Fréttablaðið - 30.08.2014, Page 104
30. ágúst 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 60
LAUGARDAGUR
11.45 Burnley - Man Utd Sport 2
14.00 Swansea - West Brom Sport 2
14.00 Man City - Stoke Sport 3
14.00 Newcastle - C.Palace Sport 4
14.00 QPR - Sunderland Sport 5
14.00 West Ham - Southampt. Sport 6
16.00 Stjarnan - Selfoss Sport & Vísir
16.30 Everton - Chelsea Sport 2
SUNNUDAGUR
12.30 Tottenham - Liverpool Sport 2
14.00 Aston Villa - Hull Sport 3
15.00 Leicester - Arsenal Sport 2
15.15 Hamburg - Kiel Sport
17.00 Villareal - Barcelona Sport
19.00 Sociedad - Real Madrid Sport
SPORT
EINBEITTAR Fyrirliðarnir með bikarinn en aðeins önnur þeirra fær að taka við honum á Laugardalsvelli í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Íslenska karlalandslið-
ið mætir því tyrkneska á Laugar-
dalsvelli 9. september í fyrsta leik
í undankeppni EM 2016 í Frakk-
landi. Lars Lagerbäck og Heimir
Hallgrímsson tilkynntu hópinn
sem mun mæta Tyrkjum á blaða-
mannafundi í höfuðstöðvum KSÍ
í gær.
Alfreð Finnbogason verður ekki
með vegna meiðsla, en landsliðs-
þjálfararnir völdu 24 leikmenn,
þar af þrjá nýliða: markvörðinn
Ingvar Jónsson, KR-inginn Hauk
Heiðar Hauksson og Hörð Björg-
vin Magnússon, leikmann Cesena
á Ítalíu. Hörður og Jón Daði Böðv-
arsson, leikmaður Viking í Noregi,
eru einnig í U-21 árs landsliðinu
og munu spila með því gegn Arm-
eníu hér heima 3. september. Það
kemur síðan í ljós hvort þeir leika
með U-21 gegn Frakklandi ytra 8.
september eða með A-landsliðinu
gegn Tyrklandi degi síðar.
Íslenska liðið fær lengri tíma
en oftast áður til undirbúnings,
en ákveðið var að spila ekki vin-
áttulandsleik í vikunni á undan
Tyrkjaleiknum. Landsliðið mun
hefja æfingar 2. september: „Við
munum byrja að æfa á þriðjudeg-
inum. Margir leikmannanna eru
að spila á sunnudeginum og þeir
fá mánudaginn til að ferðast til
landsins,“ sagði Lars Lagerbäck í
samtali við Fréttablaðið í gær og
bætti við: „Við Heimir ákváðum að
leika ekki vináttlandsleik eins og
svo mörg lið gera 3-4 dögum fyrir
fyrsta leik í undankeppninni. Við
vildum ekki missa þrjá daga til
æfinga úr. Við vildum frekar láta
liðið æfa og fara aftur og aftur yfir
það sem við ætlum okkur að gera í
leiknum gegn Tyrklandi.“
Heimir tók í sama streng. „Við
fáum nokkuð margar æfingar
fram að þessum leik svo við getum
nýtt tímann til að prófa nýjar
áherslur og hluti. Flestir leik-
mannanna eru að koma sér í gang
með sínum félagsliðum og okkur
fannst það mikilvægara að þessu
sinni að taka fleiri æfingar en að
spila æfingaleik,“ sagði Eyjamað-
urinn.
Lagerbäck segir að þeir Heimir
hafi valið stóran hóp að þessu sinni
til að gefa mönnum tækifæri til
að kynnast landsliðsumhverfinu:
„Það er gaman að sjá leikmenn
sem hafa hæfileika til að verða
betri. Við ákváðum að velja stærri
hóp en áður til að gefa hæfileika-
ríkum leikmönnum tækifæri til
að koma inn í landsliðið, kynnast
umhverfinu þar og vera í kringum
reyndari leikmenn. Við teljum að
það geti hjálpað þeim að þroskast
sem leikmenn, jafnvel þótt þeir
komi ekki til með að spila neitt,“
sagði sænski þjálfarinn.
Leikmannahópinn í heild sinni
má sjá inni á Vísir.is. - iþs
Mikilvægara að æfa en að spila
Lars og Heimir völdu 24 leikmenn í hópinn fyrir leikinn gegn Tyrklandi.
