Fréttablaðið - 06.03.2014, Page 21
FIMMTUDAGUR 6. mars 2014 | SKOÐUN | 21
Reglulega hafa birst fréttir af
þróun yfirdráttarlána heimila
í fjölmiðlum á undanförnum
árum þar sem fjallað er um
hversu mikið þessi lán hafa
aukist frá falli fjármálakerf-
isins. Jafnvel hefur borið við
að ályktað sé að aukningin
skýri stóran hluta af einka-
neyslu landsmanna og þar
með hagvaxtar. Rétt er að
tölur um yfirdráttarlán inn-
lánsstofnana til heimila hafa
hækkað. Þannig var bókfært
virði stofnsins tæplega 37
ma.kr. meira að meðaltali á
árinu 2013 miðað við meðalstöðu
ársins 2009 og um 27 ma.kr. meira
að teknu tilliti til verðlagsbreytinga.
Meginhluti aukningarinnar er hins
vegar til kominn vegna bókhalds-
legrar endurflokkunar þessara lána
í bókum lánastofnana og því ekki
um raunverulega aukningu yfir-
dráttarlána að ræða.
Bókhaldsleg endurflokkun
yfirdráttarlána
Haustið 2009 setti Seðlabanki
Íslands nýjar reglur, nr. 849/2009,
um greiðsluuppgjör kortaviðskipta.
Var það gert m.a. til að draga úr
uppgjörsáhættu og tryggja öryggi
greiðslna kortaútgefanda til færslu-
hirðis og áfram til söluaðila. Sam-
kvæmt reglunum ber að varðveita
með sem minnstri áhættu greiðslur
sem færsluhirðar fá frá
kortaútgefendum og
greiðast ekki strax til
söluaðila, til að mynda
sem innlán. Samhliða var
sú breyting gerð að korta-
útgefendur gera örar upp
við færsluhirða en áður. Í
kjölfar reglusetningarinn-
ar breyttu innlánsstofn-
anir uppgjörsaðferðum
sínum við kreditkorta-
fyrirtæki þannig að dag-
legar kreditkortaúttektir
viðskiptavina voru færðar
sem yfirdráttarlán. Yfir-
dráttarlán viðskiptavinar hlaðast
þannig upp samhliða kortanotk-
un þar til reikningur hefur verið
greiddur. Hin mikla aukning sem
varð á yfirdráttarlánum til heimila
undir lok árs 2009, um 20,3 ma.kr.,
er nánast að öllu leyti afleiðing þess-
arar bókhaldslegu endurflokkunar
á uppgjöri kortaviðskipta og er þar
með ekki raunveruleg aukning.
Þróun yfirdráttarlána hefur einn-
ig litast af sameiningu fjármála-
fyrirtækja. Þannig jukust lánin við
sameiningu Íslandsbanka hf. og
Byrs hf. vegna mismunandi aðferða
við flokkun útlána sem þessi fjár-
málafyrirtæki beittu. Að auki voru
greiðslukortaskuldir endurflokk-
aðar sem yfirdráttarlán við sam-
einingu Kreditkorta hf. og Íslands-
banka hf. á vormánuðum 2012.
Þróun yfirdráttarlána að teknu
tilliti til endurflokkana
Að teknu tilliti til ofangreindra end-
urflokkana er raunveruleg þróun
yfirdráttarlána talsvert frábrugðin
þeim tölum sem koma beint upp úr
bókhaldinu. Í stað tæplega 37 ma.kr.
aukningar á meðalstöðu stofns yfir-
dráttarlána innlánsstofnana hefur
stofninn aukist um 10,5 ma.kr. frá
2009 til 2013. Að teknu tilliti til
verðlagsbreytinga er aukningin
hins vegar tæplega 1 ma.kr. eða um
1,4%. Á sama tímabili hefur einka-
neysla landsmanna aukist um 196
ma.kr. að nafnvirði en rúmlega 45
ma.kr. að raunvirði.¹
Bókhaldsleg endurflokkun skýr-
ir þar með langstærstan hluta af
aukningu í heildarstofni yfirdrátt-
arlána innlánsstofnana til heimila
á undanförnum árum. Raunveruleg
breyting lánanna er mun minni og
eingöngu brot af vexti einkaneysl-
unnar. Að halda því fram að einka-
neysla landsmanna undanfarin
ár hafi að stórum hluta verið fjár-
mögnuð með yfirdrætti stenst því
ekki skoðun.
¹Áætlun Seðlabankans fyrir 4. árs-
fjórðung 2013.
Umfjöllun um yfi rdráttarlán heimila á villigötum
FJÁRMÁL
Kristófer
Gunnlaugsson
hagfræðingur
á hagfræði- og
peningastefnusviði
Seðlabankans
150.000
120.000
90.000
60.000
30.000
2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013
➜ Bókfærður stofn yfirdráttarlána innláns-
stofnana til heimila á föstu verðlagi
Yfirdráttarlán
Yfirdráttarlán– leiðrétt fyrir endurflokkunum
Fasta er töfraorð í samtím-
anum. Allt árið er fastað til
að koma skikki á líkams-
þyngd, blóðsykur og mitt-
ismál. Sum okkar fasta á
hveiti eða sykur, á kjöt,
áfengi eða nammi. Mark-
miðið er að hnika hegðun
og venjum sem gera okkur
ekki gott.
Fastan á sér trúarlegar
rætur. Við lesum um föst-
ur í Gamla og Nýja testa-
mentinu. Jesús fastaði í
fjörutíu daga í eyðimörk-
inni og kirkjan heldur
föstu í aðdraganda jóla og
páska. Múslímar fasta frá
sólarupprás til sólarlags
í Ramadanmánuði. Mark-
mið hinnar trúarlegu föstu
er að rækta andann og
efla trúræknina með því
að leggja líkamlegar þarfir eða
hvatir til hliðar.
