Fréttablaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 42
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
http://www.passionforbaking.com/
Hin norsk-hollenska Manuela Kjeilen er fimm barna
móðir, bakari, bloggari, rithöfundur og ljósmyndari sem
elskar að baka. Hún heldur úti blogginu Passion for
Baking þar sem er að finna aragrúa af ljúffengum upp-
skriftum. Það er leikur einn að baka eftir uppskriftum
Manuelu því hún býður líka upp á myndastuðning þar
sem hún fer yfir ferlið skref fyrir skref. Ekki skemmir fyrir
að síðan er eins og konfekt fyrir augað og greinilegt að
Manuela er afar lunkinn ljósmyndari. Manuela er einn-
ig með YouTube-rás þar sem hún sýnir lesendum sínum
réttu handtökin. Bloggið hennar var valið það vinsæl-
asta í Noregi árið 2011 og hún hefur einnig gefið út
nokkrar bækur á norsku, sænsku og þýsku. Fyrsta bókin
hennar á ensku er væntanleg.
BLOGGARINN PASSION FOR BAKING
Emily Henderson
http://www.pinterest.com/
em_henderson/
Emily Henderson bar sigur úr
býtum í þáttunum Design Star á
sjónvarpsstöðinni HGTV árið 2010
og stjórnar einnig þættinum Secrets
From a Stylist á stöðinni. Á Pinter-
est-síðu hennar má finna alls kyns
skemmtilegar hugmyndir fyrir heim-
ilið sem og sniðug verkefni sem
flestir ættu að geta dundað sér við
heima fyrir.
Lexi Martone
http://instagram.com/lex-
imartone
Naglahönnuðurinn Lexi Martone er
afar duglegur á Instagram og virð-
ist ímyndunarafli hans engin tak-
mörk sett. Á síðunni eru hundr-
uð mynda af fallegum, flippuðum,
skrítnum og öðruvísi nöglum sem
eru hver fyrir sig eins og listaverk.
Það er því um að gera að kíkja inn
á þessa litríku síðu og fá hugmynd-
ir fyrir sumarið.
Apartment Therapy
https://www.facebook.com/
apartmenttherapy
Eins og nafn Facebook-síðunnar
gefur til kynna er þetta eins konar
meðferðarsíða fyrir heimilið. Á síð-
unni er að finna alls kyns ábend-
ingar fyrir lesendur um hvernig er
hægt að koma skipulaginu í lag á
heimilinu og gera það bæði fallegt
og heilsubætandi. Þá er líka boðið
upp á ráð til að gera sem mest
með létta pyngju.
NÚ TELJUM VIÐ NIÐUR
ÚTRÝMINGARSALA
Opið til kl 18.00LAUGARDAG
Allir stakir ja
kkar á
9.900 kr
Gallabuxur frá 2.000 kr
Skyrtur fr
á 2.000 k
r
Bolir frá 500 kr
Og fleirra
og fleirra
S. 572 3400
NÝTT KORT
ATÍMABIL
Mind Xtra
Smart verslun fyrir konur
Firði Hafnarfirði • Sími 556 3400
30-50%
ALLAR VÖRUR MEÐ
AFSLÆTTI
Opið til kl 18
.00
LAUGARD
AG NÝTT KORT
ATÍMABIL