Fréttablaðið - 23.05.2014, Síða 42

Fréttablaðið - 23.05.2014, Síða 42
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn. http://www.passionforbaking.com/ Hin norsk-hollenska Manuela Kjeilen er fimm barna móðir, bakari, bloggari, rithöfundur og ljósmyndari sem elskar að baka. Hún heldur úti blogginu Passion for Baking þar sem er að finna aragrúa af ljúffengum upp- skriftum. Það er leikur einn að baka eftir uppskriftum Manuelu því hún býður líka upp á myndastuðning þar sem hún fer yfir ferlið skref fyrir skref. Ekki skemmir fyrir að síðan er eins og konfekt fyrir augað og greinilegt að Manuela er afar lunkinn ljósmyndari. Manuela er einn- ig með YouTube-rás þar sem hún sýnir lesendum sínum réttu handtökin. Bloggið hennar var valið það vinsæl- asta í Noregi árið 2011 og hún hefur einnig gefið út nokkrar bækur á norsku, sænsku og þýsku. Fyrsta bókin hennar á ensku er væntanleg. BLOGGARINN PASSION FOR BAKING Emily Henderson http://www.pinterest.com/ em_henderson/ Emily Henderson bar sigur úr býtum í þáttunum Design Star á sjónvarpsstöðinni HGTV árið 2010 og stjórnar einnig þættinum Secrets From a Stylist á stöðinni. Á Pinter- est-síðu hennar má finna alls kyns skemmtilegar hugmyndir fyrir heim- ilið sem og sniðug verkefni sem flestir ættu að geta dundað sér við heima fyrir. Lexi Martone http://instagram.com/lex- imartone Naglahönnuðurinn Lexi Martone er afar duglegur á Instagram og virð- ist ímyndunarafli hans engin tak- mörk sett. Á síðunni eru hundr- uð mynda af fallegum, flippuðum, skrítnum og öðruvísi nöglum sem eru hver fyrir sig eins og listaverk. Það er því um að gera að kíkja inn á þessa litríku síðu og fá hugmynd- ir fyrir sumarið. Apartment Therapy https://www.facebook.com/ apartmenttherapy Eins og nafn Facebook-síðunnar gefur til kynna er þetta eins konar meðferðarsíða fyrir heimilið. Á síð- unni er að finna alls kyns ábend- ingar fyrir lesendur um hvernig er hægt að koma skipulaginu í lag á heimilinu og gera það bæði fallegt og heilsubætandi. Þá er líka boðið upp á ráð til að gera sem mest með létta pyngju. NÚ TELJUM VIÐ NIÐUR ÚTRÝMINGARSALA Opið til kl 18.00LAUGARDAG Allir stakir ja kkar á 9.900 kr Gallabuxur frá 2.000 kr Skyrtur fr á 2.000 k r Bolir frá 500 kr Og fleirra og fleirra S. 572 3400 NÝTT KORT ATÍMABIL Mind Xtra Smart verslun fyrir konur Firði Hafnarfirði • Sími 556 3400 30-50% ALLAR VÖRUR MEÐ AFSLÆTTI Opið til kl 18 .00 LAUGARD AG NÝTT KORT ATÍMABIL

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.