Fréttablaðið - 05.07.2014, Síða 16
Þetta er 17 metra hátt verk sem gerir það lík-lega að mínu stærsta og metnaðarfyllsta verki hingað til,“ segir myndlistarkonan
Sara Riel en í dag kl. 15 verður
afhjúpað verk eftir hana á vegg-
gafli við Asparfellið í Breiðholti.
Veggmyndin ber nafnið Fjöð-
ur þar sem 43 fuglum er raðað
saman til að mynda eina heild.
Sara eyddi nokkrum dögum á
Náttúrufræðistofnun Íslands
í heimildavinnu þar sem hún
skrásetti og skissaði fjölbreytt
úrval fugla sem þar er að finna.
„Það var mjög áhugavert að eyða
tíma þar, eins og að vera í lík-
húsi. Fuglarnir sem ég notaði eru
af alls kyns tegundum, farfugl-
ar sem og fuglar sem eiga upp-
runa sinn að rekja hingað. Mér
finnst það endurspegla þennan
breiða og fjölbreytta hóp sem
býr í þessu fjölmenna fjölbýlis-
húsi,“ segir Sara sem hlaut ein-
róma samþykki fyrir verkinu
hjá íbúum Asparfellsins áður en
hún hófst handa fyrir tæpu ári
og naut sín vel að vinna í Breið-
holtinu.
„Þetta byrjaði mjög vel í fyrra
en eins og flestir muna voru ekki
margir þurrir dagar í fyrrasum-
ar og -haust. Verkið er unnið með
akrýlhúsamálningu sem þarf að
þorna á milli sem er erfitt þegar
það koma vinda- og vætusam-
ir dagar eða þessir klassísku
íslensku dagar þar sem skiptast
á skin og skúrir. Um miðjan sept-
ember fékk ég nóg, var kalt og
þreytt sem gerir ekki gott þegar
maður er að reyna að skapa eitt-
hvað. Svo ég tók aftur upp þráð-
inn núna um miðjan maí.“
Sara er þekkt fyrir veggmynd-
ir sínar víðs vegar um borgina.
Fjöður er málað í fimm lögum af
málningu með litlum penslum og
í því eru alls kyns skuggar og stíl-
brigði sem listakonan er þekkt
fyrir en skuggi sem hún bætti við
í lokin býr til þá sjónblekkingu að
fjöðrin virðist svífa á veggnum.
Eins og fyrr segir verður verk-
ið Fjöðrin afhjúpað í dag klukk-
an 15 í Asparfelli 2-12 af Degi B.
Eggertssyni borgarstjóra. Ólöf
Arnalds og Skúli Sverrisson flytja
nokkur lög og þá munu dansar-
arnir Stefán Halldór Egilsson og
Hallman Ísleifur Sigurðarson
sýna popping-dans við athöfnina.
„Það er hvorki opnunartími
né aðgangseyrir að verkinu og ég
hvet alla til að kíkja við,“ segir
Sara að lokum.
MAMMA
SEGIR
eftir Stine
Pilgaard í þýðingu
Steinunnar Stef-
ánsdóttur. Dásam-
legur danskur
húmor með
sárum undirtóni.
Ástarsorg hefur
aldrei verið
skemmtilegri.
Á NÝJA
PLÖTU
ROBINS
THICKE, Paula,
þar sem hann
flytur fyrrverandi
konu sinni, Paulu
Patton, hvern
ástaróðinn á fætur
öðrum í þeirri von að vinna hjarta
hennar á ný.
Álfrún Páldóttir
alfrun@frettabladid.is
Á SUMARDJASS á Jómfrúnni
klukkan 15 í dag. Latínkvartett
kontrabassaleikarans Tóm-
asar R. Einarssonar skemmtir með
spriklandi latíndjassi eftir Tómas.
Á BEINA ÚTSENDINGU
frá leik Hollands og Kosta-
ríku í átta liða úrslitum á
HM klukkan 19.50 í kvöld. Tekst
Kostaríku að standa uppi í hárinu á
Hollendingum?
