Fréttablaðið - 06.03.2014, Qupperneq 62
6. mars 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54
„Besti sjónvarpsþátturinn þessa
dagana er klárlega RuPaul‘s
Drag Race. Ég er fullkomlega háð
honum.“
Mr. Silla (Sigurlaug Gísladóttir), tónlistarkona.
BESTI
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
Hugleikur Dagsson heldur á þriðju-
daginn ásamt frænda sínum, Ara
Eldjárn, í uppistandsferðalag um
Finnland. „Þeir kalla túrinn okkar
Icelandic Comedy Invasion,“ segir
Hugleikur, en þeir Ari skemmta
í bæjunum Turku, Tampere,
Oulu, Jyväskylä, og loks í Hels-
inki. „Þetta kom til eftir að Ari og
félagar hans í Mið-Íslandi fengu
André Wickström, sem er finnsk-
ur uppistandari, sem gestauppist-
andara á sýningu hjá Mið-Íslandi.“
„Ég dró Ara og André í eftirpartí
eftir uppistand. Síðan þá höfum við
verið Facebook-vinir. Ég spurði
hann hvort það væri ekki möguleiki
á því að ég gæti verið með uppi-
stand í Finnlandi. Hann stakk upp
á að við Ari kæmum saman, en Ari
hafði farið áður til Finnlands með
uppistand. Það endaði með því að
okkur var skellt á grínhátíð í Turku
síðastliðið haust. Á þessari grín-
hátíð vöktum við svo mikla lukku
að við vorum beðnir um að koma
aftur. Þess vegna erum við að fara
í þennan túr núna. Svo förum við
enn og aftur á einhverja grínhátíð
í Finnlandi í sumar í bæ sem heitir
Kuopio,“ segir Hugleikur.
Bækur Hugleiks hafa notið mik-
illa vinsælda í Finnlandi. „Ég er
einmitt að svara hér viðtali á net-
inu við finnskan vefmiðil sem spyr
meðal annars hvort Íslendingar
og Finnar séu sálufélagar,“ segir
Hugleikur.
- ue
Frændur vinsælir í Finnlandi
Hugleikur Dagsson og Ari Eldjárn fara til Finnlands á þriðjudaginn með uppi-
stand. Þeir skemmta í fj órum bæjum í þetta sinn og fara þangað aft ur í sumar.
GRÍN Hugleikur og félagar eru byrjaðir
að skrifa nýja seríu af Hulla. „Þetta
er allt á algjöru byrjunarstigi, en það
skortir hvorki kímni né kerskni í nýja
efninu,“ segir Hugleikur.
„Við vildum rannsaka viðhorf
fólks á menntaskólaaldri til femín-
isma og niðurstöðurnar voru nett
sláandi,“ segir Egill Fannar Hall-
dórsson en hann og Viktor Sveins-
son, báðir fyrrverandi nemendur
í Menntaskólanum við Sund, unnu
rannsókn á viðhorfum ungs fólks
til femínisma sem lokakjörsviðs-
verkefni á síðasta ári.
Markmið verkefnisins var að
láta fólk kynna sér femínisma og
mynda sér sína eigin skoðun.
Þeir skiluðu niðurstöðu verkefn-
isins í formi fyrirlestra sem þeir
fluttu fyrir nokkra bekki skólans
en niðurstöðurnar voru sláandi.
Þeir lögðu rafræna könnun fyrir
tvö hundruð nemendur á mennta-
skólaaldri og kom í ljós að mikil
fáfræði var um femínisma og
jafnréttisbaráttu hjá unga fólkinu.
„Við töldum að það væri engin
fræðsla um jafnréttisbaráttu
kynjanna af viti í skólum, að
fræðslan komi aðallega frá fjöl-
miðlum og að skilaboðin séu því
oft röng. Niðurstaðan varð sú að
krakkar hafa fordóma gegn femín-
ismanum. Krökkum finnst ekki
kúl að vera femínisti því þeir fá
svo röng skilaboð í hendurnar,“
útskýrir Egill Fannar. Áður en þeir
lögðu af stað í rannsóknina kynntu
þeir sér efnið mjög vel, lásu bækur
og töluðu við góða kennara. „Ofan
á það þá hittum við sérfræðinga,
eins og Hildi Lilliendahl, við erum
svolítið að tala hennar máli,“ bætir
Egill Fannar við.
