Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 50
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 42
Kvikmyndin 300: Rise of an Em-
pire, verður heimsfrumsýnd á
Íslandi á morgun. Hún er sjálf-
stætt framhald myndarinnar 300
sem Zack Snyder gerði árið 2006.
Zack skrifar handritið og fram-
leiðir myndina en nú er það Ísra-
elinn Noam Murro sem leikstýrir.
Myndin er byggð á teiknimynda-
sögunni Xerxes eftir Frank Miller
og ku ekki gefa 300 neitt eftir.
300: Rise of an Empire gerist
þegar Leonídas konungur er fall-
inn og persneski herinn, sem leidd-
ur er af hálfguðinum Xerxes, nálg-
ast Aþenu. Xerxes hefur heitið því
að leggja bæði Spörtu og Aþenu
undir sig og þurrka út gríska sam-
félagið í eitt skipti fyrir öll en her
hans er gríðarlega öflugur.
Hinn hugrakki Þemistókles leið-
ir varnarbaráttu Grikkja en verk-
efnið virðist nær ómögulegt.
Í aðalhlutverkum eru Sullivan
Stapleton, Rodrigo Santoro, Eva
Green, Lena Headey, Jack O’Con-
nell, David Wenham og Andrew
Tiernan. - lkg
Kvikmyndin Saving Mr. Banks
verður frumsýnd á Íslandi á morg-
un en hún fjallar um það þegar Walt
Disney ákvað að gera mynd byggða
á sögunum um Mary Poppins árið
1938.
Það tók Walt yfir tuttugu ár að
telja höfundinn, Helen Lyndon Goff
sem skrifaði undir höfundarnafn-
inu P.L. Travers, á að selja sér kvik-
myndaréttinn. Því var myndin ekki
frumsýnd fyrr en árið 1961.
Það var ekki fyrr en Helen lenti í
fjárhagsvanda að hún samþykkti að
ræða við Walt. Samt sem áður var
hún hörð í horn að taka og fjallar
Saving Mr. Banks um þær tvær
vikur sem Helen eyddi í Hollywood
til að kljást við Walt.
Stórleikarinn Tom Hanks var
persónulega beðinn um að leika
Walt af forstjóra Disney, Robert A.
Iger, en Tom er fjarskyldur frændi
Walts. Til að búa sig undir hlutverk-
ið heimsótti hann fjölskyldusafn
Walts Disney í San Francisco oft og
mörgum sinnum og talaði við marga
ættingja meistarans, þar á meðal
dóttur hans, Diane Disney Miller.
Að sögn Bobs Gurr, samstarfs-
manns Walts, náði Tom honum afar
vel og táraðist Bob meira að segja
þegar hann horfði á myndina.
„Hann, ásamt öðrum Disney-goð-
sögnum sem unnu með honum, var
snortinn yfir því hvernig leikstjór-
inn John Lee Hancock og handrits-
höfundurinn Kelly Marcel blésu lífi
í Walt. Litlar tiktúrur, eins og það að
Walt ræskti sig alltaf til að láta fólk
vita að hann væri að koma inn í her-
bergi, bæta sannindum við myndina
sem oftast gleymast í verkum sem
þessum,“ segir í grein á vefsíðunni
The Flickcast – All Things Geek.
Það kom því mörgum í opna
skjöldu að myndin hlaut aðeins eina
tilnefningu til Óskarsverðlaunanna
og það fyrir bestu tónlist. Bjuggust
margir við því að Tom yrði tilnefnd-
ur sem og leikkonan Emma Thomp-
son sem leikur Helenu. Þá spáðu
líka margir gagnrýnendur því að
myndin hlyti tilnefningu sem besta
myndin.
Auk Toms og Emmu eru það Colin
Farrell, Paul Giamatti, Kathy Baker
og Jason Schwartzman sem fara
með aðalhlutverkin.
liljakatrin@frettabladid.is
Variety
70/100
Movie Nation
63/100
Time Out London
60/100
The Hollywood Reporter
50/100
➜ Dómar
Leikkonan Connie Britton er 47 ára
í dag
Helstu kvikmyndir/þættir: Friday Night Lights,
A Nightmare on Elm Street, Conception
AFMÆLISBARN DAGSINS Heimsfrumsýnd á Íslandi
Kvikmyndin 300: Rise of an Empire er sjálfstætt framhald myndarinnar 300.
HASAR Í FRAMHALDINU Persar og
Grikkir berjast í 300: Rise of an Empire.
Kvikmyndin sem var hunsuð
á Óskarsverðlaununum
Saving Mr. Banks fj allar um það þegar Walt Disney ákvað að gera mynd byggða á sögunum um Mary Popp-
ins. Kvikmyndin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og þeirra sem unnu með Walt sjálfum. Þrátt fyrir það
fékk hún aðeins eina tilnefningu til Óskarsverðlauna.
SANNFÆRINGARKRAFTURINN Walt reyndi allt sem hann gat til að sannfæra Helenu.
GRJÓTHÖRÐ
Emma
Thompson
leikur Helenu
sem lætur
ekki vaða yfir
sig.
FRUMSÝNINGAR
Eitthvað fyrir alla
3 Days to Kill,
spenna
AÐALHLUTVERK: Kevin Costner, Hailee
Steinfeld, Amber Heard,
Connie Nielsen og
Tómas Lemarquis.
6,4/10
40/100
31/100
Bönnuð innan
12 ára
Ævintýri hr. Píbodýs
og Sérmanns, teiknimynd
AÐALHLUTVERK: Steinn Ármann
Magnússon, Grettir Valsson, Gréta
Arnarsdóttir, Esther Talía Casey og
Rúnar Freyr Gíslason.
6,8/10
57/100
92/100
7,7/10
65/100
80/100
HLUSTAÐU
HVAR SEM ER,
HVENÆR SEM ER
#BYLGJANBYLGJAN989
ÞORGEIR, KRISTÓFER OG BRAGI
OG MÁLEFNI LÍÐANDI STUNDAR
REYKJAVÍK
SÍÐDEGIS
ER Í LOFTINU
MILLI KL. 16:00 - 18:30VIRKA DAGA