LARS OG HEIMIR Landsliðsþjálfarnir vildu ekki fórna þremur æfingadögum fyrir
vináttulandsleik að þessu sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
HM í körfubolta hefst á Spáni í dag en alls munu 24 lið keppa
um heimsmeistaratitilinn. Tíu lið sem gætu orðið andstæðing-
ar Íslands á næsta ári á EuroBasket 2015 taka þátt í HM í ár
en það eru Finnland, Frakkland, Grikkland, Litháen, Króatía,
Serbía, Slóvenía, Spánn, Úkraína og Tyrkland.
Á heimasíðu KKÍ er gefin upp góð leið til að verða sér úti
um áskrift að leikjum mótsins í gegnum LIVEbasketball.
tv sem er útsendingarsíða FIBA. Þar verður allt mótið í
heild sinni fáanlegt í góðum gæðum og öflugum útsend-
ingarstraum fyrir 5.99 dollara. KKÍ fær hlut af hverri
seldri áskrift sem fer í gegnum KKÍ.is og því getur
íslenskt körfuboltaáhugafólk styrkt KKÍ um leið og
það nær sér í hágæðakörfubolta næstu tvær vikurnar.
Fram undan er risastórt og fjárfrekt verkefni hjá KKÍ,
að fara með karlalandsliðið á sitt fyrsta stórmót, og
slíkur styrkur kæmi sér því vel.
Hægt að styðja KKÍ og horfa á HM
FÓTBOLTI Selfoss keppir í dag í
fyrsta sinn í bikarúrslitum í tæp-
lega 70 ára sögu félagsins þegar
liðið mætir ríkjandi Íslandsmeist-
urum í Stjörnunni á Laugardals-
velli. Það má búast við mikilli
spennu og skemmtun á vellinum
en í fyrri leik liðanna komu átta
mörk. Þrjátíu ár eru síðan kvenna-
lið Selfoss vann Stjörnuna síðast í
keppnisleik en taka verður fram að
liðin léku ekki leik sín á milli á 26
ára tímabili.
Pressa á Garðbæingum
Stjarnan er að keppa í fjórða sinn
í sögu félagsins í bikarúrslitum.
Fyrstu tvær tilraunirnar enduðu
í svekkelsi með 1-3 tapi fyrir ÍA
árið 1993 og 0-1 tapi fyrir Val 2010.
Þær náðu síðan að hefna fyrir síð-
ara tapið og tryggja sér fyrsta bik-
armeistaratitillinn árið 2012 með
1-0 sigri á Val.
Staða liðanna er heldur ólík,
Selfoss siglir lygnan sjó um miðja
deild á meðan Stjarnan stefnir
hraðbyri á þriðja Íslandsmeistara-
titilinn á fjórum árum.
Lykilleikmaður Stjörnunnar sem
Selfyssingar einfaldlega verða að
stöðva í dag er Harpa Þorsteins-
dóttir. Harpa hefur farið á kost-
um á tímabilinu en hún er lang-
markahæst í Pepsi-deildinni með
23 mörk í 13 leikjum, þar á meðal
fjögur í leik liðanna á Selfossi.
Lærum vonandi af síðasta leik
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir,
fyrirliði Stjörnunnar, segir að leik-
menn liðsins megi ekki vanmeta
Selfoss og á von á hörkuleik.
„Stemmingin í hópnum er gríð-
arlega góð, við erum virkilega vel
stemmdar og það verður gaman
að setja deildina til hliðar og fá að
spila bikarúrslitaleik. Við höfum
verið að spila gríðarlega vel en við
lentum í vandræðum í síðasta leik
og það verður vonandi vakningin
sem við þurftum,“ sagði Ásgerð-
ur sem vonast til þess að þær hafi
lært af jafnteflinu gegn Val.
„Ég held að þetta hafi komið á
réttum tíma og vonandi lærum við
af þessu og komum tilbúnar í leik-
inn á laugardaginn.“
Þetta eru miklir naglar
Ágústa á von á mikilli hörku á
vellinum líkt og í fyrri leik liðanna
í sumar. „Það er mikil stemming
í liðinu þeirra og það skiptir ekki
endilega máli að þetta sé fyrsta
skiptið þeirra í bikarúrslitum. Þær
eru alltaf vel stemmdar og skipu-
lagðar. Fyrri leikurinn fór fram
í frábærum aðstæðum á Selfossi,
hellidembu og þar var hart bar-
ist. Þetta eru miklir naglar og við
þurfum að mæta af sömu hörku.
Inn á milli eru þær með leikna
leikmenn sem við þurfum að hafa
gætur á,“ sagði Ásgerður. Selfoss
keppir í fyrsta sinn í sögu félags-
ins í úrslitum bikarsins en á leið
sinni í úrslitin hefur Selfoss slegið
út þrjú Pepsi-deildarlið.
