Fréttablaðið - 05.07.2014, Page 2

Fréttablaðið - 05.07.2014, Page 2
5. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | Þetta er tólfta árið í röð sem varp fer illa í Eyjum. Erpur Snær Hansen, doktor í líffræði. OLLU KAUPÞINGI TJÓNI Fyrrverandi stjórnendur Kaupþings eru sagðir hafa skapað félagi Skúla Þorvaldssonar óréttmætan ávinning. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LAUGARDAGUR Fiskistofa flutt Sjávarútvegs- ráðherra tilkynnir starfsmönnum Fiskistofu að stofnunin verði flutt til Akureyrar. Starfmennirnir eru harmi slegnir og fæstir vilja flytja með. SUNNUDAGUR Flugvél nauðlendir Tveir voru um borð í flugvél sem nauðlenti á golfvellinum á Vatns- leysuströnd. Þeir slösuðust ekki alvarlega. Vélin var kennsluflugvél frá flugskóla Keilis. MÁNUDAGUR Bryan Adams á leiðinni Tón- listarmaðurinn Bryan Adams heldur tónleika á Íslandi í ágúst. Hann ætlar að leika öll sín vinsælustu lög og hefur selt meira en 100 milljónir platna. ÞRIÐJUDAGUR Kjöti blandað saman Upp- lýsingar skortir fyrir neytendur um hvernig staðið er að framleiðslu á því lambakjöti sem fæst í verslunum. Sauðfjár- bændur segja að það standi á sláturhúsunum að merkja kjötið. MIÐVIKUDAGUR Humarræktun í Sandgerði Ræktun á evrópskum humri í tilraunaskyni er hafin í Sandgerði. Eftirspurn er til staðar hér á þessu rán- dýra hnossgæti. FIMMTUDAGUR Meindýraeyðir safnar plötum Ólafur Sigurðsson, plötusafnari og meindýraeyðir, ferðast gjarnan með grammófón. Hann á yfir þrjátíu þúsund plötur. FÖSTUDAGUR Tækifærum fækkar Tækifærin fyrir mennt- að fólk eru ekki eins mörg og áður. Fyrir- tækin eru enn að hagræða hjá sér og það leiðir til uppsagna. SÍÐA 8 Katrín S. Óladóttir, framkvæmdastjóri Hagvangs. Hlutfall há- skólamenntaðra á atvinnuleysisskrá hefur hækkað frá fyrra ári. FRÉTTIR FIMM Í FRÉTTUM ÁHYGGJUFULLUR RÁÐHERRA OG ÓÁKVEÐINN BISKUPGLEÐIFRÉTTIN VIKAN 28.06.➜04.07.2014 Gufupönkhátíðin bjargaðist Það fór eiginlega allt úrskeiðis sem gat farið úrskeiðis við undirbúning fyrstu gufupönkhátíðarinnar á Bíldudal. Allt reddaðist þó að lokum og skemmtu um 400 manns sér á hátíðinni. Um var að ræða fyrstu gufupönkhátíðina sem haldin hefur verið hér á landi. Suður England og Wales 12. – 18. ágúst Sjö daga ferð um Suður-England og Wales. Ein af vinsælustu ferðunum okkar Ekið um borgir og þorp í hjarta Englands og komið víða við. Skemmtileg og fræðandi ferð. Skoðunarferðir alla daga og hálft fæði innifalið. Flogið með Icelandair. Fararstjóri er Emil Örn Kristjánsson Verð frá 178.800,- Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar Borgartún 34, 105 Reykjavík, S: 511 1515 • outgoing@gjtravel.is • www.ferdir.is DÝRALÍF Útlit er fyrir að varp lundans verði með versta móti eitt árið enn og hefur lundastofninn látið svo á sjá að í raun má tala um stofnhrun, segir Erpur Snær Hansen, doktor í líffræði. Hann er nýkominn úr rannsóknar- leiðangri umhverfis landið þar sem hann rannsakaði ástand lundans og annarra sjófugla. „Þetta er tólfta árið í röð sem varp fer illa í Eyjum,“ segir hann. Hann segir að áætluð stofnstærð við Ísland hafi verið um átta milljónir fugla árið 2003 en nú er hún talin vera um fimm milljónir, sem er 37 prósenta fækk- un. Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin IUCN taka saman lista yfir dýrategundir sem eru í útrýmingarhættu og þar er not- ast við svokallaðan rauðan lista. Erpur Snær segir að eitt af viðmiðunum sé að ef fækkar um 30 prósent eða meira í einum stofni á áratug teljist hann í hættu og sé því lundinn orðinn tækur á þann lista. „Ungfuglinn, sem er sá fugl sem menn veiða á lundaveiðum, er nánast horfinn í þremur fjórðungum stofnsins,“ segir Erpur Snær. Þess sjást víðar merki en í Eyjum en Magnús Arnar Jónsson, bóndi í Flatey, segist vart sjá lunda þar lengur. „Hér áður var hægt að veiða þúsund fugla og það sá ekki högg á vatni,“ segir hann. „Nú þorir maður ekki að taka einn ein- asta fugl. Þetta er fjórða árið sem ég fæ ekki lunda í soðið, maður er eiginlega búinn að gleyma hvernig hann bragðast.“ En hvernig sér Erpur Snær framhaldið með lundastofninn? „Það koma hitaskeið á 70 ára fresti og þá hrynur sílastofninn sem er helsta fæða lundans,“ segir hann. „Nú er slíkt skeið að ganga yfir en ofan á það koma hitabreytingar í sjó sem eru af mannavöldum svo þetta er kannski óvæg- ara en áður. En það á að kólna aftur í kringum 2030 og það er spurning hvernig hann þreyir þorrann þangað til.“ Ekki er þó allt hábölvað hjá lundanum því honum reiðir vel af fyrir norðan land enda er þar nóg síli að fá. jse@frettabladid.is Lundinn enn í frjálsu falli Fækkað hefur um þrjár milljónir í lundastofninum á rúmum áratug. Ungfuglinn er nær horfinn í þremur fjórðungum stofnsins. Lundinn fyllir í raun skilyrði til að komast á alþjóðlegan válista. VÁ FYRIR HÖNDUM Miðað við þá fækkun sem orðið hefur í lundastofninum gæti skrúðgoggur þessi hér við land komist á alþjóðlegan válista. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Eyrún Eyþórsdóttir lögreglu- fulltrúi gagnrýnir yfi rstjórn lög- reglunnar og segir að mjög hæfar konur hafi sótt um stöður aðstoðar- yfi rlögregluþjóna á höfuðborgar- svæðinu. Engin kona var ráðin en þrír karlar hrepptu hnossið. Sigríður Ólafsdóttir ljósmynd- ari, betur þekkt sem Sissa, tók u-beygju í lífi nu og lét drauminn rætast og stjórnar nú ljósmynda- skólanum þar sem hún elur upp framtíðarljósmyndara. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, ákvað að hunsa kröfu valnefndar og auglýsti starf sóknarprests í Seljakirkju að nýju. MP- DÓMSMÁL Í ákæru sérstaks saksóknara á hendur Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Guðnýju Örnu Sveins- dóttur, fyrrverandi fjármálastjóra, Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi framkvæmda- stjóra Kaupþings í Lúxemborg, og Skúla Þor- valdssyni fjárfesti vegna meints fjárdráttar, umboðssvika og hylmingar eru þau samtals krafin um tæplega níu milljarða í skaðabætur ásamt vöxtum og dráttarvöxtum. Hreiðar, Magnús og Guðný eru í ákærunni, sem Fréttablaðið hefur undir höndum, sögð hafa tvívegis millifært samtals um 6 millj- arða króna á reikninga félags í eigu Skúla, honum til hagsbóta. Þá hafi þau að auki mis- notað aðstöðu sína með því að láta Kaupþing kaupa skuldabréf af félagi Skúla á verði sem var langt yfir markaðsverði og þannig valdið bankanum fjártjóni. Með þessum athöfnum hafi þau skapað félagi Skúla óréttmætan ávinning en valdið Kaupþingi tjóni. - fbj Stjórnendur Kaupþings ákærðir fyrir fjárdrátt, umboðssvik og hylmingu: Krefjast níu milljarða í bætur Sigurður Örn Gústafsson fram- kvæmdastjóri telur að kanna eigi hvort grundvöllur sé fyrir lífeyris- sjóðina til að höfða mál gegn mats- fyrirtækjum sem ofmátu stöðu bankanna fyrir hrun. Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra segir það áhyggjuefni hversu fáir kennarar hafa háskólagráðu í stærðfræði og hversu illa margir nem- endur standa sig í grein- inni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.