Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 46
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 FIMMTU HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Tónleikar 19.30 Midori leikur Mendelssohn í Eldborg í Hörpu. Miðaverð krónur 6.600/5.100/4.400/3.400/2.300. 20.00 Tónleikar með tilgang. Tónleikar til styrktar mannréttindum í Úganda í Norðurljósum í Hörpu. Miðaverð 2.000 krónur. 21.30 Magnús R. Einarsson heldur tón- leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Ókeypis inn! Fræðsla 20.00 Vikulegt Wikipedia-kvöld á Lands- bókasafni Íslands, tölvuverinu á þriðju hæð. Hátíðir 20.00 Fyrsta kvöld þjóðlagahátíðarinn- ar Reykjavik Folk Festival á Kex Hostel. Miðaverð þetta kvöld er 3.000 krónur. Miði á öll kvöldin kostar 7.999 krónur. Leikrit 19.00 Með allt á hreinu í Austurbæ. Miðaverð 2.500 krónur. 19.30 Spamalot á Stóra sviðinu í Þjóð- leikhúsinu. Miðaverð 5.650 krónur. 19.30 Svanir skilja ekki í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Miðaverð 4.750 krónur. 20.00 Gullna hliðið í Samkomuhúsinu á Akureyri. Miðaverð 4.400 krónur. 20.00 Unglingurinn í Gaflaraleikhúsinu. Miðaverð 2.500 krónur. 20.00 Óskasteinar á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. Miðaverð 4.750 krónur. „Við förum til Winnipeg í maí, til Frankfurtar í júní og Bergen í haust á einhverjar listahátíðir sem ég veit ekki hvað heita,“ segir Ármann Einarsson, fyrrverandi skólastjóri sem venti kvæði sínu í kross og gerðist samtímadans- ari í verkinu Dansaðu fyrir mig. „Pétur sonur minn sem leikstýrir og Brogan tengdadóttir mín sem dansar líka í verkinu halda utan um þetta. Ég er bara viðkvæmt blóm sem dansar,“ segir Ármann. „Síðustu sýningar á Dansaðu fyrir mig á Íslandi verða í dag og á morgun,“ segir Ármann. Fyrst er förinni heitið til Winni- peg í Kanada. „Svo förum við til Frankfurtar og Bergen síðar á árinu. Þessi ferðalög eru staðfest en við erum líka að skoða ferðalög til Írlands, Danmerkur og Bret- lands. Síðan var okkur boðið að dansa í Ástralíu en við frestuðum því um óákveðinn tíma.“ Ármann segir engan bilbug að finna á hópnum. „Þetta er ekki leiðinlegt, skal ég segja þér. Þetta litla ævintýri hefur tekið óvænta stefnu og er að enda með að verða ansi stórt ævintýri. Það eru umboðsmenn sem koma að sjá þessar sýningar á listahátíðunum. Þeir útlensku listamenn sem hafa séð þetta hafa verið hrifnir. Þeir sem hafa séð sýninguna eru allir mjög jákvæðir. Þetta er önnur sýning en fólk býst við,“ segir Ármann. - ue Bara viðkvæmt blóm sem dansar Dansaðu fyrir mig verður sýnt beggja vegna Atlantshafsins á þessu ári. Síðustu sýningar á Íslandi verða í kvöld og annað kvöld. Fyrsta utanferðin er til Kanada. DANS Ármann Einarsson var skólastjóri í Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar áður en hann gerðist samtímadansari. Brogan Davisson dansar líka í verkinu. Samtökin ´78 & Íslandsdeild Amnesty International, ásamt nemum í tómstunda- og félags- málafræði standa fyrir tónleik- um í kvöld til styrktar mannrétt- indum í Úganda. Mannréttindi hinsegin fólks í Úganda eru fótumtroðin og nú á dögunum var frumvarp þar í landi samþykkt sem kveður á um lífstíðarfangelsi við samkyn- hneigð í landinu. Með því hefur rótgróið hatur og mismunum gagnvart þeim sem eru eða telj- ast hinsegin fest í sessi. Samtökin ´78 og Íslandseild Amnesty International styðja úgönsk grasrótarsamtök hinseg- in fólks í mannréttindabaráttu þess fyrir réttindum sínum. Eftir að Amnesty bauð lesb- ísku baráttukonunni Köshu til Íslands í fyrra ákváðu Samtökin ´78 að hefja samstarf við bar- áttusystkini í Úganda. Tilgangur styrktartónleikanna er að vekja athygli Íslendinga á stöðu hinsegin fólks í Úganda sem og að afla fjár fyrir gras- rót hinsegin fólks þar í landi, svo það geti hratt og örugglega unnið gegn hatri og fordómum, með það að markmiði að opna augu samlanda sinna fyrir því hvaða afleiðingar það mun hafa í för með sér. Á tónleikunum koma fram Mannréttindi í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.