Fréttablaðið - 06.03.2014, Síða 10
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Notaðir
bílar
Frábært úrval af notuðum
bílum. Veldu þann sem hentar
þínum þörfum best.
Chevrolet Captiva LT
Árgerð 2013 | Nýskr. 03 | Sjálfskiptur
2000 | Dísel | Ekinn: 39.000 km.
Verð 4.990.000 kr.
Bí
ll í
áb
yr
gð
Chevrolet Cruze LT
Árgerð 2013 | Nýskr. 05 | Beinskiptur
1800 | Bensín | Ekinn: 39.000 km.
Verð 2.490.000 kr.
Bí
ll í
áb
yr
gð
Chevrolet Aveo LTZ
Árgerð 2012 | Nýskr. 12 | Beinskiptur
1600 | Bensín | Ekinn: 47.000 km.
Verð 2.090.000 kr.
Bí
ll í
áb
yr
gð
Notaðir
bílar
Þú finnur bílinn
á benni.is
Reykjavík
Bíldshöfða 10
Sími: 590 2035
Netf: notadir@benni.is
Reykjanesbær
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Netf: svavar@benni.is
Opnunartími: Virkir dagar 10-18 og laugardaga 12-16
aðalfundur
eimskipafélags íslands hf.
Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 27. mars
2014 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík.
reglur um þátttöku og
atkvæðagreiðslu á fundinum
Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja
fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum
eða rafrænum hætti, þar til endanleg dagskrá og tillögur
birtast tveimur vikum fyrir fundinn. Nánari upplýsingar
um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins,
www.eimskip.is/investors/agm
Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum
eigin hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar,
atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
fundarstað. Hluthöfum sem ekki sækja aðalfund stendur
til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti
eða veita umboð.
Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hlut-
hafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu.
Hluthafar geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig
má nálgast þá í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má
atkvæði alla virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Atkvæðin
skulu berast félaginu fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta veitt
skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slík
umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst
eða við skráningu á fundarstað. Nánari upplýsingar um
atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu
félagsins, www.eimskip.is/investors/agm
aðrar upplýsingar
Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu
félagsins, www.eimskip.is/investors/agm
Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í
höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík,
virka daga milli kl. 9:00 og 16:30.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar tveimur vikum
fyrir fundinn. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995
má tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm
dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til
stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir
aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða
afhent frá kl. 15:30 á aðalfundardegi.
Reykjavík, 6. mars 2014
Stjórn Eimskipafélags Íslands hf.
drög að dagskrá
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess
á liðnu starfsári
2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar félagsins
á reikningsárinu 2013
4. Tillaga um breytingu á samþykktum er veiti stjórn
heimild til hækkunar hlutafjár félagsins
5. Tillaga um breytingu á 11. gr. samþykkta félagsins
6. Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu
7. Kosning stjórnar félagsins
8. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna
og undirnefnda stjórnar
9. Kosning endurskoðenda
10. Önnur mál, löglega upp borin
Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is
BANDARÍKIN Uppljóstr-
arinn Edward Snowden
verður einn af fyrirlesur-
um á South by Southwest
Interactive-hátíðinni
sem hefst á föstudaginn
í Austin í Texas.
Snowden verður þó
ekki á bandarískri
grundu heldur talar hann
frá Rússlandi um það
hvernig tæknisamfélagið þarf
að verja sig gegn stórum eftirlits-
kerfum. Snowden mun ræða við
tæknisérfræðinginn Christopher
Soghoina um áhrif Þjóðar-
öryggisstofnunar Banda-
ríkjanna, NSA, á tækni-
samfélagið og hvernig
tæknin getur verndað
okkur frá stórum eftirlits-
kerfum,“ sagði í tilkynn-
ingu frá SXSW.
Gestir í salnum geta
spurt spurninga á fyrir-
lestrinum, auk þess sem
fjölmiðillinn The Texas Tribune
sendir beint frá honum á netinu.
Snowden er fyrrverandi starfs-
maður bandarísku leyniþjónust-
unnar, CIA, og verktaki hjá NSA
sem flúði frá Bandaríkjunum
eftir að hann lak njósnaupplýs-
ingum frá bandarískum stjórn-
völdum. Hann fékk tímabundið
hæli í Rússlandi í fyrra. Hann á
yfir sér ákærur fyrir njósnir og
þjófnað á bandarískum eigum í
Bandaríkjunum.
