Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 56
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 48
BAKÞANKAR
Atla Fannars
Bjarkasonar
Íslenskar konur eru
eins og íslenska nátt-
úran; ljós húð sem skín á,
hár sem flæðir og augun
eru eins og ísjakar í
Atlantshafinu.
Mirko Kraeft
Átta af hverjum tíu Íslendingum eru á Facebook. Þrátt fyrir þetta ótrúlega
hlutfall erum við eftirbátar margra þjóða
þegar kemur að því að nýta samskipta-
miðlana til fulls. Facebook hefur fjölmarga
samfélagslega kosti en sem tól til að tengja
saman ólíka hópa og skoðanir er það glatað.
VINIR og kunningjar eiga samskipti á
Facebook, sem síar út þá sem þú átt í litlum
samskiptum við. Ef þú lækar status hjá vini
þínum eykurðu líkurnar á því að þú sjáir
næsta status frá honum. Þannig gerist það
smátt og smátt að veggurinn þinn fyllist
af fólki sem þú átt samleið með. Umræðan
lokast því inni í ákveðnum hópum og slepp-
ur ekki út nema í undantekningartilfellum.
Hvað getum við gert í þessu?
VIÐ byrjum að nota Twitter. Twitter er
eins og frjálslynd útgáfa af Facebook
— umræða án hindrana í formi vina-
beiðna og einkalífsstillinga. Twitter
flokkar umræðuna í kassamerki (e.
hashtags) og virkar best þegar sér-
stakir viðburðir eru í gangi. Fót-
boltaáhugamenn (#fotbolti) voru fyrstu
íslensku landnemarnir á Twitter en í dag
er hópurinn sem notar samfélagsmiðilinn
mjög fjölbreyttur og sístækkandi. Gísli
Marteinn (#sunnudagur) og Mikael Torfa-
son (#minskodun) nýta sér til dæmis Twitt-
er til að víkka út umræðuþætti sína á netið
með frábærum árangri, Eurovision verður
helmingi skemmtilegra (#12stig), eins og
Óskarsverðlaunin (#óskarinn) og 25 ára
afmæli bjórsins á Íslandi (#bjór25) varð
allt í einu persónulegt þegar Íslendingar
lýstu fyrstu kynnum sínum af þeim görótta
drykk í 140 slögum.
TWITTER-BYLTINGIN er hafin og fjöl-
miðlar þurfa að vera vakandi með því að
birta kassamerki með beinum útsendingum.
Við sjáum nefnilega reglulega glötuð tæki-
færi til að færa umræðuna á annað stig.
Fyrstu oddvitakappræðurnar í Reykjavík
fóru fram á Stöð 2 á mánudag en kassa-
merkið í horninu var fjarverandi. Umræð-
an var því lítil. Kastljós gerði sömu mistök
þegar forsætisráðherra settist í rafmagns-
stólinn hjá Helga Seljan á þriðjudagskvöld.
BÖRNUM er sagt að tala ekki við ókunn-
uga en þegar maður verður fullorðinn er
það skemmtilegt, gefandi og nauðsynlegt til
að víkka sjóndeildarhringinn. Gerum meira
af því. Sjáumst á Twitter (@atlifannar).
Talað við ókunnuga
Íslensku tónlistarverðlaunin fagna
20 ára afmæli í ár og verða haldin
í Eldborg í Hörpu föstudaginn 14.
mars. Margt af okkar helsta tón-
listarfólki mun koma fram, það
sem skara þótti fram úr á árinu
2013 verður verðlaunað auk þess
sem litið verður yfir farinn veg
og saga verðlaunanna skoðuð allt
aftur til ársins 1993 með aðstoð
umsjónarmanna þáttarins Árið
er. Fram koma meðal annars
Emilíana Torrini, Hjaltalín,
Skálmöld og Mezzoforte.
Í fyrsta skipti í sögu Íslensku
tónlistarverðlaunanna gefst
almenningi nú færi á að kaupa
miða á hátíðina.
