Fréttablaðið - 05.07.2014, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 05.07.2014, Blaðsíða 20
5. júlí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20 Sjá frekari umfj öllun og fl eiri myndir á vísir.is visir.is Fjórða sumarið í röð fer hópur ungmenna um land-ið og safnar upplýsingum um eyðibýli og önnur yfir-gefin íbúðarhús í sveitum. Rannsóknaverkefnið nefn- ist Eyðibýli á Íslandi og markmið þess er að rannsaka og skrá umfang og menningarlegt vægi þessara mannvirkja. Framtíðarsýnin er endurgerð valinna eyðibýla í sam- starfi við eigendur þeirra og nýting í ferðaþjónustu. Hringnum lokað Rannsóknarverkefnið hófst árið 2011. Það sumar voru skrásett eyði- býli og yfirgefin hús á Suður- og Suðausturlandi. Sumarið eftir var Norðurland eystra og Vesturland undir og þriðja sumarið voru það Vestfirðirnir og Norðvesturland. Í sumar er hringnum lokað á Austur- landi og suðvesturhorninu. Hvert sumar hefur átta til tíu manna hópur ungs fólks sinnt skráningu; margir koma að verkefninu aftur og aftur. Afraksturinn, eins og stað- an er í dag, er sá að fyrir sumarið höfðu 556 hús verið færð til bókar, en gefin hafa verið út fimm bindi af veglegu riti sem ber nafn verk- efnisins. „Verkefnið á rætur sínar hjá nokkrum einstaklingum sem hafa áhuga á byggingarlist, menningu og þessum manngerða arfi sem leynist í sveitum landsins. Við fórum strax þá leið að fá háskólanemendur til liðs við okkur og í sumar eru þau níu sem starfa við skráninguna,“ segir Gísli Sverrir Árnason, menning- ar- og stjórnsýsluráðgjafi og einn aðstandenda verkefnisins. Hann telur líklegt að í haust muni liggja fyrir upplýsingar um rúmlega 700 íbúðarhús. „Það er há tala, kannski, en samt skilgreinum við eyðibýli í okkar rannsókn frekar þröngt.“ Skilgreiningin sem Gísli vísar til nær til yfirgefinna íbúðarhúsa í sveitum landsins sem ekki hafa verið tekin til annarra nota. Þau verða að hafa fjóra uppistandandi útveggi, og þurfa ekki endilega að standa á eyðijörð, heldur geta þau staðið á jörð í búnytjum. Þessi hús geta haft mikla þýðingu af ýmsum ástæðum; verið merkar menningar- minjar og mikilvægar heimildir um byggðasögu. Aldur húsanna, húsa- gerð eða byggingarlag þeirra getur líka verið sérstakt. Nýting er næsta skref Aðstandendur verkefnisins horfa langtum lengra en að ljúka skrán- ingu eyðibýlanna og gefa afrakst- urinn út á bók. Það er einungis hugsað sem fyrsta skrefið í mun stærra samhengi hlutanna. „Þó að í augnablikinu einbeiti hópurinn sér að því að ljúka rann- sókninni, sem hefur kostað blóð, svita og tár, þá er það draumurinn að vinna að því með eigendum að gera nokkur hús upp, og í fram- haldinu taka þau í notkun í ferða- þjónustu. Sem betur fer eru þegar býsna mörg dæmi um það að eig- endur húsa hafa gert upp hús sem við höfðum þegar skráð. Það er stór- kostlegt, hvort sem það er að ein- hverju leyti að þakka þessu verk- efni. Hitt get ég sagt að umfjöllun um verkefnið hefur verið til góða, og þetta snýst fyrst og síðast um hugarfar. Kannski hafa heimsókn- ir krakkanna hverju sinni, eða útgáfa bókanna, leitt einhverjum fyrir sjónir að eyðibýlið þeirra er verðmæti. Þetta hafi breytt hugar- fari eigendanna til húsanna frá því að dæma þau ónýt yfir í að þarna liggja bæði huglæg og efnisleg verðmæti,“ segir Gísli. Stundum dapurlegt Bergþóra Góa Kvaran er einn níu- menninganna sem annast skrán- ingu í sumar. Hópurinn er staddur á Austurlandi þar sem um 90 eyðibýli hafa verið skráð. Hún lýsir vinnunni með þeim hætti að keyrt er upp að hverju einasta bæjarstæði til að ganga úr skugga um að þar standi yfirgefin hús. Leitað er til staðkunn- ugra, en áður hefur verið safnað grunnupplýsingum um hvert svæði og hvar helst er að bera niður. „Húsin eru jafn misjöfn og þau eru mörg. Stundum er það bara ber steinramminn. Á dögunum sóttum við heim eyðibýli þar sem kviknað hafði í, en mikil saga var tengd jörðinni. Flugslys hafði orðið þar nálægt, tóftirnar eru úti um allt enda var um stórbýli að ræða þegar allt var þar í blóma. Það er mikil upplifun, enda fær maður til- finningu fyrir því hvernig lífið var á þessum stað á árum áður,“ segir Bergþóra sem er á sínu þriðja sumri á eyðibýlaveiðum. „Svo eru það hús þar sem allt er til alls; það eru dæmi um það að línið sé enn þá í skápun- um. Ég hef komið inn í hús þar sem búið var um rúmin, kaffibollar og smáhlutir stóðu frammi í eldhús- inu. Í öðru húsi stóðu diskar á dúk- uðu borði, svona eins og eigendurn- ir hefðu skroppið frá rétt fyrir mat. Önnur hús eru nýkomin í eyði og munu sjálfsagt grotna niður á næstu árum,“ segir Bergþóra sem bætir við að oft sé dapurlegt að koma inn í húsin. „Stundum er það líka óhugnan legt. Það verður að viður- kennast. Margar heimsóknir vekja hjá manni miklar tilfinningar. Eins og þegar fólk gat ekki lengur beðið eftir brú eða vegabótum og flosnaði upp af góðri jörð þess vegna.“ Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Færa 700 eyðibýli til bókar Eftir sumarið verður búið að safna gögnum um rúmlega 700 hús undir merkjum verkefnisins Eyðibýli á Íslandi. Þá mun liggja fyrir þekkingargrunnur um búsetu og líf Íslendinga fyrr á tímum. Uppbygging og nýting húsa í ferðaþjónustu verður næsta skref. Bergstaðir í Svartárdal Böðvarsdalur í Vopnafirði Vellir í Skagafirði Stundum er það góð tilfinning að koma að eyðibýli, en því er lýst af þátttakendum verkefnisins að það geti líka verið dapurlegt, jafnvel óhugnanlegt. Þau sem skrá sögu eyðibýlanna hafa átt kost á því að sjá landið frá nýju sjónarhorni. Þeirra mat er að vinnan muni nýtast þeim um ókomin ár. MYNDIR/EYÐIBÝLI Á ÍSLANDI Unnið hefur verið að skráningu eyðibýlanna síðan 2011. Þau hafa verið mynduð og gaumgæfð innan sem utan. Við þetta framtak hefur mikilli sögu verið bjargað frá glötun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.