Fréttablaðið - 06.03.2014, Page 34
FÓLK|TÍSKA
Ég hef sennilega saumað hátt í 60 búninga, fyrir ýmis félög. Á sambandsmóti á ég oft í kringum 18 búninga. Þá er sérstaklega gaman að fylgjast með keppninni,“
segir Kristín Þöll Þórsdóttir, klæðskeri á Akureyri og höf-
undur margra búninga sem íslenskar skautadrottningar
klæðast á ísnum. Tvær dætur Kristínar, Hrafnhildur Ósk
og Kolfinna Ýr, æfa og keppa á skautum með Skautafélagi
Akureyrar og hefur Kristín Þöll saumað búningana á þær.
Hún segir saumaskapinn á skautabúningum ólíkan öðru.
„Sá fyrsti var kannski ekki beysinn hjá mér en ég
hef lært mikið á þessum átta árum. Þetta er allt önnur
sníðagerð og ég þurfti að fá tilfinninguna fyrir þessu þó
ég sé menntuð í klæðskurði. Þær eru að fetta sig og bretta
á ísnum, stökkva og snúast í hringi og búningurinn þarf
að falla rétt. Saumaskapurinn getur líka verið snúinn ef
búningarnir eru mikið skreyttir. Oft þarf ég að renna þeim
saman, láta máta og koma þá öllu á rétta staði, taka þá
svo sundur og byrja að skreyta og setja svo allt saman aft-
ur. Þetta er mjög skemmtileg vinna og ég reyni að toppa
sjálfa mig með hverjum búningi,“ segir Kristín Þöll sposk
og bætir við að oft séu búningarnir mjög skrautlegir.
„Ætli ég sé ekki að nota um það bil tólf hundruð
Swarovski-steina á einn búning. Hrafnhildur Ósk er á
listnámsbraut í VMA og teiknar oft fyrir mig munstrin.
Búningurinn þarf að ganga upp í samspili við tónlistina og
prógrammið sjálft. Það þýðir ekkert að vera í trúðabún-
ingi við dramatískt lag. Þetta er góð samvinna hjá okkur.“
Kristín Þöll er með vinnustofu í Listagili á Akureyri og
einnig er hún verslunarstjóri í Vogue. „Ég er nær eingöngu
með sérsaum, skautakjóla, fermingar- og brúðarkjóla.
■ heida@365.is
TÓLF HUNDRUÐ
SWAROVSKI-STEINAR
SKAUTABÚNINGAR Kristín Þöll Þórsdóttir klæðskeri hefur saumað marga af
þeim skautabúningum sem sjást í keppni hér á landi. Dætur hennar æfa og
keppa með Skautafélagi Akureyrar og aðstoða gjarnan við búningahönnunina.
ÖÐRUVÍSI SNÍÐAGERÐ Kristín Þöll Þórsdóttir, klæðskeri
og verslunarstjóri í Vogue á Akureyri, hefur saumað marga
af þeim skautabúningum sem íslenskar skautadrottningar
klæðast á ísnum. MYND/GVA
SKRAUTLEGUR HÓPUR „Á sambandsmóti á ég oft í kringum 18 búninga. Þá er sérstaklega gaman að fylgjast með keppninni.“
MYND/ÚR EINKASAFNI
Jared Leto er leikari sem margir
hafa fylgst með gegnum árin en
hann varð fyrst frægur fyrir að
leika hjartaknúsarann Jordan Catal-
ano í vinsælu sjónvarpsþáttaröð-
inni My So-Called Life sem leikkon-
an Claire Danes lék aðalhlutverkið
í. Eftir að Leto hlaut Óskarsverð-
launin um nýliðna helgi vita hins
vegar mun fleiri en áður hver hann
er. Verðlaunin hlaut hann fyrir
aukahlutverk í kvikmyndinni Dallas
Buyers Club þar sem hann túlkaði
konu í karllíkama.
Leto er þekktur fyrir að lifa sig
inn í þau hlutverk sem hann tekur
að sér og helga sig þeim algjör-
lega meðan á upptökum
stendur. Hann létti sig
um fimmtán kíló fyrir
hlutverkið í Dallas
Buyers Club og segir
þá upplifun mjög
gagnlega. „Að léttast
svona breytir því
hvernig þú hugsar,
hvernig þú andar,
hvernig þér líður og því
hvernig fólk kemur fram við
þig. Þannig setur maður sjálfum sér
ákveðið markmið þar sem maður
segir: Ókei, ég er búinn að gera
þetta þannig að nú verð ég að gera
allt annað vel líka.“
Þakkarræða Jareds á
Óskarnum vakti athygli
og sérstaklega það
að hann lýsti yfir
stuðningi við mót-
mælendur í Úkraínu
og Venesúela. Dag-
inn eftir verðlauna-
hátíðina mætti hann
svo í spjallþátt Ellenar
DeGeneres þar sem hann
meðal annars slúðraði um
fræga fólkið í Hollywood og sagði
að hápunktur kvöldsins hefði verið
að sjá mömmu sína, sem fylgdi
honum á Óskarinn, dansa við
Madonnu í eftirpartíinu.
HELGAR SIG RULLUNNI
Jared Leto sagði hápunkt Óskarsverðlaunahátíðarinnar vera þegar mamma
hans dansaði við Madonnu.
JARED LETO
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Nýjar vörur í hverri viku
stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Superstretch buxurnar
komnar aftur
kr. 1.995
Benetton Smáralind – Benetton Glerártorgi
Sverrir Birgir Sverrisson
Sími 512 5432
sverrirb@365.is
Kolbeinn Kolbeinsson
Sími 512 5447
kolli@365.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Sérblaðið Fermingar kemur út Fimmtudaginn 13.mars
FERMINGAR