Fréttablaðið - 05.07.2014, Blaðsíða 8
5. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
HEILSA Evrópska matvælaöryggis-
stofnunin, EFSA, staðfestir fyrra
mat byggt á dýrarannsóknum að
efnið akrýlamíð í matvælum geti
mögulega valdið krabbameini hjá
neytendum á öllum aldri. Akrýl-
amíð myndast í mestu magni í kol-
vetnaríkum matvælum sem eru
hituð mikið og getur til dæmis
verið í kartöfluflögum, frönskum
kartöflum, kexi, morgunkorni,
hrökkbrauði og kaffi. Miðað við
líkamsþyngd eru börn í mestri
hættu, að því er segir á vef EFSA.
„EFSA birtir nú drög að nýrri
skýrslu sinni um akrýlamíð til
þess að kalla eftir mati almenn-
ings. Búið er að endurmeta gögn
sem gefa vísbendingu um að akrýl-
amíð sé í of miklu magni í matvæl-
um miðað við neyslu almennings á
slíkum vörum. Það hafa hins vegar
ekki verið sett nein hámarksgildi
fyrir akrýlamíð í matvælum og
framleiðendur hafa því lítið að
miða við en neytendur þurfa að
hafa í huga að matvæli sem eru
með þessu efni verði ekki uppi-
staðan í fæðunni,“ segir Katrín
Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá
Matvælastofnun, MAST.
Á fréttavef
sænska blaðsins
Dagens Nyheter
segir að magn
akrýlamíðs í
matvælum hafi
ekki minnkað
þótt lengi hafi
verið vitað um
möguleg skað-
leg áhrif þess á
heilsuna. Haft er eftir sérfræð-
ingi sænsku matvælastofnunar-
innar að matvælaframleiðendur
verði að skerpa sig.
Á vef MAST segir að efnið hafi
ekki fundist í matvælum sem
framleidd eru eða elduð við suðu-
hitastig, það er 100 gráður. Þar
segir jafnframt að til séu einfald-
ar aðferðir til að minnka inntöku á
akrýlamíði. Forðast á mikla steik-
ingu, brenndan mat, mikinn bakst-
ur og dökkristaðan mat.
Sérfræðingur sænsku matvæla-
stofnunarinnar, Lilianne Abrams-
son Zetterberg, kveðst hafa skiln-
ing á því að gular og slappar
franskar kartöflur höfði ekki til
margra en það sé skynsamlegt að
taka brauðið úr brauðristinni áður
en það verður dökkt.
ibs@frettabladid.is
Kaffi og franskar
geta valdið krabba
Venjuleg matvæli eins og franskar kartöflur, kartöfluflögur, kex og kaffi geta
innihaldið krabbameinsvaldandi efni. Þetta er staðfest í drögum að nýrri skýrslu
evrópsku matvælaöryggisstofnunarinnar. Forðast á neyslu á brenndum mat.
KATRÍN
GUÐJÓNSDÓTTIR
VARASÖM FÆÐA Neytendur þurfa að
hafa í huga að matvæli með efni sem
getur valdið krabbameini verði ekki
uppistaðan í fæðunni, segir sérfræðing-
ur hjá Matvælastofnun. NORDICPHOTOS/GETTY
PI
PA
R\
TB
W
A
SÍ
A
14
18
95
DÓMSMÁL Héraðsdómur í Krist-
iansand í Noregi dæmdi í gær fer-
tugan Íslending í ellefu ára fang-
elsi fyrir morðið á Helga Dahle,
sem var fimmtugur útvarpsmaður.
Íslendingurinn játaði að hafa
stungið Dahle þrívegis í bakið og
einu sinni í bringuna með veiðihníf
með þeim afleiðingum að hann
lést. Atvikið átti sér stað í gleðskap
í heimahúsi í Valle þann 26. maí í
fyrra. Hnífurinn hafði verið nýtt-
ur til að skera pylsur í partíinu.
Málsatvik voru með þeim hætti,
samkvæmt norskum miðlum, að
Dahle reyndi að stöðva Íslend-
inginn sem átti í stimpingum við
annan mann, með því að sparka
í höfuð hans. Í kjölfarið réðst
Íslend ingurinn á Dahle.
Árásar maðurinn íslenski býr
í Grimstad og hefur verið bú-
sett ur í Noregi síðan 2005.
Saksókn ari hafði farið fram á tólf
ára dóm yfir manninum.
- aí / - nej
Íslendingur í Noregi stakk Norðmann fjórum sinnum með veiðihníf:
Fékk ellefu ár fyrir manndráp
ÞEKKTUR Maðurinn sem dó var þekkt-
ur útvarpsmaður í Noregi.