„Við erum búnar að mæta sterk-
um liðum og þetta er búið að vera
skemmtilegt hingað til. Við eigum
fyllilega skilið að vera í úrslitun-
um og við förum í þennan leik til
þess að njóta hans, hafa gaman og
sjá hverju það skilar okkur.“
Guðmunda veit að verkefnið
verður erfitt á Laugardalsvellin-
um í dag eftir fyrri leik liðanna.
„Þetta verður erfiður leikur, það
er á hreinu en þær sýndu það í síð-
asta leik að það eru veikleikar. Það
eru að mínu mati helmingslíkur á
því hver sigrar í dag. Fyrri leikur
liðanna var mun jafnari en loka-
staðan gefur til kynna. Það skipt-
ir máli hvoru liðinu tekst betur að
ráða við spennustigið í leiknum.“
Búist er við að nýtt aðsóknar-
met verði sett á leiknum en von
er á gríðarlegum fjölda af stuðn-
ingsmönnum Selfoss. Sérstakar
rútuferðir ferja stuðningsmenn
liðsins á Laugardalsvöll í dag.
Rútuferðir að sunnan
„Stemmingin er bara mjög
góð, bærinn og eiginlega bara
allt Suðurlandið bíður eftir því
að koma á Laugardalsvöll og
styðja okkur. Það er gaman að
brjóta blað í sögu félagsins með
því að komast í úrslit og að gera
það með margar uppaldar stúlk-
ur. Það gerir þetta sérstakara og
það styðja allir í nágrenninu við
liðið. Það verða rútuferðir frá Sel-
fossi og það mun vonandi hjálpa
okkur að fá tólfta manninn með
okkur í lið,“ sagði Guðmunda.
kristinnpall@365.is
Allt Suðurlandið styður okkur
Selfoss leikur í dag í fyrsta sinn í sögu félagsins til úrslita í bikarnum. Þrjátíu ár eru síðan kvennalið Selfoss
sigraði Stjörnuna en fyrirliði liðsins telur að það séu helmingslíkur hver ber sigur úr býtum í Laugardalnum.
FÓTBOLTI Haukur Heiðar Hauksson,
hægri bakvörður KR, var valinn í
fyrsta sinn í íslenska landsliðið í gær
fyrir leikinn gegn Tyrklandi þann 9.
september næstkomandi. Haukur
hefur verið einn besti hægri bak-
vörður deildarinnar á tímabilinu
og meðal bestu leikmanna KR
en hann var gríðarlega sáttur
þegar Fréttablaðið heyrði í
honum í gær.
„Ég er náttúrulega mjög ánægður
með þetta, markmið mitt á þessu
tímabili var meðal annars að ná að
spila mig inn í landsliðshópinn og
ég er bara ánægður með að þessi
draumur er að rætast. Ég á einhverja
leiki að baki með yngri landsliðunum
en það var alltaf draumurinn að
ná að komast í A-landsliðið. Ég hef
ekkert farið í felur með það að mark-
mið mitt hefur alltaf verið að komast
í atvinnumennsku og í landsliðið,“
sagði Haukur, sem hafði heyrt að
Lars Lagerbäck og Heimir Hallgríms-
son væru að fylgjast með honum.
„Ég heyrði það frá vissum aðilum
að hann hefði verið að fylgjast með
mér og það gaf mér aukinn kraft
fyrir leikina sem ég hef verið að
spila að undanförnu. Ég er gríðarlega
spenntur fyrir þessu verkefni.“ - kpt
Markmiðið var að komast í landsliðið
DRAUMUR AÐ RÆTAST Haukur verður
í hóp gegn Tyrklandi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Leiknismenn eru svo
gott sem búnir að tryggja sér
sæti í Pepsi-deildinni í fótbolta á
næsta tímabili eftir markalaust
jafntefli á móti Víkingi í Ólafsvík
í gærkvöldi.
Leiknir hefur aldrei áður spilað
í efstu deild karla en liðið vantar
nú aðeins eitt stig út úr síðustu
þremur leikjum sínum til að gull-
tryggja endanlega úrvalsdeildar-
sætið. Í raun getur aðeins stærð-
fræðin tekið Pepsi-deildarsætið
af Leiknismönnum.
Leiknir er með níu stiga for-
skot á Víkinga og miklu betri
markatölu þegar aðeins níu stig
eru eftir í pottinum. Leiknir er
með 19 mörk í plús en Víkingar
aðeins með þrjú mörk í plús. - óój
Leiknir með
níu tær í Pepsi
SÖGULEGT SUMAR Ólafur Hrannar
Kristjánsson og félagar í Leiknisliðinu
eru á leiðinni upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR