Fréttablaðið - 30.08.2014, Síða 40

Fréttablaðið - 30.08.2014, Síða 40
FÓLK|HELGIN FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Venjulegur laugardagur? Þeir eru mjög misjafnir. Núna fara þeir svolítið eftir sex mánaða dóttur minni. Ef hún sefur út þá geri ég það líka. En í mínu djobbi sem frílans leikhúsmaður er ekkert til sem heitir rútína,“ segir Vignir Rafn Val- þórsson leikari spurður út í helgar- venjurnar. Hann segist ekki einu sinni fá sér eitthvað gott í morgunmat á laugardögum. „Ég fæ mér bara kaffi á morgnana alla daga og mikið af því. Borða yfirleitt ekkert fyrr en kaffisviti og titringur kemur yfir mig. Þá er oft komið hádegi,“ segir hann. Og hvað færðu þér þá að borða? „Kjöt! Ég borða eiginlega bara kjöt og ekkert meðlæti. Ég veit ekkert betra en að sitja fyrir framan heilt læri, sem ég veit að ég mun borða einn. Það tekur mig marga daga. Allur matur er betri kaldur, nema súpa. En súpa er náttúrlega ekki matur.“ Eftir máltíð sem inniheldur bara kjöt hlýtur að vera gott að fá ís eða eitthvað gott í eftirmat, eða hvað? „Ég borða aldrei eftirrétt og heldur aldrei nammi. Laugadagsnammið hjá mér væri helst bjór! En með tilkomu erfingjans hefur maður aðeins slakað á djamminu niðri í bæ. Best er að vera heima að drekka bjór, með fólki,“ segir hann sposkur og segist reyndar duglegur að bjóða gestum heim. „Já, já ég býð oft heim, í steik og bjór. Konan mín er samt mikill sælkeri og getur dútlað lengi í eldhúsinu við flókna og framandi rétti. Hún bakar brauð og kökur og er mikill meistari. En hvað mig varðar er það að kasta perlum fyrir svín,“ segir Vignir en bætir við að þrátt fyrir þetta ríki full- komin sátt á heimilinu. Undanfarnar vikur hefur Vignir staðið í ströngu en hann leikstýrir sýningunni Bláskjá sem nú er sett upp í annað sinn á Litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. „Sýningin verður bara sett upp í september en við tökum þátt í leik- listarhátíðinni Lókal núna um helgina. Það er sýning á morgun klukkan fjögur!“ Þú verður þá heima í kvöld og slakar á? „Nei, nei, við verðum að sleikja upp einhverja útlendinga í partíi í kvöld. Ég get líka drukkið eins og ég vil, ég er leikstjórinn. Það eru bara leikar- arnir sem þurfa að passa sig,“ segir hann hlæjandi. „Ég þarf reyndar að mæta eldsnemma í ungbarnasund í fyrramálið. En dóttir mín hefur bara svo gaman af því að ég læt mig hafa það.“ KJÖT OG KAFFISVITI HELGIN Vignir Rafn Valþórsson ætlar út í kvöld þó mikið standi til á morgun en hann leikstýrir sýningunni Bláskjá. Hann fylgir engri rútínu um helgar og veit ekkert betra en að sitja einn að steiktu kjötlæri. KAFFI OG KJÖT Vignir Rafn Valþórsson leikstýrir Bláskjá nú í annað sinn í Borgarleikhúsinu. Hann fylgir engri rútínu um helgar og ætlar út í kvöld þó mikið standi til á morgun. MYND/ANTON Save the Children á Íslandi Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Öll kínvesk leikfimi • Heilsu Qi Gong 5000 ára tækni • Heilsubætandi Tai chi • Hugræn teigjuleikfimi • Kung Fu fyrir 4 ára og eldri Í samstafi við Kínveskan íþrótta háskóla Einkatímarog hópatímar Fullt af tilboðum í gangi Fyrir alla aldurshópa Jafnvægi líkama og sál! - Nemendur geta að námi loknu gengið í Leiðsögufélagið - Hnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá sem vilja kynnast Íslandi í máli og myndum. Námið er opið öllum þeim sem áhuga hafa á að læra hvernig standa skal að leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland. -Flest stéttarfélög styrkja neme dur til náms. -Nemendur geta að námi loknu gerst félagsmenn í Leiðsögufélaginu Helstu námsgreinar: - Helstu viðkomustaðir ferðamanna á Íslandi í máli og myndum. - Mannleg samkipti, leiðsögutækni, hestar, fuglar og flóra. Framsaga. - Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta. - Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðaverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar hver á sínu sviði. Boðið er uppá dag – og kvöldnám, auk þess er farið í fjölda vettvangsferða. Umsögn: Leiðsögunámið í Ferðamálaskóla Íslands bætti miklu við þekkingu mína á landinu sem og sögu og menningu þjóðarinnar. Þessir þættir voru ofnir saman á einkar áhugaverðan og skemmtilegan hátt og kryddað margs konar fróðleik og frásögnum. Auk þess spannaði námið allt frá leiðsögutækni til laxveiðáa, frá skyndihjálp til skógræktar og frá hvalafræðum til hverasvæða svo nokkuð sé nefnt. Skipulag námsins var sveiganlegt en með ákveðnu aðhaldi stjórnenda sem skapaði gott andrúmsloft í þessum alþjóðlega hópi nemanda. Þessum tíma var mjög vel varið hvort sem maður hyggur á ferðaleiðsögn eða ekki. LEIÐSÖGUNÁM VIÐURKENNT STARFSNÁM AF ATVINNULÍFINU Opið 8-22 Magnús Jónsson fv. veðurstofustjóri Umsögn: S.l. vetur stundaði ég leiðsögunám í Ferðamálaskóla Íslands. Námið stóð vel u dir væntingum þar sem fjölmargir ke ar komu að kennslun i og áttu þeir a ðvelt með að ná til mín og auka áhuga minn á námsefninu og ekki síst að vekja mig til umhugsu ar um þá auðlind sem la dið okkar er og þá virðingu sem okkur ber að sýna því. Kennararnir voru mjög færir og fróðir hver á sínu sviði og áttu auðv lt með að koma efninu ti skila. Námi efur mikla atvinnumöguleika og spennandi tí r eru framundan. Guðrún Helga Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum HAUSTÖNNIN Í JÓGASETRINU HEFST 1. SEPTEMBER BYRJENDANÁMSKEIÐ í Kundalini Jóga KUNDALINI / HATHA / JÓGA NIDRA MEÐGÖNGUJÓGA / MÖMMUJÓGA JÓGA FYRIR BÖRN OG UNGLINGA Borgartúni 20 www.jogasetrid.is www.arka.is - arka@arka.is ... frískandi fyrir fólk á ferðinni
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.