Fréttablaðið - 06.03.2014, Blaðsíða 32
FÓLK|TÍSKA
STÓRAR OG LITRÍKAR
TÖSKUR Í HAUST
TÖSKUTÍSKA Á tískuvikunni í París voru mörg módelin með stórar og litríkar
töskur sem fylgihluti. Það er því óhætt að geyma stóru töskurnar sem verið
hafa í tísku undanfarið því þær verða áfram næsta haust og vetur. Samkvæmt
tískusýningum liðinnar helgi á ekki að láta töskurnar sveiflast á öxlunum
heldur bera þær í fanginu eða halda í haldföng þeirra.
GUL OG GLAÐLEG FRÁ KENZO
GIAMBATTISTA VALLI GERÐI
ÞESSA DÖMULEGU TÖSKU
MJÚK OG MEÐFÆRILEG FRÁ DRIES VAN NOTEN
TASKA FRÁ AKRIS SEM ER
TILVALIN ÞEGAR FARA Á
EITTHVAÐ FÍNT
Breska leikkonan Helen Mirren
vekur gjarnan athygli hvar sem
hún kemur fyrir fágaða fram-
komu og glæsilegan fatastíl. Síð-
ast vakti hún mikla athygli þegar
hún tók á móti heiðursverð-
launum úr höndum Vilhjálms
Bretaprins á BAFTA-verðlauna-
hátíðinni í febrúar. Þessi marg-
verðlaunaða leikkona, sem
verður 69 ára á árinu, geislaði
á hátíðinni. Helen hlaut Óskars-
verðlaun árið 2007 fyrir bestan
leik í aðalhlutverki fyrir leik sinn
í The Queen en prinsinn nefndi
einmitt að hann ætti kannski
bara að kalla leikkonuna „ömmu“
auk þess sem hann hrósaði
henni fyrir framúrskarandi hæfi-
leika. Án efa er Helen ein virtasta
leikkona Breta.
Það sem vakti einnig at-
hygli var að Helen mætti
í fallegum síðkjól sem
hannaður var af Jacues
Azagury en hann
hannaði einnig
marga fallega
kjóla fyrir
Díönu
prins-
essu á
sínum
tíma.
Azagury
hefur hannað fyrir
margar Hollywood-
stjörnur. Tískulögg-
ur eru sammála um
að Helen sé ævin-
lega fallega klædd
og þar að auki alltaf
glaðleg.
ALLTAF GLÆSILEG
FRÆGUR
HÖNNUÐUR
Kjóllinn er eftir
Jacues Azagury
sem hannaði fyrir
Díönu prinsessu
á sínum tíma.
FRÆGUR KJÓLL
Þessi kjóll er frá Dolce
& Gabbana en fleiri
þekktar konur hafa
sést í sams konar kjól.
Foreldrar, vinir, kennarar og aðrar fyrirmyndir eru líklegar til að hafa áhrif á námsval
ungs fólks og er það vel. Gættu
þess þó að fylgja ekki straumnum
án þess að hafa neitt um það að
segja sjálfur hvar þig ber niður.
Kynntu þér vel þá valkosti sem eru
fyrir hendi. Ekki hræðast það að
vera frumlegur og fara ótroðnar
slóðir. Í samfélagi okkar eru staðal-
myndir um hlutverk kynjanna
rótgrónar. Þegar kemur að því að
velja náms- eða starfsvettvang hafa
möguleikar okkar að sumu leyti
verið takmarkaðir vegna þessara
viðmiða. Hafðu það hugfast þegar
þú velur þér nám að láta ekki stað-
almyndirnar flækjast fyrir þér.
Sjálfsþekking er grunnurinn sem
við byggjum á. Ef góð sjálfsþekk-
ing er til staðar eru meiri líkur á að
við finnum farveg sem gerir okkur
hamingjusöm. Skoðaðu vel hvað
það er sem veitir þér ánægju.
Eitt meginhlutverk náms- og
starfsráðgjafar er að aðstoða ein-
staklinga við að uppgötva styrk-
leika sína, færni og áhuga til að auð-
velda þeim að ákveða stefnu í námi
og/eða á vinnumarkaði. Ef þú ert
óviss varðandi framhaldið ættirðu
að leita aðstoðar náms- og starfs-
ráðgjafa sem hefur sérþekkingu á
þessu sviði og getur leiðbeint þér.
Gangi þér vel með framhaldið og
umfram allt skaltu muna að standa
með sjálfum þér og velja sam-
kvæmt áhuga þínum og gildismati.
KÆRI NEMANDI Í 10. BEKK!
ÍSLANDSMÓT IÐN- OG VERKGREINA KYNNIR Nú stendur þú frammi fyrir
þeirri spennandi ákvörðun sem val á námi að loknum grunnskóla er. Fram-
tíðin er þín. Kannski ertu búinn að ákveða hvert þú stefnir. Líklegra er þó að
þú sért ekki alveg viss enda um ótal leiðir að velja. Helga Helgadóttir bendir
nemendum á að taka sjálfstæða og upplýsta ákvörðun.
ÁRÍÐANDI Helga segir að áríðandi sé að velja sér
nám við hæfi.
Sjá fleiri myndir á
Kjólar
14.990 kr.
Stærðir 38-46
FLOTTIR KJÓLAR
NÝ SENDING