Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 6. mars 2014 | MENNING | 39
DAGUR
„Það hafa margir viljað kaupa staðinn undanfarna
mánuði og því fór ég að hugsa að það væri kannski
rétt að selja staðinn núna. Ég er að leita að öðrum stað
og ætla að opna nýjan stað sem allra fyrst,“ segir Aug-
ustin Navarro Cortés, fyrrverandi eigandi Næsta bars
sem var lokað um liðna helgi.
Augustin opnaði Næsta bar árið 2008 og hefur stað-
urinn verið einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborg-
arinnar þann tíma. „Það var mjög ánægjulegt að sjá
að fólk tók það til sín að ég væri að fara loka staðn-
um, fólki þykir greinilega vænt um staðinn,“ segir
Augustin.
Hann segist elska fólk og hann hafi unnið á bar
lengi. „Ég byrjaði að vinna á bar fjórtán ára gamall, á
Benidorm. Ég flutti til Íslands árið 1986.“
Augustin hefur í hyggju að opna nýjan stað á næst-
unni. „Nýi staðurinn á að heita Kaffi list. Ég opnaði
Kaffi list árið 1992 en hætti með hann árið 1999,“
segir Augustin sem ætlar að endurvekja gamla stað-
inn. „Mig langar líka að bjóða upp á rétt dagsins. Hafa
einn veglegan rétt.“
Augustin ætlar að opna Kaffi list um leið og hentugt
húsnæði finnst. „Ég elska þetta og þetta er mitt líf.
Næsti bar var eins og kirkjan mín. Ég þakka öllum
gestum mínum fyrir komuna og öllu mínu frábæra
samstarfsfólki.“ - glp
Næsti bar leggur niður starfsemina
Einum vinsælasta bar bæjarins hefur verið lokað. Ekki er ljóst hvaða starfsemi
kemur í hans stað. Augustin, eigandi Næsta bars, ætlar þó að opna nýjan stað.
NÆSTA BAR LOKAÐ Augustin Navarro
Cortés, fyrrverandi eigandi Næsta bars,
ætlar að endurvekja Kaffi list á næstunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Málþing
13.00 Málþingið Heilsugæsla og
heilbrigðisþjónusta í náinni framtíð
fer fram klukkan 13-16 í sal HB1 í
Háskólabíói.
Dans
20.00 Dansaðu fyrir mig í Tjarnarbíói.
Miðaverð 3.900 krónur.
Uppistand
20.00 Mið-Ísland í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Miðaverð 2.900 krónur.
Fyrirlestrar
12.00 Opinn fyrirlestur á vegum
Alþjóðamálastofnunar um val á sam-
starfslöndum til þróunarsamvinnu og
ákvarðanir um veitingu neyðaraðstoðar
í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands.
12.00 Halldór Rósmundur Guðjónsson
heldur fyrirlestur undir yfirskriftinni
Hvers vegna eru nauðgunarmál felld
niður? Fyrirlesturinn fer fram í stofu
201 í Árnagarði í Háskóla Íslands.
12.00 Þorvaldur Gylfason, prófessor við
Hagfræðideild, mun flytja fyrirlestur í
Hátíðasal Háskóla Íslands frá kl. 12.00-
13.30 Titill fyrirlestrarins er: Ísland:
Hvernig gat þetta gerzt?
Myndlist
17.00 Looking at the Big Sky. Kynn-
ing á vídeólist á kaffistofu Listasafns
Íslands klukkan 17-19. Aðgangur
ókeypis og allir velkomnir.
17.00 Elín G. Jónhannsdóttur opnar
sýninguna Smáfólkiðí Eiðisskeri,
sýningarsal Seltirninga í Bókasafni Sel-
tjarnarness.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is
Spamalot
★★★ ★★
„Bráðfyndin og skemmtileg sýning
en efnið reynist áhorfandanum
erfið gáta.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
Hinsegin kórinn, Sigga Bein-
teins & Stjórnin, Páll Óskar,
Sykur og Retro Stefson.
Kynnar verða Bjarni Snæ-
björnsson og Sigríður Eyrún
Friðriksdóttir.
Þá mun Felix Bergsson flytja
ávarp.
Tónleikarnir
hefjast klukkan
20.00 í Hörpu.
Miðaverð verður
2.000 krónur og
rennur allur ágóði
óskiptur til hinseg-
in fólks í
Úganda.
- glp
Úganda styrkt