úr miðskóla. Chard og Pharrell náðu fljótt að skapa sér nafn sem pródúsentadúó og voru meðal annars með puttana í laginu Tonight‘s the Night af plötunni Blackstreet með samnefndri hljómsveit sem kom út árið 1994. Næstu þrjú árin komu þeir að ýmsum plötum en hljómurinn var frábrugðinn þeim sem The Neptunes átti síðar eftir að tileinka sér. Það var ekki fyrr en þeir pródúseruðu Superthug með N.O.R.E. árið 1998 að þeir fundu sína hillu. Ári síðan kynnti sameiginleg- ur vinur Pharrell fyrir tónlistarkonunni Kelis og unnu þau saman að fyrstu plötu hennar, Kaleidoscope. Árið 2001 pródúseruðu The Neptunes Britney Spears-slagarann I‘m a Slave 4 U sem fór á topp- inn á vinsældalistum víðs vegar um heiminn. Sama ár gaf N.E.R.D, sem samanstóð af Chard, Pharrell og Shay, út sína fyrstu plötu, In Search of …, í Evrópu þar sem plata Kelis hafði gengið vel þar. Þeir tóku plötuna upp aftur með rokk- sveitinni Spymob og gáfu hana út í Bandaríkjun- um árið 2002. Sama ár pródúseruðu The Neptunes lagið Hot in Herre með Nelly og voru í kjölfarið valdir pródúsentar ársins á bæði Source-verðlaun- unum og Billboard-tónlistarverðlaununum. Ári síðar gáfu The Neptunes út plötuna The Neptunes Present … Clones sem fór í fyrsta sæti á Billboard 200-listanum í Bandaríkjunum. Nú var Pharrell á allra vörum og virtist allt sem hann gerði verða að gulli. The Neptunes unnu mikið með Jay-Z og pródúseruðu fjölmörg lög með honum, þar á meðal Frontin‘. Það lag var 34. stærsta lagið það árið samkvæmt Billboard og sýndi könnun í ágúst árið 2003 að lög sem voru pródúseruð af The Neptunes væru tuttugu pró- sent af öllum lögum sem spiluð voru í bresku útvarpi á þeim tíma. Útkoman var 43 prósent í Bandaríkjunum í sömu könnun. Önnur plata N.E.R.D, Fly or Die, kom út í mars árið 2004 og hlutu The Neptunes tvenn Grammy- verðlaun það árið, sem pródúsentar ársins og fyrir bestu poppplötu fyrir plötuna Justified með Justin Timberlake sem þeir komu að. Í september sama ár tók Pharrell þátt í laginu Drop It Like It‘s Hot með Snoop Dogg en það lag var valið rapplag áratugarins í Billboard árið 2009. Pharrell gaf út sína fyrstu sólóplötu árið 2005, In My Mind. Ári síðar pródúseraði hann aðra plötu Clipse, Hell Hath No Fury, og sögðu flestir gagnrýnendur að það væri hans besta verk í mörg ár. Síðan þá hefur hann unnið með öllum fremstu popplistamönnum heims, þar á meðal Maroon 5, Frank Ocean, Madonnu og Shakiru. Árið 2010 samdi Pharrell tónlistina fyrir teikni- myndina Despicable Me og samdi til dæmis lagið Happy fyrir Despicable Me 2 sem var tilnefnt til Óskarsverðlaunanna í ár. Þá samdi Pharrell og pródúseraði tónlistina á 84. Óskarsverðlaunahátíðinni fyrir tveimur árum með tónskáldinu Hans Zimmer. Síðasta ár var klárlega árið hans Pharrells sem kom að tveimur vinsælustu lögum ársins 2013, Get Lucky með Daft Punk og Blurred Lines með Robin Thicke. Hann var tilnefndur til sjö Grammy-verðlauna en lag Daft Punk var valin smáskífa ársins á hátíðinni og besta lag poppdúetts eða -hóps. Random Access Memories, plata Daft Punk, var valin plata ársins og besta dansplatan. Pharrell hefur einnig rutt sér til rúms í tískubrans- anum og stofnaði fatalínurnar Billionaire Boys Club og Ice Cream Footwear. Hann tók þátt í að hanna skartgripi og gleraugu fyrir Louis Vuitton árið 2008 og vann að húsgögnum með Galerie Emmanuel Perro- tin og franska framleiðandanum Domeau & Pérès. liljakatrin@frettabladid.is Pharrell breytir öllu í gull sem hann snertir Tónlistarmaðurinn Pharrell Williams skapaði sér nafn sem pródúsent árið 1994 og hefur framleitt hvern smellinn á fætur öðrum síðustu tuttugu ár. Í vikunni kom út önnur sólóplata hans, G I R L, sem hefur fengið rífandi góða dóma. AllMusic ★★★★★ Chicago Tribune ★★★★★ The Guardian ★★★★★ The Independent ★★★★★ Slant Magazine ★★★★ Billboard 85/100 Spin 8/10 ➜ Dómar um G I R L NÚMER EITT Pharrell stígur nánast aldrei feil- spor í tónlistinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Bob Dylan - The 30th Anniversary Concert Celebration Strumparnir - Strumpastuð Beck - Morning Phase Í spilaranum TÓNNINN GEFINN Lilja Katrín Gunnarsdóttir 1 Ýmsir Söngvakeppnin 2014 2 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn 3 Kaleo Kaleo 4 Ásgeir In The Silence 5 Mammút Komdu til mín svarta systir 6 Samaris Samaris 7 Skálmöld og Sinfó Skálmöld og Sinfó 8 Ýmsir Pottþétt 61 9 Pálmi Gunnarsson Þorparinn 10 Baggalútur Mamma þarf að djamma www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi | Kræsingar & kostakjör DAG SEM NÓTT VERIÐ VELKOMIN Í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.