Fréttablaðið - 06.03.2014, Síða 35
| FÓLK | 7
Chanel heldur áfram að sýna strigaskó í margs konar útfærslum á sýn-
ingum sínum fyrir haust og vetur 2014–2015. Í þetta skiptið eru það
hnéháir uppreimaðir strigaskór, líkt og stígvél. Á þriðjudag var Chanel
með sýningu í Grand Palais í París og þar mátti sjá margt frægt fólk
eins og Rihönnu og Keiru Knightley sem báðar voru klæddar í Chanel-
fatnað frá toppi til táar. Á tískuvikunni í janúar voru allar fyrirsætur frá
Chanel í skrautlegum strigaskóm en nú hafa þeir breyst í stígvél.
Strigastígvélin eru bæði í ólíkum litum og efnum, sum úr týpískum
Chanel-efnum. Þarna mátti sjá bleik stígvél, græn, grá, svört og vín-
rauð. Við stígvélin voru hnésíð pils og dragsíðar kápur.
Karl Lagerfeld leggur áherslu á þægilega skó, líkt og fyrirrennari
hans, Coco Chanel, gerði. Þægilegheit fyrir nútímakonur sem alltaf eru
á fullu.
UPPREIMAÐIR STRIGASKÓR HJÁ CHANEL
NÝJU SKÓRNIR
FRÁ CHANEL
Svolítið öðruvísi
strigaskór en þeir
verða í mörgum
litum næsta haust
hjá Chanel.
Draumavaralitur
úr vaxlitum barna
Það eru eflaust einhverjir sem
trúa því ekki en ein besta leiðin
til að uppfæra varalitasafnið
eða jafnvel bæta við það er að
búa til eigin varaliti úr vax-
litum.
Það er mjög einföld og um
leið sniðug aðferð til að endur-
nýta gamla liti sem börnin eru
hætt að nota. Þetta hljómar
ef til vill eitthvað skringilega í
eyrum sumra en í flestum vara-
litum eru alls kyns aukaefni
sem eru ekki í vaxlitum. Þeir
eru búnir til fyrir börn og eru
eiturefnafríir. Með því að búa
til eigin varaliti eru öll inni-
haldsefni þekkt og auk þess er
auðvelt að stjórna því hvaða
litur verður til.
Það sem þarf í varalitargerð-
ina er einn vaxlitur (eða blanda
af fleirum en þá þarf magnið að
jafngilda einum lit), ein teskeið
af kókosolíu og lítil krukka með
loki. Einnig má bæta í þetta til
dæmis glimmeri eða bragðefn-
um eins og vanillu eða möndlu.
Liturinn og olían eru brædd
saman yfir vatnsbaði á vægum
hita. Ef glimmer eða bragðefni
eru notuð er þeim líka bætt út
í. Þegar allt hefur blandast vel
saman er litnum hellt í krukk-
una og hann látinn kólna.
Svo er hægt að leika sér
endalaust með liti og áferð. Ef
liturinn er of þurr má blanda
meiri olíu við hann og öfugt
ef hann er of glansandi. Nú
er bara um að gera að leita
að gömlu litunum og skella í
draumavaralitinn.
■ NÝTT TREND?
Leikkonan Keira Knightley
vakti mikla athygli þegar hún
mætti á Chanel-tískusýninguna
á tískuvikunni í París á þriðju-
dag í fötum sem undirstrikuðu
ótrúlega grannt mitti hennar.
Keira var klædd í hvítt pils
og víðan topp í stíl.
Undir var hún í níð-
þröngum svörtum
aðhaldsbol sem
glitti í á milli.
Hann sýndi
örmjótt mittið
sem virkaði enn
mjórra á móti
víðum efri og
neðri parti.
Leikkonan
hefur ætíð
verið grann-
vaxin og
sjálfsagt hefur
ekkert breyst
hvað það snertir
en hér gengur
hún skrefi lengra
í að undirstrika
vöxtinn.
UNDIRSTRIKAR
GRANNT MITTIÐ
Levi´s Smáralind – Levi´s Kringlunni - Levi´s Glerártorgi
20%
af öllum Revel buxum
Tilboð gildir
til sunnudags