Fréttablaðið - 06.03.2014, Qupperneq 28
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
TRAUSTA JÓNSSONAR
Þjóðbraut 1, Akranesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Akraness fyrir
ómetanlegan stuðning, umhyggju og kærleika í veikindum hans.
Elínborg Kristjánsdóttir og fjölskylda.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
STEINUNN ÞÓRLEIFSDÓTTIR
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
frá Efri-Hólum í Núpasveit,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar að morgni sunnudagsins 2. mars
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 11. mars kl. 13.00.
Hulda Bjarnadóttir Jóhann Geirdal
Guðjón Þórhallsson Guðveig Sigurðardóttir
Lárus B. Þórhallsson Hrönn Gestsdóttir
Magnea Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma,
ÓLÖF COOPER
Gullsmára 7, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 26. febrúar 2014. Útför hennar fer fram frá
Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 7. mars 2014 kl. 13.00.
Gylfi Einarsson
Margrét Björnsdóttir
Konráð Gylfason Anna María Harðardóttir
Margrét Gylfadóttir Ólafur Sveinsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
HERVÖR HÓLMJÁRN
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
sunnudaginn 2. mars. Útförin fer fram í
kyrrþey. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu
er bent á Líf styrktarfélag, s. 696 4600.
Hildur Helgadóttir, Hörður Helgi Helgason, Elsa Björk
Valsdóttir, Eva Bjarnadóttir, Styrmir Goðason, Snorri
Örn Arnarson, Helga Harðardóttir, Bragi Styrmisson og
bræður hinnar látnu.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN PÁLÍNA GÍSLADÓTTIR
Hólabergi 84,
andaðist í faðmi fjölskyldunnar 19. febrúar sl.
á líknardeild LHS í Kópavogi. Útför hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar
þakkir til starfsmanna Karitas heimahjúkrunar
og líknardeildar LHS í Kópavogi í veikindum hennar.
Sérstakar þakkir til séra Guðlaugar Helgu Ásgeirsdóttur.
Eyþór Sölvi Jónsson
Kjartan Eyþórsson
Kolbrún Eyþórsdóttir
Hanna María Eyþórsdóttir
Svanur Þór Eyþórsson
tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
MATTHÍAS BJARNASON
fyrrv. alþingismaður og ráðherra,
Lómasölum 16, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 28. febrúar. Jarðarförin fer fram
frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 11. mars kl. 15.00.
Auður Matthíasdóttir Kristinn Vilhelmsson
Hinrik Matthíasson Steinunn Ósk Óskarsdóttir
Matthías Kristinsson Liv Anna Gunnell
Matthías Hinriksson Kristín Dögg Guðmundsdóttir
Sigrún Hanna Hinriksdóttir Kenneth Kure Hansen
Kristín Petrína Hinriksdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐFINNA HULDA JÓNSDÓTTIR
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
2. mars sl., verður jarðsungin frá Árbæjar-
kirkju mánudaginn 10. mars kl. 13.00.
Jóhannes Kristinsson
Kristinn Jóhannesson Brynja Pála Helgadóttir
Steingrímur Jóhannesson
Sóldís Dröfn Kristinsdóttir Fanney Rán Arnarsdóttir
Kristinn Andri Kristinsson Jóhannes Smári Kristinsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og vinur,
KARL EIRÍKSSON
fv. forstjóri,
lést fimmtudaginn 20. febrúar sl. Jarðarför
mun fara fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
7. mars kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á ABC barnahjálp eða Skógræktarfélag Reykjavíkur.
Eiríkur Karlsson Ragnheiður Pétursdóttir
Þóra Karlsdóttir
Bergrós Hauksdóttir
Fjóla Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR OLIVERSDÓTTIR
frá Hellissandi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi miðviku-
daginn 26. febrúar. Jarðarförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 7. mars nk. kl. 13.00.
Lovísa Árnadóttir Viðar Pétursson
Finnur Árnason Anna María Urbancic
Ingibjörg Árnadóttir Jónas Þór Guðmundsson
Sigríður Erla, Pétur, Davíð, Finnur Árni, Árni Grétar,
Ebba Katrín, Oliver Páll, Viktor Pétur, Guðmundur Már,
Lovísa Margrét, Stefán Árni og Viðar Breki.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma, og langalangamma,
SIGRÍÐUR JENSDÓTTIR
frá Kalastöðum,
lést á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili,
þann 23. febrúar síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki Höfða fyrir góða umönnun og umhyggju.
Þökkum auðsýnda samúð.