Aðferðafræði föstunnar virkar
líka í öðru samhengi og þarf
ekki að takmarkast við að halda
sig frá mat. Við getum fastað til
góðs fyrir samfélagið okkar hér
og nú, með því að leggja af hegð-
un og venjur sem draga okkur öll
niður.
Óvægin orð, illt umtal og upp-
nefni eitra andrúmsloft og menga
sameiginleg rými okkar. Sam-
hengi slíkra orða getur verið
pólitískt eða persónulegt, þau eru
sögð í fúlustu alvöru eða undir
formerkjum húmors.
Óháð samhenginu er
slík umræða íþyngj-
andi. Hún getur orðið
eins og illkynja æxli
þegar hún grefur sig inn í þjóð-
arlíkamann.
Hún stendur í vegi fyrir því að
við þroskumst sem einstakling-
ar og samfélag og getum orðið
besta útgáfan af okkur sjálfum. Á
þessari föstu skulum við fasta á
stóryrtar yfirlýsingar um annað
fólk, hvort sem er í persónuleg-
um samskiptum, á ræðustóli, í
fjölmiðlum eða á netinu. Mark-
miðið með föstu er nefnilega að
verða betri manneskja í betra
samfélagi. Föstum á stóru orðin
og sjáum hvort við njótum ekki
öll góðs af.
Fastað á stóru orðin
➜Bókhaldsleg endurfl okkun skýrir þar með langstærstan
hluta af aukningu í heildarstofni yfi rdráttarlána innláns-
stofnana til heimila á undanförnum árum. Raunveruleg
breyting lánanna er mun minni og eingöngu brot af vexti
einkaneyslunnar. Að halda því fram að einkaneysla lands-
manna undanfarin ár hafi að stórum hluta verið fjármögn-
uð með yfi rdrætti stenst því ekki skoðun.
➜ Við getum fastað
til góðs fyrir sam-
félagið okkar hér
og nú, með því að
leggja af hegðun og
venjur sem draga
okkur öll niður.
SAMFÉLAG
Árni Svanur
Daníelsson
Kristín Þórunn
Tómasdóttir
prestar
Save the Children á Íslandi
Aðalfundur N1 hf. verður haldinn fimmtudaginn 27. mars 2014 klukkan 16:00
á Hilton Reykjavík Nordica.
Dagskrá fundarins:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Skýrsla forstjóra og ársreikningur kynntur.
3. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár og tekin ákvörðun um
hvernig fara skuli með hagnað félagsins.
4. Ákvörðun tekin um greiðslu arðs vegna rekstrarársins 2013.
5. Stjórnarkjör.
6. Kjör endurskoðanda eða endurskoðunarfirma.
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar.
8. Tillaga að starfskjarastefnu félagsins.
9. Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum.
10. Önnur mál löglega upp borin.
Tillögur:
A) Ársreikningur (liður 3)
Stjórn leggur til að ársreikningur fyrir árið 2013 verði samþykktur.
B) Arðgreiðsla (liður 4)
Stjórn leggur til að arður verði greiddur til hluthafa að fjárhæð kr. 1.650.000.000 vegna
rekstrarársins 2013 og fyrri ára, eða kr. 1,65 fyrir hverja eina krónu af nafnverði hlutafjár
í félaginu. Arðurinn verður greiddur til hluthafa 28. apríl 2014. Síðasti viðskiptadagur
þar sem arður fylgir bréfunum er 27. mars 2014 og arðleysisdagur því 28. mars 2014.
Arðsréttindadagur er 1. apríl 2014, sem þýðir að arður greiðist þeim sem skráðir eru í
hlutaskrá N1 hf. hjá Verðbréfaskráningu Íslands í lok dags 1. apríl 2014.
C) Kjör endurskoðanda (liður 6)
Stjórn leggur til að endurskoðunarfirmað Ernst & Young sjái áfram um endurskoðun á
ársreikningi félagsins vegna rekstrarársins 2014.
D) Þóknun til stjórnar (liður 7)
Stjórn leggur til að þóknun til stjórnarmanna, varastjórnar og undirnefnda stjórnar
verði óbreytt frá fyrra ári.
E) Starfskjarastefna (liður 8)
Stjórn leggur til að starfskjarastefna frá fyrra ári verði óbreytt.
F) Kaup á eigin bréfum (liður 9)
Stjórn leggur til að félagið fái heimild til kaupa á eigin hlutum allt að 10% af heildar-
hlutafé félagsins í samræmi við 55 gr. hlutafélagalaga. Kaupverð skal vera á gengi sem
ekki er hærra en 10% yfir og ekki lægra en 10% undir skráðu meðalgengi hlutabréfa
félagsins tveimur vikum á undan kaupunum. Heimildin standi til fimm ára.
Aðrar upplýsingar:
Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir aðalfund verður að finna á vefsíðu félagsins
www.n1.is/fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í
höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9:00-16:00.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Samkvæmt 63. gr. a.
hlutafélagalaga nr. 2/1995 ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega með minnst
fimm sólarhringa fyrirvara fyrir aðalfund, eða fyrir kl. 16:00 laugardaginn 22. mars
2014. Framboðum skal skila á skrifstofu N1 hf., Dalvegi 10-14, Kópavogi eða á netfangið
hluthafar@n1.is. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en
tveimur dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 15:30
á aðalfundardegi.
Stjórn N1 hf.
Aðalfundur N1 hf.