Fréttablaðið - 06.03.2014, Side 58
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 50
KÖRFUBOLTI Craig Pedersen, 48 ára Kanadamaður, mun þjálfa íslenska karlalandsliðið
í körfubolta í sumar en hann tekur við liðinu af Svíanum Peter Öqvist.
Aðstoðarmenn Pedersens verða þeir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari toppliðs KR í
Dominos-deildinni, og Arnar Guðjónsson sem er einnig aðstoðarmaður Pedersens hjá
danska liðinu Svendborg Rabbits. Finnur mun einnig þjálfa 20 ára landslið Íslands.
Þeir Craig Pedersen og Arnar gerðu Svendborg Rabbits að dönskum bikarmeisturum á
dögunum eftir magnaðan endurkomusigur á Bakken Bears sem var meðal annars 23
stigum yfir í hálfleik. Strákarnir hans Craigs gerðu hið ómögulega í seinni hálfleiknum
á móti toppliði deildarinnar, unnu hann 57-31 og þar með leikinn 87-84.
Það var í þriðja sinn sem Pedersen gerir Svendborg-liðið að dönskum bikarmeisturum
(líka 2007 og 2011) en liðið vann danska meistaratitilinn undir hans stjórn vorið
2001. Liðið hefur hins vegar tapað í lokaúrslitunum undanfarin þrjú ár og alls sex
sinnum síðan Pedersen tók við liðinu 2003.
Íslenska liðið tekur þátt í undankeppni Evrópukeppninnar í ágúst þar sem liðið er í
riðli með Bretlandi og Bosníu. Liðið mun hefja æfingar í júlí og mun leika æfingaleiki
í lok júlímánaðar áður en Bretar mæta í Laugardalshöllina 10. ágúst. - óój
Þjálfari dönsku bikarmeistaranna tekur við landsliðinu
FJÓRIR TITLAR Craig Pedersen
hefur gert Svendborg Rabbits
að dönskum meisturum (2010)
og bikarmeisturum (2007, 2011,
2013). MYND/LINDA SÖRENSEN
SPORT
Nýkrýndir bikarmeistarar Hauka fá stórt verkefni í kvöld í
fyrsta leik sínum eftir bikarsigurinn í Höllinni þegar þeir taka
á móti nágrönnum sínum í FH í Schenker-höllinni á Ásvöllum í
16. umferð Olís-deildar karla.
Haukar hafa unnið alla fjóra leiki sína á móti FH í vetur og
vinni þeir einnig í kvöld verður það í fyrsta sinn síðan
tímabilið 2005-2006 þar sem annað Hafnarfjarðarliðið
vinnur alla deildarleiki þessara erkifjenda á sama
tímabilinu. FH hefur aftur á móti haft betur í deildar-
leikjum Hafnarfjarðarliðanna undanfarin þrjú tímabil
(2-1 í öll skiptin). Síðasta Hafnarfjarðar-„sópið“ var þegar
Haukar unnu báða deildarleiki liðanna leiktíðina 2005-
2006. Leikur Hauka og FH hefst klukkan 20.00 en í kvöld
mætast einnig Akureyri-ÍR (19.00), ÍBV-Fram (19.30) og
Valur-HK (20.15).
Fyrsta Hafnarfj arðar-„sópið“ í átta ár?
KÖRFUBOLTI „Það er ekkert gaman að vera í
vinnunni á hverjum einasta degi með í magan-
um út af peningamálum,“ segir Hannes S. Jóns-
son, formaður og framkvæmdastjóri Körfu-
knattleikssambands Íslands, en samband hans
skuldar í dag um 20 milljónir króna.
Reksturinn er erfiður og KKÍ hefur aðeins
bolmagn til þess að halda úti þremur stöðugild-
um. Það er ekki mikið fyrir stórt samband eins
og KKÍ.
„Hér þyrftu að vera að lágmarki fimm til sex
stöðugildi svo eðlilegt væri. Ég veit að sama
staða er uppi hjá fleiri sérsamböndum. Stærri
sérsamböndin eru undirmönnuð og það er
mikið álag allan sólarhringinn á öllum starfs-
mönnum.“
Formaðurinn hefur í gegnum tíðina verið
ötull við að gagnrýna hvernig staðið er að
íþróttamálum á Íslandi. Hann segir stjórnvöld
alls ekki styðja nógu vel við bakið á íslensku
íþróttalífi.
Betra á hinum Norðurlöndunum
„Ríkisvaldið sýnir íþróttahreyfingunni ekki
nægan skilning. Bæði hvað varðar að reka sér-
samböndin sem og að reka afreksstarf. Við
þurfum að sækja peninga til félaganna til að
standa undir tekjum starfsmanna. Við fáum
ríkisstyrk upp á 3 milljónir króna á ári til þess
að reka skrifstofu. Þær duga engan veginn til
hjá eins stóru sambandi og okkar.“
Hannes segir vinsælt á Íslandi að bera sig
saman við nágrannaþjóðirnar. Hann hefur
kynnt sér hvernig staðið er að málum þar.
„Þar er ríkisvaldið að setja mun meira í pró-
sentum talið inn í samböndin en á Íslandi.“
Þessi barátta Hannesar og íþróttaforkólfa á
Íslandi er langt frá því að vera ný af nálinni
og árangurinn undanfarin ár hefur ekki verið
mikill. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands,
ÍSÍ, semur við ríkisvaldið en hvernig finnst
Hannesi ÍSÍ standa sig í þeirri baráttu?
„Ég held að allir séu að gera sitt besta. Mér
persónulega finnst að ÍSÍ mætti standa sig
betur í þessum málum. Að vera meira þrýstiafl
fyrir okkur hin. Það hefur verið rætt hér inn-
andyra að það þurfi að beita ríkisvaldið meiri
þrýstingi,“ segir Hannes en er hann bjartsýnn
á að eitthvað breytist í náinni framtíð?
„Nei, það er ég ekki. Ég er svartsýnn
því það virðist alveg vera sama hvaða
stjórnmálaflokkar eru við völd í þessu
landi. Það er alltaf lofað öllu fögru og allir
stjórnmálamenn tala um hvað íþróttir skipti
miklu máli á góðri stundu. Þegar á hólminn er
komið hafa allir stjórnmálamenn, sama í hvaða
flokki þeir eru, ekki kjarkinn til þess að fara í
þetta af fullu afli.“
Vantar miklu meiri pening
Síðustu tvær ríkisstjórnir hafa komið með smá
hækkanir í íþróttastarfið en Hannes segir að
þær séu allt of litlar og enn sé langt í land.
„Þetta eru litlar hækkanir í heildina. Aðeins
nokkrar milljónir á nokkrum árum. Það vantar
miklu meira fjármagn. Þá segja margir að það
vanti líka pening í hitt og þetta. Það er aftur
á móti staðreynd að íþróttir eru ein besta for-
vörnin. Við munum hafa færra fólk sem þarf
að fara í gegnum heilbrigðiskerfið ef við getum
haft íþróttastarfið enn öflugra en það er.“
Ísland hefur framleitt marga afreksmenn
í gegnum tíðina og Hannes segir það vera
ótrúlegt miðað við þann litla stuðning sem
afreksfólkið og íþróttastarfið fær.
„Það er fólk að vinna ótrúlegt starf út um
allt land við lítinn skilning stjórnmálamanna
nema þegar árangur næst. Þetta er að mörgu
leyti brandari. Afrekssjóður þarf að vera að
lágmarki 200 til 250 milljónir króna. Ríkis-
valdið kemur aftur á móti með 70 milljónir,“
segir Hannes og bendir á að afreksstarfið skili
miklum tekjum til landsins. Íþróttafólk komi
á mót til Íslands. Fljúgi með íslenskum flug-
félögum, gisti á hótelum, kaupi mat og varning.
„Afrekssjóðurinn þyrfti með réttu að vera
í kringum 400 milljónir en 200 er algjört lág-
mark. Það er magnað að við getum framleitt
afreksmenn yfirhöfuð miðað við þennan litla
stuðning. Fólk úti í heimi skilur ekki hvernig
við förum að þessu.“ henry@frettabladid.is
ÍSÍ mætti standa sig betur
Formaður Körfuknattleikssambands Íslands, Hannes S. Jónsson, gagnrýnir stjórnvöld fyrir að sýna íþrótta-
starfi nu á Íslandi lítinn stuðning. Hann gagnrýnir einnig ÍSÍ fyrir að beita stjórnvöld ekki nægum þrýstingi.
ÞETTA ER BRANDARI Hannes
segir að það vanti rúmar 300
milljónir króna í afrekssjóð ÍSÍ
svo hægt sé að styðja almenni-
lega við íslenskt afreksfólk.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI KR-ingar geta tryggt
sér deildarmeistaratitilinn í
Dominos-deild karla í kvöld
þegar þeir fá Skallagrím í
heimsókn í DHL-höllina.
KR er með fjögurra stiga for-
skot á Keflavík þegar sex stig eru
eftir í pottinum og verður alltaf
ofar á innbyrðisleikjum.
Á sama tíma tekur Grindavík
(3. sæti) á móti Keflavík (2. sæti)
þar sem Keflvíkingar tryggja sér
annað sætið með sigri. Grindavík
er 4 stigum á eftir Keflavík en
þarf að vinna með 15 stigum til að
vera með betri innbyrðisárangur.
ÍR tekur á móti Njarðvík í
þriðja leik kvöldsins þar sem
Nigel Moore mætir sínum gömlu
félögum. Njarðvíkingar hafa
tapað þremur leikjum í röð í
deildinni og eiga á hættu að
missa heimavallarrétt í fyrstu
umferð. ÍR er í baráttu við
Stjörnuna og Snæfell um tvö laus
sæti í úrslitakeppninni en öll liðin
eru með 16 stig. - óój
Klára KR-ingar
titilinn í kvöld?
