Fréttablaðið - 06.03.2014, Page 18
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
CRÉATIVE TECHNOLOGIE
Frábær vinnuaðstaða með góðu aðgengi fyrir farm og farþega. 180° opnun á afturhurðum, rennihurð, þægileg
hleðsluhæð, há sætisstaða og fjöldi geymsluhólfa. Öflug en sparneytin 90 hestafla dísilvél ásamt spólvörn og ESP
stöðugleikakerfi gera Berlingo Van að öruggum og hagkvæmum kosti fyrir þinn rekstur.
KOMDU OG PRÓFAÐU CITROËN BERLINGO VAN
citroen.is
3,3 M - 4,1 M HLEÐSLURÝMI 850 KG BURÐARGETA 3JA MANNA SPARNEYTINN 3 3
Útbúnaður og gerð getur verið frábrugðin mynd í auglýsingu
BETRI REKSTUR OG AUKIN ÞÆGINDI
CITROËN BERLINGO VAN 1,6 HDi 90 hö dísil
VERÐ FRÁ: 2.382.470 KR. ÁN VSK
VERÐ FRÁ: 2.990.000 KR. MEÐ VSK
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
Rekstur Norðlenska matborðsins
ehf. skilaði 138,4 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári samanbor-
ið við 188,5 milljóna hagnað árið
2012. Samþykkt var á aðalfundi
félagsins 28. febrúar síðastliðinn
að greiða eigandanum, Búsæld ehf.
félagi 525 bænda, arð að upphæð
fimmtán milljónum króna.
Í tilkynningu félagsins um upp-
gjör síðasta árs segir að ársvelta
þess hafi numið tæpum 5,2 millj-
örðum króna. Það er veltuaukning
um rúm 9,8 prósent á milli ára. - hg
Uppgjör Norðlenska kynnt:
Eigendur fá 15
milljónir í arð
Vöruskiptin í febrúar voru hag-
stæð um tæpa fjóra milljarða
króna þegar þau eru reiknuð á fob-
verðmæti.
Þetta kemur fram í bráðabirgða-
tölum Hagstofu Íslands. Þar segir
að útflutningur hafi numið 41,3
milljörðum króna og innflutningur
um 37,3 milljörðum.
Með fob-verði (free on board) er
átt við verð vörunnar komið um
borð í flutningsfar í útflutnings-
landi. - hg
Bráðabirgðatölur Hagstofu:
Hagstæð vöru-
skipti í febrúar
Skattgreiðslur viðskiptabankanna
stóru, Landsbankans, Íslands-
banka og Arion banka, jukust um
70,6 prósent á milli áranna 2012 og
2013, samkvæmt því sem lesa má
úr nýbirtum ársreikningum þeirra.
Allir kvarta þeir undan auknum
opinberum álögum, sem setji mark
sitt á reksturinn.
Þannig dregur úr hagnaði á milli
ára hjá Arion banka og Íslands-
banka, en báðir birtu uppgjör
skömmu fyrir mánaðamót. Hagn-
aður Íslandsbanka dróst saman
um eitt og hálft prósent, fór úr 23,4
milljörðum í 23,1 milljarð króna, en
hagnaður Arion banka um fjórðung,
fór úr 17,1 milljarði í 12,7 milljarða.
Einungis Landsbankinn eykur hagn-
að sinn á milli ára, fer úr 25,4 millj-
örðum króna í 28,8 milljarða, sem
er 13,4 prósenta aukning á milli ára.
Heildareignir jukust hjá öllum
bönkunum. Samtals áttu þeir í lok
síðasta árs sem svarar 2.956,4 millj-
örðum króna, en það er aukning um
5,3 prósent frá fyrra ári þegar þeir
áttu sem svarar 2.808,5 milljörðum
króna. Bankarnir leggja allir til að
hluta hagnaðar síðasta árs verði
varið til greiðslu arðs, en mismikils
þó eftir bönkum.
Íslandsbanki leggur til lægsta
hlutfallið af hagnaði, 40 prósent,
sem samsvarar því að bankinn
greiði hluthöfum sínum 9,2 millj-
arða króna í arð.
Arion banki leggur til að arð-
greiðslan nemi 60 prósentum af
hagnaði og verði 7,6 milljarðar
króna. Báðir bankarnir eru að
stærstum hluta í eigu kröfuhafa.
Ríkið á þó fimm prósenta hlut í
Íslandsbanka og fær því 461,4 millj-
ónir króna hlutdeild af arðgreiðslu
bankans. Arion banki er svo aftur
að 13 prósentum í eigu ríkisins sem
því fær 988 milljóna króna hlut.
Landsbankinn, sem núna legg-
ur til greiðslu arðs af 70 prósent-
um hagnaðar síðasta árs, eða sem
svarar 20,1 milljarði króna, er hins
vegar að stærstum hluta í eigu rík-
isins. Bankasýslan fer með 97,08
prósenta eignarhlut í bankanum
og því renna rúmir 19,5 milljarðar
af arðgreiðslunni til ríkisins. Alls
fær íslenska ríkið því rétt tæpan 21
milljarð króna í arð af eign sinni í
viðskiptabönkunum þremur.
Á kynningarfundi um uppgjör
Landsbankans í gærmorgun, sem
var síðastur bankanna til að birta
uppgjör sitt í byrjun þessarar viku,
kom fram í máli Hreiðars Bjarna-
sonar, framkvæmdastjóra fjármála
hjá bankanum, að gangi arðgreiðsl-
an eftir á aðalfundi muni hún hafa
áhrif til lækkunar á eigin fé bank-
ans sem nemi rúmum tveimur pró-
sentum. „En eiginfjárstaðan er
áfram gríðarlega sterk verði tillag-
an samþykkt,“ bætti hann við. Í árs-
lok stóð eiginfjárhlutfall bankans í
26,7 prósentum.
olikr@frettabladid.is
Bankarnir högnuðust um
64,6 milljarða króna í fyrra
Samkvæmt ársreikningum stóru viðskiptabankanna þriggja greiða þeir samtals 36,9 milljarða króna í skatta og
önnur opinber gjöld. Hagnaður Íslandsbanka og Arion banka dróst saman milli ára en jókst hjá Landsbankanum.
Breytingar til hækkunar urðu á launakjörum allra yfirmanna í viðskiptabönk-
unum þremur milli áranna 2012 og 2013 að því er lesa má út úr ársskýrslum
bankanna sem birtar hafa verið síðustu daga.
Af bankastjórnunum þremur er Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka,
með hæst mánaðarlaun, 4,2 milljónir króna. Laun hans hækkuðu um 13,9
prósent á milli ára, en á fyrra ári námu mánaðarlaun hans 3,7 milljónum.
Næsthæst laun er svo Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, með, eða
sem svarar rúmum þremur milljónum króna. Séu árangurstengdar greiðslur
teknar með má svo hækka mánaðartekjur hennar í fyrra í 3,6 milljónir króna.
Hækkun milli ára nemur 15,6 prósentum og 27 prósentum ef árangurstengdu
greiðslurnar eru teknar með.
Hlutfallslega hækka hins vegar mest á milli ára laun Steinþórs Pálssonar,
bankastjóra Landsbankans, eða um 32,5 prósent. Hann er engu að síður með
umtalsvert lægri laun en kollegar hans í hinum bönkunum. Launagreiðslur
(með lífeyrissjóðsgreiðslum) til hans jafngilda mánaðarlaunum upp á rúmlega
1,8 milljónir króna í fyrra, en árið áður námu laun hans tæpum
fjórtán hundruð þúsundum á mánuði.
Laun hækkuðu hjá öllum bankastjórum
HÖSKULDUR ÓLAFSSON BIRNA EINARSDÓTTIR STEINÞÓR PÁLSSON
VÖRUFLUTNINGAR Útflutningur
Íslands nam alls 41,3 milljörðum króna
á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA