Fréttablaðið - 05.07.2014, Page 12

Fréttablaðið - 05.07.2014, Page 12
5. júlí 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Sjávarútvegsráðherra hefur fundið fyrir því í vikunni að svellið er ekki besti staður til að vera á þegar ákvarðanir eru teknar. Umræð- urnar um flutning Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar benda ótvírætt til þess að ráðherran- um hafi skrikað fótur þegar sú ákvörðun var tekin. Segja má að sjávarútvegsráð- herra hafi þessa daga fengið að reyna á eigin skinni hver munur- inn er á því að vanda ákvarðanir og byggja þær á málefnalegum forsendum eða taka þær með fót- skriðu á hálu svelli. Á sama tíma og tilkynningin um flutning Fiski- stofu var birt tók ráðherrann aðra ákvörðun um heildarafla fyrir næsta fiskveiði- ár. Viðbrögðin við henni voru allt önnur. Sú ákvörðun er sannarlega með stærri efnahagslegu ráð- stöfunum ár hvert. Þar eru í húfi heildar hagsmunir þjóðarbúskapar- ins, atvinna í einstökum byggðar- lögum og afkoma sjávarútvegs- fyrir tækja. Átök um svo stórt mál eru því í sjálfu sér eðlileg. En svo bregður við að heildar- aflaákvörðunin gengur þegjandi og hljóðalaust fyrir sig. Skýringin er sú að hún er í einu og öllu byggð á vísindalegum niðurstöðum og áður mótaðri pólitískri langtíma- stefnu. Þrátt fyrir alla hagsmuna- togstreitu stóð ráðherrann ekki á neinu svelli þegar hann komst að niðurstöðu í því máli. Miklu minna mál á þjóðhags- legan mælikvarða veldur aftur á móti gríðarlegu írafári. Þetta segir þá sögu eina að þó að ákvarðanir snerti hagsmuni tiltölulega fárra þarf að finna þeim málefnaleg- ar undirstöður rétt eins og þeim stærri. Ráðherrann gætti sín ekki á því. Fótskriða á hálu svelli Hugmyndir um að ríkið hafi skyldum að gegna við stað-setningu opinberra starfa á landsbyggðinni geta haft margt til síns ágætis. En þær geta ekki vikið til hliðar málefnalegum sjónarmið- um sem lúta að faglegri þekkingu og hagsmunum starfsfólks í rótgrónum stofnunum og atriðum sem lúta að þjónustu við þá sem samskipti eiga við opinberar stofnanir. Augljóst er að auðveldara getur verið að taka ákvarðanir um að setja nýja starfsemi á vegum ríkis- ins á fót utan höfuðborgarsvæðisins. Það er þó ekki einhlítt. Þegar Fiski- stofu var ýtt úr vör á sínum tíma var verið að sameina stjórnsýslu- verkefni sem ýmist höfðu heyrt undir ráðuneytið eða verið vistuð annars staðar. Þá var því gefinn nokkur gaumur hvort tækt væri að staðsetja nýja stofnun úti á lands- byggðinni. Það þótti ekki rétt. Ástæðurnar voru einkum þær að slíkur flutningur starfa myndi raska um of stöðu og högum fólks sem þegar vann að þessum verkefn- um undir öðrum höttum. Jafnframt efuðust margir um að hagsmunum þeirra sem samskipti eiga við stofn- unina væri best borgið með þeim hætti. Tæknibyltingin hefur í ein- hverjum mæli dregið úr gildi seinni röksemdarinnar en sú fyrri stendur. Opinberar stofnanir þurfa laga- legar undirstöður og fjármagn. Markmið þeirra er þjónusta en ekki atvinnusköpun. En það er fólk sem gerir þær að virkum veruleika í samfélaginu. Þegar ákvarðanir eru teknar án þess að taka þá ein- földu staðreynd með í reikninginn er hætta á að illa fari. Þar með er ekki sagt að illa ígrundaðar ákvarðanir af þessu tagi geti ekki á endanum gengið upp. En aðrar leiðir að sama marki kunna að vera skynsamlegri og hafa í för með sér minni sóun þekkingar og fjár- muna. Skyldurnar við landsbyggðina Standi vilji manna í raun og veru til þess að færa opinber störf út á landsbyggðina er hyggilegt að beina augunum að viðfangsefn- um sem styrkja innviðina í byggðun- um. Flutningur verkefna frá ríki til sveitarfélaga, sem standa nær þeim sem þjónustunnar eiga að njóta, er til að mynda rökréttur kostur. Með því er heldur ekki verið að gera eitt fyrir þetta sveitarfélag í dag og eitt- hvað annað fyrir hitt á morgun. Tæknibyltingin hefur líka auð- veldað flutning á ýmsum verkefn- um sem vinna má hvar sem er án þess að það bitni á þjónustu eða hafi afgerandi áhrif á hag og stöðu þess fólks sem fyrir hefur reynslu og þekkingu og sanngjarnt er að taka tillit til. Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að flytja Fiskistofu ber á hinn bóginn öll einkenni þess að vera eins konar pólitísk skyndibitaaðgerð. Hún er ekki hluti af vel undirbún- um skipulagsbreytingum. Ákvörð- unin getur vakið fögnuð á Akureyri en hún bætir ekki þjónustuna við þá sem búa á öðrum landshornum. Þetta er enn eitt dæmið um hvernig Framsókn er að færa sig til í pólitíkinni. Skyndiákvarðanir eða pólitísk púðurskot sem vekja eiga stundarvinsældir hjá afmörkuðum hópum verða smám saman fyrir- ferðarmeiri um leið og heildarsýn og langtímamarkmið víkja. Þó að skyndibitapólitík af þessu tagi sé ekkert nýmæli og ein- kenni oftar litla flokka en stóra er áhyggjuefni ef engin pólitísk þunga- vigt er lengur til að spyrna á móti. Skyndibitapólitík Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU F réttablaðið hefur að undanförnu fjallað um merkingar á matvælum, sem gefa til kynna að þau séu framleidd með vistvænum hætti. Slíkar merkingar eru mikilvæg leiðsögn fyrir neytendur, sem vilja með vali sínu stuðla að vistvænum búskapar- og framleiðsluháttum. Blaðið sagði frá því fyrr í þessari viku að engar merkingar væru á lambakjöti sem gæfu til kynna hvort það kæmi frá býlum sem hefðu fengið vottorð um gæðastýringu. Mikill meirihluti lambakjöts hefur fengið slíka vottun, eða yfir 92 prósent, en kjötinu frá þeim sem ekki hafa vottunina er bara blandað saman við það vottaða í kjötvinnslustöðvum og verzlunum. Það er afleitt fyrir neytendur, því að gæðastýringin á ekki sízt að stuðla að því að bændur ofbeiti ekki landið, en jafnframt eiga þeir að skila inn skýrslum um veikindi dýranna, lyfjanotk- un, áburðarnotkun og fóðurgjöf. Margir neytendur vildu örugg- lega geta forðazt kjöt frá þeim sem ekki hafa undirgengizt þær reglur og staðla sem þarf til að fá vottun um gæðastýringu. Þórarinn Ingi Pétursson, formaður Landssamtaka sauðfjár- bænda, sagði í Fréttablaðinu að sauðfjárbændur vildu gjarnan sérmerkja kjöt sem kæmi frá gæðastýrðum býlum, en sláturhúsin vildu það ekki. Haft var eftir Steinþóri Skúlasyni, forstjóra Sláturfélags Suður- lands, í sömu frétt að ekki væri gæðamunur á afurðunum og engin umræða hefði verið um að merkja kjöt frá gæðastýrðum býlum sérstaklega. „Það er spurning hvað yrði gert við ógæða- stýrt kjöt. Staðan er sú að þú færð enga verslun til að taka inn kjöt sem væri merkt ógæðastýrt,“ sagði Steinþór. Forstjórinn ítrekaði sjónarmið sín í grein í Fréttablaðinu í gær; að enginn munur væri á gæðum kjöts úr gæðastýringu og kjöti frá búum sem ekki hefðu þessa vottun. Hann tók líka fram að sauðfjárbændur hefðu ekki óskað eftir neinum merkingum á gæðastýrða kjötinu. Í þessu samhengi eru gæðin hins vegar aukaatriði. Svo við tökum dæmi af allt öðrum markaði þá geta tveir stuttermabolir verið af sömu gæðum, en annar framleiddur af börnum við slæmar aðstæður í þriðja heiminum og hinn þar sem fullorðnu starfsfólki eru búin góð starfsskilyrði. Ef neytendur vissu muninn, væru þeir – að minnsta kosti margir – frekar tilbúnir að kaupa síðarnefnda bolinn. Fyrst allar upplýsingar liggja fyrir um það hvaða bú hafa fengið vottun um gæðastýringu og hver ekki, er sjálfsögð krafa neytenda að þessum upplýsingum sé miðlað til þeirra með merk- ingum. Það skiptir ekki máli hvort sauðfjárbændur hafa beðið sláturleyfishafa um slíka merkingu eða ekki; nú er málið komið í opinbera umræðu og hlýtur að liggja beint við að þessir aðilar vinni saman að því að leysa það. En hvað þá um þessi sjö prósent lambakjöts sem ekki eru gæða- stýrð og engin búð myndi vilja taka við? Ætli viðkomandi sauð- fjárbændur yrðu ekki bara fljótir að taka við sér, sækja um vott- unina og breyta búskaparháttum sínum til að geta fengið hana? Neytendur geta haft áhrif á búskaparhætti: Matur og merkingar Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.