ÞRENNA ÞRIÐJA LEIKINN Í RÖÐ? KR-
ingurinn Pavel Ermolinskij hefur verið
öflugur undanfarið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Vináttulandsleikir
á erlendri grundu
- UNDIR STJÓRN LARS LAGERBÄCK
24. febrúar 2012 - Japan 1-3 tap
29. febrúar 2012 - Svartfjallaland 1-2 tap
27. maí 2012 - Frakkland 2-3 tap
30. maí 2012 - Svíþjóð 2-3 tap
14. nóvember 2012 - Andorra 2-0 sigur
6. febrúar 2013 - Rússland 0-2 tap
21. janúar 2014 - Svíþjóð 0-2 tap
5. mars 2014 - Wales 1-3 tap
FÓTBOLTI Íslenska 21 árs
landsliðið kemur stigalaust heim
frá Kasakstan eftir 2-3 tap en
íslenska liðið fékk úrslitamarkið
á sig á 89. mín. og þá manni fleiri.
Kasakar komust í 2-0 á fyrstu
17 mínútunum en Hólmbert
Friðjónsson (60. mín.) og Hjörtur
Hermannsson (67. mín.) jöfnuðu
metin. Mark var síðan dæmt
af Hólmberti áður en Kasakar
skoruðu sigurmarkið í blálokin.
Íslenska liðið vann fjóra fyrstu
leiki sína í riðlinum en
hefur nú tapað tveimur í
röð. Liðið hefur þremur
stigum meira en Kasakst-
an og á leik inni og á því
enn mjög góða mögu-
leika á að ná inn í
umspilið um sæti á
EM. - óój
Grátlegt tap
í Kasakstan
HÓLMBERT FRIÐJÓNS
FÓTBOLTI „Tilfinningarnar eru
blendnar eftir þennan leik,“
sagði Freyr Alexandersson,
landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta,
við Fréttablaðið eftir 5-0 tap gegn
Evrópumeisturum Þýskalands
í fyrsta leik liðsins á Algarve-
mótinu í gær.
„Maður er svekktur með 5-0 tap,
sérstaklega þar sem við vorum
3-0 undir í hálfleik. En skipu-
lagið sem lagt var upp með tókst
vel. Leikmenn voru kraftmiklir
og ákveðnir í návígi eins og lagt
var upp með. Við náðum að vernda
miðjuna og miðverðina ágætlega,“
sagði Freyr.
Lagt var upp með varnarleik
gegn Þýskaland og spiluðu stúlk-
urnar lágpressu. Þrátt fyrir það
komust Evrópumeistararnir yfir
með marki Dzsenifer Marozsán á
8. mínútu. Hún bætti svo við öðru
marki fimmtán mínútum síðar og
Celia Sasic skoraði það þriðja rétt
fyrir lok fyrri hálfleiks.
„Við fengum á okkur þrjú mörk
í fjórum marktilraunum sem er
bara of mikið. Ég get samt ekk-
ert sett út á Guðbjörgu í markinu.
Þjóðverjar kláruðu færin sín bara
vel. Það voru bara barnaleg mistök
okkar sem gáfu þeim þessi færi og
þýska liðið er alltof gott. Það bara
refsar ef maður gerir svona mis-
tök,“ sagði Freyr sem ætlar að
gefa óreyndari leikmönnum tæki-
færi á mótinu og leyfa þeim að
taka út sín mistök.
„Þessi barnalegu mistök eru að
gerast í kringum nýliða og óreynd-
ari leikmenn. En við verðum bara
gefa þeim tíma til að gera sín mis-
tök. Ég var samt sem áður mjög
ánægður með frammistöðu þeirra
þrátt fyrir mistökin. Allar fóru
þær eftir skipulaginu og lögðu
sig fram. Við verðum bara passa
okkur að staldra ekki of lengi við
þetta og fara að hugsa um næsta
leik,“ sagði Freyr Alexandersson.
Ísland mætir næst Noregi á morg-
un. - tom
Refsuðu fyrir barnaleg mistök
Kvennalandsliðið tapaði stórt fyrir Evrópumeisturum Þýskalands í Algarve.
ERFITT Harpa Þorsteinsdóttir í baráttu
í leiknum í gær. MYND/KSÍ
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
tapaði 1-3 á móti Wales í vináttu-
landsleik í Cardiff í gærkvöldi.
Árið 2014 byrjar því ekki vel.
Gareth Bale, dýrasti knatt-
spyrnumaður í heimi, gerði
útslagið en hann skoraði eitt
mark sjálfur og lagði síðan upp
hin mörkin fyrir félaga sína.
Jóhann Berg Guðmundsson
jafnaði metin í 1–1 á 26. mínútu
eftir sendingu Alfreðs Finnboga-
sonar. Allt um leikinn má finna
inn á visir.is. -óój
Bale afgreiddi
íslenska liðið
FRÁBÆR Gareth Bale var illviðráðan-
legur fyrir íslenska liðið í gær. MYND/AFP