Fréttablaðið - 05.07.2014, Page 37

Fréttablaðið - 05.07.2014, Page 37
| ATVINNA | Öldrunarheimili Akureyrar Öldrunarheimili Akureyrar óska eftir að ráða til starfa, hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og starfsfólk við umönnun. Á Öldrunarheimilum Akureyrar fer fram fjölbreytt og áhugaverð starfsemi sem er í stöðugri þróun. Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni með áherslu á sjálfstæði, góðan heimilisbrag og lífsgæði íbúana. Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt. Húnaþing vestra Sviðsstjóri framkvæmda- og umhverfissviðs. Framkvæmda- og umhverfissvið Húnaþings vestra auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs. Nánari upplýsingar um starfið eru á heimasíðu Húnaþings vestra www.hunathing.is ICELAND GEOSURVEY Íslenskar orkurannsóknir, ÍSOR, leita að metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í hóp þeirra sem leiða rannsóknir og þróun á sviði jarðvarma, grunnvatns og kolvetna í jörðu. Sérfræðingur á sviði efnafræði jarðhitakerfa Starfið felur í sér vinnu við efnafræði jarðhitakerfa, einkum samspil vökva og gastegunda við berg jarðhitakerfa, en einnig eftir atvikum almennar rannsóknir og ráðgjöf auk kennslu og þjálfunar. Ráðningartími er tvö ár með möguleika á föstu starfi í framhaldinu. Fastur vinnustaður er á skrifstofum ÍSOR í Reykjavík eða á Akureyri. Starfið getur falið í sér vinnu utanbæjar eða utanlands og langan vinnudag á köflum. Menntunar- og hæfniskröfur - Meistara- eða doktorspróf í jarðefnafræði eða skyldum greinum. - Reynsla á sviði efnafræði jarðhitakerfa æskileg. - Góð kunnátta í efnavarmafræði og eðlisefnafræði. - Frumkvæði og öguð vinnubrögð. - Lipurð í mannlegum samskiptum. - Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti. - Kunnátta í öðrum tungumálum, svo sem spænsku, frönsku eða þýsku, er kostur. ÍSOR leggur áherslu á að hækka hlutfall kvenna og yngra fólks í starfsliði sínu. Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Ö. Þorbjörnsson deildarstjóri (ingo@isor.is). Umsóknir má senda á netfangið gudny@isor.is, eigi síðar en 21. júlí 2014. www.isor.is J Ó N S S O N & L E ’M A C K S • jl .i s • S ÍA Sérfræðingur á Fjármálasviði Borgun leitar að reyndum og öflugum starfsmanni á Fjármálasvið fyrirtækisins. Starfsmaður tilheyrir reikningshaldsdeild Fjármála- sviðs og vinnur í nánu samstarfi við deildarstjóra reikningshalds. Helstu verkefni Bókun og afstemmingar Aðstoð við innleiðingu á bókhaldshluta nýs kortakerfis Uppgjörsvinna Skýrslugerð Önnur tilfallandi verkefni Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf á sviði viðskipta eða fjármála 3-5 ára reynsla af bókhaldsstörfum skilyrði Góð tölvukunnátta, t.d. Excel Reynsla úr fjármálageiranum er kostur Skipulögð og nákvæm vinnubrögð Góð þjónustulund og samskiptahæfileikar Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á www.borgun.is fyrir 27. júlí nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Rakel Ýr Guðmundsdóttir mannauðsstjóri í síma 560 1561 eða ryg@borgun.is. Ármúla 30 | 108 Reyk jav í k | S ími 560 1600 | w w w.borgun. is LAUGARDAGUR 5. júlí 2014 7

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.