- glp
Allir fá aðgang
að hátíðinni
MIKIL HÁTÍÐ Emilíana Torrini kemur
fram á hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
„Ég er að leita að íslenskum
konum á aldrinum tuttugu til
þrjátíu ára til að sitja fyrir,
naktar,“ segir þýski ljósmyndar-
inn Mirko Kraeft, sem er hingað
kominn til lands frá Berlín, til
þess að mynda lokaverkefni sitt
við Berliner Technische Kunst-
hochschule, sem er listaháskóli
þar í borg.
Mirko kom fyrst hingað til
lands í september í fyrra. „Fyrir
utan þessa ótrúlega fallegu
birtu, fannst mér óvanalegt
landslagið einstaklega heillandi,“
segir hann og bætir við: „Litirn-
ir og formin í náttúrunni virtust
renna saman í eitt, sem var eitt-
hvað sem ég hafði aldrei áður
séð, hvorki fyrr né síðar. Bylgj-
ótt yfirlagið er eins og einhver
sjónbrella – eins og það séu lík
sem liggi undir jörðinni,“ segir
hann og bætir við að honum hafi
þótt mikið til íslenskra kvenna
koma.
„Íslenskar konur eru eins og
íslenska náttúran; ljós húð sem
skín á, hár sem flæðir og augun
eru eins og ísjakar í Atlantshaf-
inu. Ég var virkilega djúpt snort-
inn eftir þessa heimsókn mína,“
segir hann og segist hafa ákveð-
ið þá og þegar að láta lokaverk-
efni sitt við listaháskólann fjalla
um þetta.
Mig langar til þess að heim-
færa þessa kvenlegu fagurfræði
upp á íslensku náttúruna – mig
langar til þess að rannsaka þetta
betur.“
Mirko keypti sína fyrstu
myndavél fyrir fimm árum.
„Ég varð ástfanginn af ljós-
myndun. Ég hætti í skólanum,
þar sem ég var að læra verk-
fræði, til þess að einbeita mér að
ljósmynduninni. Nú hef ég mest-
an áhuga á portrettlist og hygg
á frama í ljósmyndun,“ segir
Mirko að lokum – en áhugasamar
fyrirsætur geta haft samband á
mirkokraeft@googlemail.com.
olof@frettabladid.is
Vill mynda nakið kvenfólk
Hinn þýski Mirko Kraeft er kominn hingað til lands til þess að klára lokaverkefni sitt í ljósmyndun.
FÉLL FYRIR ÍSLENSKU KVENFÓLKI Mirko segist hafa verið djúpt snortinn eftir
fyrstu heimsókn sína til landsins í fyrra. MYND/MIRKO KRAEFT
MIRKO KRAEFT Hætti í verkfræði og hóf nám í ljósmyndun fyrir fimm árum. MYND/
ÚR EINKASAFNI
VIDEODROME
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
THE MONUMENTS MEN 8, 10:25
RIDE ALONG 5:50, 8, 10:10
ROBOCOP 10:25
LEGO - ÍSL TAL 3D 5:50
DALLAS BUYERS CLUB 5:45, 8
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
AFTENBLADET EXPRESSEN
THE MONUMENTS MEN
THE MONUMENTS MEN LÚXUS
RIDE ALONG
LEGO ÍSL. TA L 2D
ÍLEGO SL. TA L 3D
ROBOCOP
HER
SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM ...2 2D
SECRET LIFE OF WALTER MITTY
THE MONUMENTS MEN
NEBRASKA (ÓTEXTUÐ)
RIDE ALONG
NYMPHOMANIAC PART 1
ROBOCOP
AUGUST: OSAGE COUNTY
THE BOOK THIEF
KL. 5 - 8 - 10.30
KL. 5 - 8 - 10.30
KL. 8 - 10.15
KL. 3.30 - 5.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5.30 - 8 - 10.35
KL. 10.30
KL. 3.30
KL. 8
Miðasala á: og
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8
KL. 10.30
KL. 8 - 10.30
KL. 8 - 10.30
KL. 5.30
KL. 5.25
NÁNAR Á MIÐI.IS
THE MONUMENTS MEN
RIDE ALONG
ROBOCOP
KL. 8 - 10.15
KL. 6 - 8
KL. 6 - 10.15
ROLLING STONENEW YORK OBSERVER
Save the Children á Íslandi