Fréttablaðið - 23.05.2014, Side 36
KYNNING − AUGLÝSINGSumar & Börn FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 20148
Þegar skóla sleppir og sólskinsbörn tvístrast um allt
í sumarleyfi heyrist iðulega setningin: „Mér leiðist“.
Þá er upplagt að kafa í hugmyndabankann og gera
eitthvað uppbyggjandi og skemmtilegt í stað þess að
gefa strax eftir með sjónvarpsgláp eða tölvuleik.
● Leyfið börnunum að sá fræjum og búa sér til
gróðursælt horn í garðinum. Þau elska að fylgjast
með fræjunum spíra og vaxa yfir sumarið.
● Búið til stuttmynd saman eða leikrit. Flestar
spjaldtölvur og snjallsímar eru útbúin myndatökuvél
og forritum til frekari mynd- og hljóðvinnslu.
● Farið í rannsóknarleiðangur með sjónauka að
vopni og athugið hversu margar fuglategundir þið
þekkið.
● Stofnið bókaklúbb til að viðhalda lestrarkunnáttu
barna. Ræðið söguþráðinn eftir lesturinn og bjóðið
vinum að vera með.
● Farið í lautarferð. Það er skemmtilegra að borða úti
en inni. Takið flugdreka með.
● Skrúfið frá garðslöngunni og leyfið börnunum að
busla og skemmta sér á sólríkum degi.
● Farið á útitónleika.
● Kíkið í gæludýrabúð og skoðið öll krúttlegu dýrin.
Hver veit nema umkomulaust dýr eignist nýtt heimili?
● Farið í tertuslag. Hvern dreymir ekki um að upplifa
það sem svo oft sést í bíómyndunum?
● Ferðist um heiminn án þess að fara að heiman.
Lesið um önnur lönd og eldið hefðbundinn mat ein-
hvers landsins í kvöldmat.
● Farið í bókasafnið og finnið spennandi handbækur
til að læra eitthvað nýtt saman.
● Tjaldið í bakgarðinum og grillið útilegumat og
sykurpúða.
● Safnið pöddum og flugum í krukku til að skoða og
greina eftir tegundum.
● Farið í snyrtistofuleik. Lakkið neglur, greiðið hár
og málið andlit barnanna og leyfið þeim að gera hið
sama við ykkur.
● Bakið sykursæta sumarköku og leyfið börnunum
að hjálpa til við baksturinn.
Látið ykkur ekki leiðast!
FERSKUR SVALADRYKKUR
Þegar börn eru búin að vera að
hlaupa um og hamast úti í sólinni
allan daginn finnst þeim gott að
fá sér kaldan og svalandi drykk.
Þessi uppskrift er einföld og geta
krakkarnir jafnvel gert drykkinn
sjálfir. Fyrir þá sem vilja ekki gos
má setja vatn eða eplasafa í stað
sprite. Uppskriftin er fyrir tvö lítil
glös.
2 tsk. íste (duft)
½ bolli sprite
½ bolli jarðarberjasafi
1–2 kreistar sítrónur
klakar
Hristið saman jarðarberjasafa,
sítrónusafa, íste og klaka (og vatn
eða eplasafa ef það er notað).
Bætið sprite saman við og hellið
í glös. Skreytið fallega með til
dæmis ávöxtum eða
berjum og berið
fram.
Girni-
legur
sumar-
drykkur
sem
einfalt
er að gera.
MYND/GETTY
LESIÐ Í SUMAR
Það er alltaf gott að grípa í bók
til að hafa ofan af fyrir sér. Bækur
eru ekki einungis góðar til afþrey-
ingar heldur er lestur góður fyrir
virkni heilabúsins, hann bætir
málskilning og eflir máltöku,
eykur orðaforða og sjálfstæða
hugsun. Það er því ekki úr vegi að
hvetja börn til að taka sér bók í
hönd og sökkva sér niður í lestur
þegar tími gefst til í sumarfríinu.
Hér eru nokkrar bækur sem flestir
foreldrar kannast við og hafa jafn-
vel lesið sjálfir:
Bróðir minn ljónshjarta, Madditt
og Lína langsokkur ( já, eða bara
allar bækur Astridar Lindgren),
Harry Potter-bækurnar eftir J.K.
Rowling, Pollýanna eftir Eleanor
H. Porter, Benjamín dúfa eftir Frið-
rik Erlingsson, Jón Oddur og Jón
Bjarni eftir Guðrúnu Helgadóttur,
Kalli og sælgætisgerðin og Mat-
ilda eftir Roald Dahl, Pétur Pan
eftir James Barrie, Tár, bros og
takkaskór eftir Þorgrím Þráinsson,
Kötturinn með höttinn eftir Dr.
Seuss, Ljónið, nornin og skápur-
inn eftir C. S. Lewis.
Lítil fluga getur
breytt leið-
indum í forvitni
og skemmtileg
ævintýr.