Ásgerður Ásta Magnúsdóttir Ólafur Magnússon
Þorbjörg Unnur Magnúsdóttir Karl Sigurðsson
Þorvaldur Ingi Magnússon Brynja Þorbjörnsdóttir
Soffía Sóley Magnúsdóttir Kristinn L. Aðalbjörnsson
Ásta Jenný Magnúsdóttir Jón Haukur Hauksson
ömmubörn og fjölskyldur.
INGIBJÖRG TÓMASDÓTTIR
Kópavogsbraut 1A í Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. mars sl.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Birna Bjarnadóttir Haukur Ingibergsson
Hildur Halldóra Bjarnadóttir Þórður Elefsen
Bjarni Tómas Jónsson Lilja B. Arnardóttir
Ástkær eiginmaður minn, yndislegi pabbi
okkar, sonur, bróðir, mágur og vinur,
TEITUR BIRGISSON
lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu,
Stóragerði 14, Akureyri, að kvöldi 1. mars.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 14. mars kl. 13.30.
Ruth Viðarsdóttir
Andri Leó Teitsson Birta María Guðmundsdóttir
Almar Teitsson
Telma Rut Teitsdóttir
Alma K. Möller Birgir Björn Svavarsson
Eygló Birgisdóttir Hjörtur Sigurðsson
Gígja Birgisdóttir Jerome Wigny
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS VILLI VILHJÁLMSSON
sem lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, Akranesi, föstudaginn 28. febrúar,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju
mánudaginn 10. mars kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunar-
og dvalarheimilið Höfða, Akranesi.
Sigrún Jóhannsdóttir
Benedikt Magnússon Bryndís Ólafsdóttir
Jóhann Magnússon Ingunn Jónsdóttir
Guðrún Magnúsdóttir Gauti Halldórsson
Vilhjálmur Magnússon Ólöf Helga Þorvaldsdóttir Linnet
barnabörn og barnabarnabörn.
Fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan á Íslandi
frá stofnun lýðveldis fór fram þennan
dag árið 2010. Þá var kosið um svonefnd
Icesave-lög, sem forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, hafði synjað stað-
festingar. Samningurinn var felldur með
miklum meirihluta í kosningunum.
Við atkvæðagreiðsluna voru alls
229.926 á kjörskrá eða 72,3 prósent
landsmanna. Af þeim greiddu 144.231
atkvæði eða 62,7 prósent kjósenda.
Kosningaþátttaka karla og kvenna var
mjög svipuð, eða 62,9 prósent hjá
körlum og 62,6 prósent hjá konum.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni voru
greidd atkvæði um það hvort lög nr.
1/2010 ættu að halda gildi sínu eða
falla úr gildi. Úrslit kosninganna urðu
þau að gild atkvæði voru 136.991, auðir
seðlar 6.744 og aðrir ógildir seðlar 496.
Gild atkvæði féllu þannig að já sögðu
2.599 kjósendur eða 1,9 prósent en nei
sögðu 134.392 eða 98,1 prósent. Lög nr.
1/2010 voru þar með felld úr gildi.
Icesave var vörumerki innlánsreikn-
inga á netinu sem Landsbanki Íslands
bauð í Bretlandi og í Hollandi. Þessi
þjónusta stóð viðskiptavinum í þessum
löndum til boða þar til í október 2008,
þegar íslenska bankakerfið hrundi
í kjölfar efnahagslegrar lægðar sem
staðið hafði frá byrjun árs. Alls voru
viðskiptavinir þessarar þjónustu um
350 þúsund talsins, nokkru fleiri en
íslenska þjóðin. Við fall Landsbankans
urðu reikningarnir óaðgengilegir en
stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi
tóku þá ákvörðun að greiða innstæðu-
eigendum upp að þeim mörkum sem
þau höfðu áður ábyrgst vegna þarlendra
banka.
Í kjölfarið þróaðist milliríkjadeila á
milli Íslands annars vegar og Bretlands
og Hollands hins vegar um það hvort og
þá að hvaða marki Ísland bæri ábyrgð
á reikningunum og því einnig ábyrgð á
endurgreiðslu til Bretlands og Hollands.
Þegar ljóst var að samningaleiðin
var fullreynd hóf eftirlitsstofnun EFTA
undirbúning málsóknar fyrir EFTA-dóm-
stólnum vegna meintra brota Íslands
á skyldum sínum samkvæmt samningi
um evrópska efnahagssvæðið. Dómur
féll 28. janúar 2013 með því að Ísland
var sýknað af öllum liðum málsins.
ÞETTA GERÐIST 6. MARS 2010
Fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan á Íslandi