Báðir eru þeir útskrifaðir úr
MS en þó hafði skólinn samband
við þá félaga um að flytja erindi
sitt í jafnréttisviku þar fyrir
skömmu. Einnig hafði Mennta-
skólinn í Kópavogi samband við
þá og fluttu þeir erindi í jafnrétt-
isviku þar. „Við fengum frábær
viðbrögð við fyrirlestrunum. Við
sáum hvað það var mikið hlustað
á okkur, bæði nemendur og kenn-
arar voru ánægðir með þetta.“
Egil Fannar og Viktor langar
að flytja fyrirlestur sinn víðar og
telja að allt ungt fólk hafi gott af
því að fá fræðslu. „Okkar lang-
ar mikið að fara í fleiri skóla og
fræða fólk.“
Þeir félagar leggja mikið upp
úr því að gera efnið skemmtilegt
og auðskiljanlegt. „Við förum yfir
allan pakkann í fyrirlestrinum. Í
upphafi var ég alltaf meiri femín-
isti en Viktor, og má segja að hann
hafi verið akkúrat andstæðan við
mig og kallaði hann femínista til
dæmis flíspeysumömmur. Fyrir-
lesturinn er alveg dónalegur á
köflum og við erum að sjokkera.
Hins vegar hafa viðbrögðin verið
frábær.“ Þeir hafa báðir meðal
annars fengið Facebook-skilaboð
frá ánægðum nemendum.
gunnarleo@frettabladid.is
Femínismi er ekki kúl
Egill Fannar Halldórsson og Viktor Sveinsson fræða nemendur um femínisma.
Þeir unnu verkefni í framhaldsskóla um femínisma og álit nemenda á femínisma.
Í undirbúningsvinnunni hittu þeir sérfræðinga, þar á meðal Hildi Lilliendahl.
FRÆÐA FÓLK
UM FEMÍNISMA
Egill Fannar
Halldórsson og
Viktor Sveins-
son hafa mikinn
áhuga á að
fræða fólk um
femínisma og
eru báðir mikli
femínistar.
FRÉTTABLAIÐ/VALLI
➜ Ein spurning úr könnun
piltanna: Hvað er að vera
öfgafemínisti? „Við fengum
skemmtileg svör við þessari
spurningu. Þarna sýndi það
sig skýrt að margir
hafa ekki hugmynd
um hvað femín-
ismi snýst. Til að
mynda voru margir
sem skrifuðu Hildur
Lilliendahl sem svar
við þessari spurn-
ingu.“
„Ég hafði aldrei komið út fyrir Evrópu fyrr
en í janúar þegar ég fór út að skoða aðstæð-
ur,“ segir Bergur Þór Ingólfsson sem leikstýr-
ir söngleik í New York í sumar. „Fjölskyldan
kemur með mér. Þær verða allar að lifa ein-
hvern New York-draum, og ég leikhúsdraum,“
segir Bergur. „Ég hef ekki reynt að komast á
skrá hjá umboðsskrifstofu erlendis áður, en
nú fer ég að skoða það mál,“ segir Bergur, en
þetta tækifæri kom upp í hendurnar á honum
eftir að hann leikstýrði Mary Poppins. „Höf-
undurinn og framleiðandinn, Karl Pétur Jónsson,
fengu mig í þetta eftir að hafa séð Mary Poppins,“
segir Bergur. Verkefnið er fjármagnað af Mostly
Human Entertainment og Theater Mogul.
„Þetta verður sýnt í leikhúsi sem heitir Minetta
Lane og er nálægt Washington
Square. Leikmynda-
hönnuðurinn Petr
Hlousek og danshöf-
undurinn Lee Proud úr
Mary Poppins koma
með,“ segir Bergur Þór.
Leikritið verður
alheimsfrumsýning á nýju verki eftir
Ívar Pál Jónsson. „Sýningin heitir
Revolution Inside the Elbow of Ragn-
ar Agnarsson the Furniture Painter.“ Bergur
fer út um páskana að halda leikaraprufur. „Um
leið og leikárið klárast hérna í júní hoppa ég
svo upp í flugvél og fer og leikstýri þessu
þarna úti,“ segir Bergur Þór. - ue
New York-draumur í sumar
Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir eft ir Ívar Pál Jónsson söngleik í New York.
BERGUR ÞÓR
INGÓLFSSON