Á meðal annarra fyrirlesara
á SXSW-hátíðinni verða mann-
réttindalögfræðingurinn Glenn
Greenwald og Julian Assange,
stofnandi WikiLeaks.
- fb
Frægur bandarískur uppljóstrari talar frá Rússlandi á SXSW-hátíðinni:
Snowden á ráðstefnu í Texas
EDWARD
SNOWDEN
FRAKKLAND,AP Sergei Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússa, fundaði í
París í gær með John Kerry, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, og
kollegum sínum frá stærstu ríkjum
Evrópusambandsins. ESB hefur
boðið Úkraínu fimmtán milljarða
evra björgunarpakka en Úkraínu-
menn segjast þurfa 35 milljarða
evra til að komast hjá gjaldþroti.
Samkvæmt upplýsingum frá
háttsettum frönskum samninga-
manni vildi Lavrov ekki hitta úkra-
ínska kollega sína í gær. Lavrov
sagði Rússa vera opna fyrir samn-
ingaumleitunum en vandamálið
væri að þeir þverneituðu að viður-
kenna nýja ríkisstjórn Úkraínu og
hvað þá að sitja með henni til borðs
og ræða málin.
Herlið Rússa er enn á Krímskaga
og virðist ekki vera á leið þaðan í
bráð. Lavrov sagði á fundinum í
París að Vesturlönd hefðu stutt
atburði í Úkraínu sem Rússar litu
á sem valdarán. Um leið hefðu þau
með stuðningi sínum sett slæmt
fordæmi fyrir þá sem hyggi á
valdarán í öðrum ríkjum.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna er
byrjuð að styrkja varnir banda-
manna sinna í Evrópu vegna
ástandsins á Krímskaga. Að sögn
Chucks Hagel, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, eru sameig-
inlegar flugæfingar hafnar með
pólska lofthernum. Varnarmála-
ráðuneyti Bandaríkjanna ætlar
einnig að taka meiri þátt en áður
í herflugi NATO-ríkjanna innan
Eystrasaltsríkjanna.
Gunnar Bragi Sveinsson utan-
ríkisráðherra átti fund með Urmas
Paet, utanríkisráðherra Eistlands,
í Tallinn í gær. Þeir ræddu fram-
vindu mála í Úkraínu síðustu daga
og með hvaða hætti alþjóðasamfé-
lagið gæti brugðist við hernaðarað-
gerðum Rússa á Krímskaga.
Gunnar Bragi ítrekaði fordæm-
ingu Íslands á framferði Rússa.
Hann sagði aðgerðir þeirra á Krím-
skaga brot á alþjóðalögum og und-
irstrikaði að rússneskur liðsafli
yrði að hverfa aftur til bækistöðva
sinna svo hægt verði að leita sátta
með friðsamlegum hætti.
freyr@frettabladid.is
Hundsaði
úkraínska
kollega sína
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, vildi ekki
ræða við kollega sína frá Úkraínu á fundi í París í gær.
ESB hefur boðið Úkraínu fimmtán milljarða evra.
LAVROV Í PARÍS Utanríkisráðherra Rússlands tekur í höndina á François Hollande,
forseta Frakklands, í gær. NORDICPHOTOS/AFP
Natalia Rumba fæddist í Sevastopol á Krímskaga og bjó þar þangað til hún flutti
til Íslands fyrir sex árum. Fjölskylda hennar og vinir búa þar enn og talar hún við
þau daglega.
Hún segir fjölmiðla draga taum Vestur-Úkraínumanna sem dreifi hatursáróðri
um Rússa, sem séu ekki að hernema Krím heldur verja íbúana. Vísar hún í net-
upptökur frá Krím frá 23. febrúar þegar 25 þúsund manns hafi komið þar saman
og kallað eftir aðstoð Rússa. Hún segir að eftir upplausn Sovétríkjanna hafi verið
óljóst hverjum Krím tilheyrði og allt í einu hafi svæðið heyrt til Úkraínu án þess
að íbúarnir væru spurðir álits. - hþ
Óttast um líf foreldra sinna og vina