Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 76

Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 76
KYNNING − AUGLÝSING LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 20146 ■ Vatn og viðargólf eru afleit blanda. Notið því vatn sparlega við þrif á parketgólfum og tryggið að gólfin þorni hratt og vel. ■ Notið sóp og ryksugu til að fjarlægja ryk, laus óhreinindi og mylsnu af yfirborði gólfins. Mikilvægt er að fjarlægja öll laus yfirborðsóhreinindi þar sem örsmá korn og sandur fínrispa parketið þegar skúr- að er. ■ Gætið þess að hafa ryksuguhausinn á mjúkri still- ingu til að forðast rispur og skemmdir á parketinu. Færið til húsgögn svo þrifið sé undan þeim líka. ■ Vatn án gólfsápu dugar ágætlega til gólfþvottar ef óhreinindi eru lítil. ■ Notið hreinsiefni sem eru sérstaklega framleidd fyrir tré- og parketgólf. Parketsápur eru hannaðar til að bæta parketið með nærandi efnum til að vernda það, auka endingu þess og gefa því fallegt útlit. ■ Notið moppu, vatn og viðeigandi parketsápur til að fara mildum höndum um parketið. Notið eins lítið vatn og sápu og unnt er til að forðast vatnsskemmd- ir. Notið ávallt mjúkar moppur en aldrei skúring- arskrúbb til verksins og aldrei sterk eða ætandi hreinsiefni á parketið. ■ Trégólf drekkur hratt í sig raka. Þurrkið því tafar- laust upp allan vökva sem lendir á gólfinu og hald- ið því þurru til að koma í veg fyrir að viðurinn verp- ist og skemmist. ■ Þegar parket hefur þornað eftir gólfþvott er fallegt að bera á það parketbón til að fá á það fallegan gljáa. Lesið leiðbeiningar vel áður en hafist er handa við að bóna. ■ Klippið klær gæludýra til að hlífa parketinu við risp- um. ■ Gott er að draga gluggatjöld fyrir sólríka glugga ef sólskin er langtímum saman til að parketið upplit- ist ekki. ■ Gætið vel að rakastigi innanhúss. Opnið glugga þegar eldamennska stendur yfir og þegar verið er í heitu baði til að draga úr röku lofti og auka ending- artíma gólfanna. Hvernig á að þrífa parketgólf? Parketgólf gefa heimilinu fagran og stásslegan blæ og setja punktinn yfir i-ið til að fullkomna fagurfræðilegan stíl heimilisins. Með góðri umgengni og réttum aðferðum við gólfþvottinn endist náttúruleg áferð parketsins um langa framtíð. Parket er sannkölluð heimilisprýði sem krefst vandlegra þrifa með réttum hreinsiefnum og áhöldum. Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti Við náum til fjöldans B ra n de n bu rg Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60% landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Örugglega til þín. Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300. Save the Children á Íslandi Parket
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.