Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 2
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
NÁTTÚRA Sprottin er upp sú hug-
mynd að nýju eldstöðvarnar norðan
Vatnajökuls dragi nafn sitt af hinu
sérstaka fyrirbæri úr steinaríkinu
sem þar fýkur um sanda, norna-
hárinu sem í raun er fínt og gler-
kennt basalt.
Það er Þorvaldur Þórðarson eld-
fjallafræðingur sem gerir þessa
nafngift að tillögu sinni, og að
umbrotin verði
nefnd Nornaeld-
ar.
Þorvaldur
gengur reyndar
skrefinu lengra
og leggur til
að nýja hraun-
ið verði nefnt
Nornahraun og
gígaröðin Norna-
gígar. Í rökstuðningi sínum fyrir
nafngiftinni bendir hann á að
„eldar“, er algeng ending á heitum
langvarandi gosa á Íslandi, enda
er samheitið jarðeldar. Hann tínir
einnig til önnur rök. Þegar eru til
tvö Holuhraun svo það lýsir að
hans mati ekki miklu hugarflugi að
nýja hraunið verði þekkt sem Holu-
hraun III. Þá sé mikil framleiðsla af
norna hári frekar en annað einkenn-
andi fyrir gosið.
Þorvaldur, sem hefur dvalið lang-
dvölum við gosstöðvarnar, segir að
eitt af sérkennum eldgossins sé
hversu mikið er af nornahári við
eldstöðina. Gasuppstreymið, sem
mikið hefur verið í fréttum, mótar
kvikuna með þessum hætti í örfín
hár, svo líkist einna mest manns-
hári sem fýkur um sandana norðan
jökulsins.
„Að nornahár myndist í svona
miklu magni hefur ekki fylgt öðrum
eldgosum nema þá Skaftáreldunum
HEILBRIGÐISMÁL Blámóðan frá Holuhrauni náði til Vestmanneyja í gær, og
þess vegna var hætt við að halda norræna skólahlaupið.
Elísa Kristmannsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Hamarsskóla, segir að
loksins þegar vel viðraði til útiveru í Vestmannaeyjum, þá hafi mengunin
frá Holuhrauni í fyrsta sinn látið virkilega finna fyrir sér. „Hér eru engir
mengunarmælar svo við fengum upplýsingar frá Hvolsvelli og frá Veður-
stofunni um að mengunin væri það mikil að forðast ætti áreynslu utan
dyra. Því þurftu 540 börn að hætta við að hlaupa – eins og við öll vorum
ánægð með að fá loksins sól og blíðu,“ segir Elísa og bætir við að reynt
verði að hlaupa í dag. Í versta falli, og verði ekki friður fyrir mengun, þá
verði reynt í næstu viku. - shá
Mengun frá Holuhrauni náði alla leið til Vestmannaeyja:
Skólahlaup blásið af vegna móðu
Í VESTMANNAEYJUM Eftir skítaveður síðustu daga spillti blámóðan blíðunni í gær.
Eldarnir dragi nafn
sitt af nornahárinu
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur gerir það að tillögu sinni að umbrotin í
Holuhrauni dragi nafn sitt af svokölluðu nornahári, fyrirbæri sem mikið fer fyrir
við eldstöðina. Fái tillagan hljómgrunn gæti nafnið Nornaeldar öðlast þegnrétt.
NORNAHÁR Gasið mótar kvikuna í örfín hár sem kennd eru við nornamakka.
MYND/ÞÞ
Eins og alþjóð veit hafa vísindamenn nefnt einstök fyrirbæri tengd gosinu
sér til hægðarauka í daglegum samskiptum sín á milli og við skýrslu-
skrif. Baugur var stærsti gígurinn nefndur. Gígarnir Norðri og Suðri eru
einnig þekktir, auk Baugsbarna– smágíga næst aðalgígnum. Það verður þó
sveitarstjórnarfólks í Skútustaðahreppi og Örnefnanefndar að kveða á um
framhaldið.
Það er sveitarfélagsins að hafa frumkvæði að því að náttúrufyrirbær-
unum verði gefið nafn, sem síðan yrði borið undir nefndina sem hefur
úrskurðarvald samkvæmt nýjum lögum um örnefni– og þá ekki síst til að
koma í veg fyrir að ónefni festist í sessi.
Sveitarfélagsins að ákveða nafngiftirnar
árið 1783, sem ég veit um. Það eru
heimildir sem greina frá því. Ekk-
ert þessu líkt hefur hins vegar áður
verið skráð með óyggjandi hætti í
íslensku gosi,“ segir Þorvaldur og
segir aðspurður að kollegar hans
flestir hafi hingað til tekið vel í
nafngiftina. Það sé síðar annarra að
kveða á um hvort nafnið fái þegn-
rétt. svavar@frettabladid.is
ÞORVALDUR
ÞÓRÐARSON
HOLLAND, AP Uhuru Kenyatta, for-
seti Kenía, fer fram á að dómarar
við Alþjóðlega sakamáladómstól-
inn í Haag felli niður ákærur á
hendur honum vegna glæpa gegn
mannkyni og sýkni hann helst í
leiðinni.
Hann kom til Hollands í gær til
að standa fyrir máli sínu, en hann
er sakaður um að hafa hvatt til og
fjármagnað ofbeldisverk sem kost-
uðu meira en þúsund manns lífið
og neyddu um það bil 600 þúsund
manns til þess að flýja heimili sín.
