Fréttablaðið - 05.07.2014, Blaðsíða 34
| ATVINNA |
Sérfræðingur í fjármála- og rekstrarþjónustu
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu sérfræðings í fjármála- og rekstrarþjónustu.
Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur 62 leikskóla, 36 grunnskóla og 6 frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar, starfsemi
Námsflokka Reykjavíkur, skólasafnamiðstöðvar og skólahljómsveita. Skóla- og frístundasvið veitir um 20 þúsund börnum og
fjölskyldum þeirra þjónustu.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á reikningagerð fyrir leikskóla og frístunda-
heimili.
• Ábyrgð á ráðstöfun frístundakorts inn á reikninga.
• Samskipti við foreldra, stjórnendur og aðra aðila vegna
reikningagerðar fyrir leikskóla og frístundaheimili.
• Uppfærsla gjaldskráa í upplýsingakerfið Völu og upp-
lýsingagjöf til foreldra og annarra vegna gjaldskrár-
breytinga.
• Þróun á upplýsingakerfinu Völu.
• Þróun á þjónustu og upplýsingagjöf vegna reikninga-
gerðar og gjaldskráa fyrir leikskóla og frístundaheimili.
Hæfniskröfur:
• Viðskiptafræðimenntun eða önnur háskólamenntun
sem nýtist í starfi.
• Reynsla af stjórnsýslu kostur.
• Þekking á upplýsingakerfum er kostur.
• Góð tölvukunnátta.
• Reynsla af reikningagerð kostur.
• Mikil samskiptahæfni.
• Rík þjónustulund.
• Skipulagshæfni, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
• Góð íslenskukunnátta ásamt færni til að tjá
sig í ræðu og riti.
• Frumkvæði og sjálfstæði.
Umsókn fylgi starfsferilskrá og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Um laun og starfskjör fer samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 27. júlí nk.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri, og Íris Björk Pétursdóttir, deildastjóri í síma 411-1111.
Netföng: kristjan.gunnarsson@reykjavik.is , iris.bjork.petursdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreyti-
lega samfélag sem við búum í. Reykjavíkurborg vinnur gegn mismunun á vinnumarkaði og hvetur innflytjendur, fatlað fólk, hinsegin
fólk og fólk á öllum aldri til að sækja um störf hjá borginni.
Leikskólinn Barnaból Skagaströnd
Leikskólakennarar óskast frá ágúst 2014. Barnaból er
tveggja deilda leikskóli með um 35 nemendum. Starfað er
skv. kenningum John Dewey og Howards Gardner undir
kjörorðinu „
Umsóknarfrestur er t il 1 8. Júlí 2014.
Móttaka umsókna og upplýsingar á skrifstofu
sveitarfélagsins Túnbraut 1-3 og í sími 455 2700 og hjá
Þórunni Bernódusdóttur leikskólastjóra gsm 860 2592.
Umsóknareyðublað er á heimsíðu Barnabóls
á www.leikskolinn.is/barnabol
HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is
ERTU ÖFLUGUR RAFVIRKI?
VIÐ LEITUM AÐ RAFVIRKJA TIL FRAMTÍÐARSTARFA
Norðurál leitar að metnaðarfullum og reyndum
rafvirkja. Verkefnin eru fjölbreytt og felast m.a. í
viðhaldi, endurnýjun og endurbótum á tæknibúnaði
Norðuráls, með áherslu á fyrirbyggjandi viðhald.
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og
kvenna, endurmenntun og starfsþróun, frábæran
starfs anda og samstarfsfélaga. Starfinu fylgir góð
starfsaðstaða í lifandi umhverfi þar sem metnaður
og fagmennska eru í fyrirrúmi.
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa rúmlega 500 manns með
fjöl breytta menntun og bakgrunn. Árleg framleiðslugeta er um 300 þúsund tonn af hágæða áli.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí næstkomandi.
Leggja skal inn umsókn á www.nordural.is.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og
öllum umsóknum verður svarað.
NÁNARI UPPLÝSINGAR: Guðmundur Óskar
Ragnarsson, formaður A hóps á Aðalverkstæði,
simi 430 1000.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Sveinspróf í rafvirkjun og a.m.k. tveggja ára
starfsreynsla
• Sterk öryggisvitund og fyrirmynd í öruggum
vinnubrögðum
• Reynsla af vinnu við háspennubúnað æskileg
• Góð þekking á viðgerðum
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Metnaður, öguð vinnubrögð og rík ábyrgðarkennd
• Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
• Góð almenn tölvukunnátta
Leitum að fjölhæfum og
framsæknum matreiðslu-
manni sem hafið getur
störf sem fyrst.
Matreiðslumaður
í stöðu vaktstjóra
sushisamba.is
Umsóknir sendist til
eythor@sushisamba.is
5. júlí 2014 LAUGARDAGUR4