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Hera Hilmarsdóttir leikkona
Stanslaus gleði
„Hápunktur helgarinnar
er brúðkaup hjá vinum
mínum heima svo það verður
greinilega stanslaus gleði alla
helgina í samveru góðs fólks.“
Jóhannes Haukur
Jóhannesson leikari
Hágæða borgarútivist
„Laugardagsmorgunninn fer í
vinnu, en þá verð ég á Bylgjunni
með þáttinn Bakaríið ásamt
Rúnari Frey, en eftir það er
stefnan tekin á Laugardalinn í
borgarútivist með fjölskyldunni.“
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
sjónvarpskokkur
Fæðing eða írskir dagar
Um helgina væri voðalega gaman að fá
dömuna mína í heiminn, en settur dagur
var 30.júní. En ef ekki þá ætla ég að njóta
helgarinnar með fjölskyldu og vinum á
Írskum dögum á Akranesi.
Níels Thibaud Girerd (Nilli),
sjónvarpsmaður og gleðigjafi
Röltir um og tekur á
móti mömmu
„Um helgina mun ég njóta
þess ađ vera til, rölta um Þing-
holtin og mögulega hitta góđa
vini. þá mun ég einnig taka á
móti mömmu frá Köben.“
Endurspeglar fj öl-
breytileika Asparfells
Myndlistarkonan Sara Riel afh júpar í dag vegglistaverkið Fjöður sem prýðir
fj ölbýlishús í Asparfelli í Breiðholtinu. Veggmyndin hefur verið nokkuð lengi
í bígerð þar sem vætusamt veður og vindar hafa sett strik í reikninginn fyrir
listakonuna sem segir verkið sitt stærsta og metnaðarfyllsta til þessa.
Myndlistarmaðurinn Erró
hefur samþykkt að gefa
Reykjavíkurborg höfundarverk
sitt en borgarráð hefur
samþykkt að setja upp tvær
veggmyndir eftir Erró í efra
Breiðholti. Annars vegar er um
að ræða mynd á bogadreginn
vegg íþróttahússins við Austur-
berg, sem er í eigu Reykja-
víkurborgar, og hins vegar á
vesturgafl íbúðablokkarinnar
við Álftahóla 4– 6.
„Við erum mjög spennt
fyrir þessu verkefni. Það er
mjög góð reynsla af verkum
sem þessum erlendis og svo
er þetta náttúrlega risastórt
verk,“ segir Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri.
Erró er heiðursborgari
Reykjavíkur og hefur í gegnum
tíðina sýnt Reykjavíkurborg og
Listasafni Reykjavíkur rausnar-
skap með því að gefa safninu
verk sín. Verk eftir Erró hafa
verið sýnd á mörgum helstu
söfnum Evrópu og víða um
heim. Veggmyndir hans prýða
merkar byggingar í mörgum
borgum og hafa mikið að-
dráttarafl þar sem þær hafa
verið settar upp.
Áætlað er að kostnaður
vegna framleiðslu og upp-
setningar verði um 38,8 m.kr.
og er það Listasafn Reykja-
víkur sem hefur umsjón með
undirbúningi og framkvæmd
verksins.
Fegra fjölbýlishús í efra Breiðholti með listaverkum Errós
ÁLFTAHÓLAR 4-6
Þessi mynd eftir
Erró mun án efa
setja svip á blokk-
ina í Breiðholti.
MarkisurogMeira.is | Starmýri 2a, 108 Rvk
Sala Reykjavík s. 893-6337 og 898-0508, | Sala Akureyri s. 868-0886 |
sala@markisurogmeira.is
VILTU SKJÓL Á VERÖNDINA
Markísur og Meira
Komum á staðinn þér að
kostnaðarlausu og gerum tilboð
Skjólveggur
FUGLSFJAÐRIR Listakonan Sara Riel
er ánægð með nýjustu veggmynd sína,
Fjöður, sem verður afhjúpuð í dag en
verkið er 17 metra hátt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HELGIN
5. júlí 2014 LAUGARDAGUR5. júlí 2014 LAUGARDAGUR