Þetta gerðist í kjölfar forseta-
kosninganna í Kenía árið 2007. - gb
Forseti Kenía í Haag:
Vill að ákærum
verði vísað frá
DÓMSMÁL Skýrslutaka saksóknara
af Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrver-
andi bankastjóra Landsbankans,
fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Sigurjón er ákærður ásamt
Ívari Guðjónssyni, fyrrverandi
forstöðumanni eigin fjárfestinga
Landsbankans, og verðbréfamiðl-
urunum Júlíusi Steinari Heiðars-
syni og Sindra Sveinssyni, fyrir
markaðsmisnotkun í aðdraganda
bankahrunsins.
Saksóknari spurði Sigurjón út
í mörg einstök viðskipti Lands-
bankans með eigin bréf á ákæru-
tímabilinu en hann vissi ekkert um
flest þeirra.
Hann bar við að rekstur bank-
ans hefði aldrei gengið upp ef hann
hefði þurft að skipta sér af öllum
viðskiptum. „Ég hafði ekki tíma til
að liggja yfir einstökum viðskipt-
um. Á meðan ég fékk ekki melding-
ar frá áhættustýringu um að það
væri verið að gera eitthvað rangt,
þá brást ég ekki við,“ sagði Sigur-
jón fyrir dómi í gær.
Einu viðskiptin sem Sigurjón
kannaðist við og viðurkenndi að
hafa átt frumkvæði að voru skipti
á hlutabréfum í Landsbankanum
og Glitni í september 2008. Þegar
saksóknari spurði hvort þau við-
skipti hefðu verið skynsamleg á
þeim tíma sagði Sigurjón svo hafa
verið. „Það er alltaf mjög skynsam-
legt að eiga stöðu í bankabréfum,
það var það líka á þessum tíma. Ég
átti aldrei von á því að Davíð Odds-
son myndi sprengja Glitni í loft upp
nokkrum dögum síðar,“ sagði Sig-
urjón um vikurnar áður en ríkið
þjóðnýtti Glitni.
Aðalmeðferðinni verður fram
haldið á morgun og hefjast þá
vitnaleiðslur. - skh/glp
Heldur því fram að viðskipti bankans með eigin hlutabréf hafi verið eðlileg:
Ekki tími til að sinna eftirliti
UNDIRBÚNIR Sigurjón Þ. Árnason og
verjandi hans, Sigurður G. Guðjónsson,
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMFÉLAGSMÁL „Ég er afar ánægð
með að vera byrjuð að vinna
þarna og er rosalega þakklát
fólkinu á skrifstofunni,“ segir
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir, sem
hóf störf í síðustu viku hjá Mann-
réttindaskrifstofu Reykjavíkur-
borgar. Steinunn er ein af þeim
sem rekið hafa kaffihúsið GÆS.
„Ég er að kynnast starfinu
hægt og rólega,“ segir Steinunn
og bætir við að hún stefni að því
að vera borginni til sóma.
Aðspurð hvernig mannrétt-
indamálin standi í Reykjavík
segir Steinunn: „Þau standa
ágætlega, nema að það vantar
kannski meiri umræðu um fatlað
fólk og að við séum hluti af sam-
félaginu.“
Ýmsar leiðir eru færar til að
auka umræðu um fatlaða, að
sögn Steinunnar. „Það er hægt
með aukinni fræðslu og virðingu
og með því sporna gegn fordóm-
um,“ segir hún.
„Við erum mjög ánægð með að
fá hana til starfa,“ segir Anna
Kristinsdóttir, mannréttinda-
stjóri Reykjavíkurborgar. Mikil
hjálp sé að Steinunni sem rödd
notandans í hinum ýmsu málum.
„Svo er hún afskaplega jákvæð
og skemmtileg,“ bætir Anna við.
Steinunn mun vinna að hinum
ýmsu málefnum fatlaðra, meðal
annars taka þátt í starfshópi sem
mun fjalla um heimilisofbeldi
gegn fötluðum og sinna verkefn-
um sem snúa að lengri viðveru
fatlaðra í framhaldsskólum.
- ih
Steinunn Ása Þorvaldsdóttir stefnir að því að efla umræðu um fatlaða og þátttöku þeirra í samfélaginu:
Ánægð og þakklát á nýjum vinnustað
Í NÝJU STARFI Steinunn Ása mun
sinna ýmsum verkefnum sem tengjast
málefnum fatlaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SLYS Bandarísk herþota af gerð-
inni F-15 hrapaði í gær á Eng-
landi, nánar tiltekið í Weston Hill
í Lincolnshire, og var barnaskóli í
grenndinni í mikilli hættu.
Flugmaðurinn slapp lítið meidd-
ur úr slysinu en hann náði að
skjóta sér út úr stjórnklefa vélar-
innar í tæka tíð. Hann var fluttur
á slysadeild til aðhlynningar.
Samkvæmt heimildum BBC var
þotan við æfingar þegar slysið átti
sér stað. Ekki liggur fyrir að svo
stöddu hvað olli því en það mátti
finna brak úr vélinni mörg hundr-
uð metra frá slysstað. - glp
Bandarísk herþota hrapar:
Brakið dreifðist
um víðan völl
Sigurjón, má búast við mikilli
ófærð erlendis á næstunni?
„Já, ég spái móðuharðindum um
alla Evrópu.“
Sigurjón Kjartansson er einn handritshöf-
unda íslensku þáttaraðarinnar Ófærðar, en
hún hefur nú þegar verið seld til Frakklands,
Þýskalands og Norðurlandanna.
SPURNING DAGSINS
➜ Nornahár
Kvikan sem kemur upp í Holu-
hrauni hefur að mestu runnið
sem hraun. Hraunið þekur nú
rúmlega 52 ferkílómetra. Það
efni sem ekki rennur sem hraun
fellur til jarðar sem litlir hraun-
molar eða sem Nornahár, sem er
fínt og glerkennt basalt.