Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 38
9. OKTÓBER 2014 FIMMTUDAGUR4 ● Geðhjálp Börn og ungmenni með tvíþættan vanda er yfirskrift málþings Geðhjálpar og Olnbogabarna á Grand Hóteli þann 23. október. Fjölmargir fagaðilar taka til máls til að svara spurningum um hvernig heilbrigðis- og velferðarþjónustan komi til móts við börn og ungmenni með geðrænan vanda og vímuefnavanda. Á málþinginu munu fjórar ungar og efnilegar konur ræða sína eigin reynslu af tvíþættum vanda og kynna hugmyndir sínar að árangursríku úrræði fyrir þennan hóp. Hér deila konurnar upplifun sinni af geðsjúkdómum, vímuefnaneyslu, kerfinu og hvað hjálpaði þeim að ná jafnvægi í lífinu. Súsanna Sif Jónsdóttir (23 ára) Ég byrjaði í neyslu tólf ára en hef verið edrú í tvö og hálft ár,“ segir Súsanna, sem er með geðhvörf en var ekki greind með þau fyrr en tvítug, árið 2011 þegar hún varð edrú í fyrsta sinn. „Ég vissi þó alltaf að það væri eitthvað að mér, fór á milli lækna og var í viðtölum á Barna- og unglingageðdeild þegar ég var átta til níu ára og aftur frá því að ég var þrettán til fjórtán ára samfleytt til sex- tán ára. Ég var sett á mismunandi þunglyndis- lyf sem gerðu ekkert fyrir mig, en það var allt- af talið að maníueinkenni mín væru tengd eit- urlyfjum. Þegar ég hætti neyslu breyttist hins vegar hegðunin ekki, þá fékk ég greiningu og rétt lyf sem ég er á í dag,“ segir Súsanna, sem líður eðlilega á lyfjunum. „Ég finn þó enn þá fyrir maníu og þunglyndi og kærastinn minn þarf að fylgjast vel með mér því ég geri mér ekki grein fyrir því þegar manían er í gangi. Mér finnst gott að hann bendi mér á þessa hegð- un og svo hefur hann samband við geðlækninn minn ef eitthvað mikið er að gerast. Til dæmis um daginn þegar ég fékk mér þrjú tattú á einum degi, alveg út í bláinn,“ segir hún glettin. Enda þótt Súsanna hafi fengið greiningu seint segist hún skilja að eiturlyfjunum hafi verið kennt um. Hins vegar sárni henni að ekki hafi verið kannað nánar hvort manísk hegðun hennar gæti átt aðrar orsakir. „En svo er reynd- ar ekkert víst hvort það hefði verið hægt að hjálpa mér og hvort ég hefði tekið lyfin,“ segir hún en vildi óska að stuðningurinn hefði verið meiri. „Ég hefði þurft viðtalsmeðferð og ein- hvern til að benda mér á mína eigin ábyrgð,“ segir Súsanna sem þakkar tólf spora kerfinu sínum bata. „Ég þurfti á hugarfarsbreytingu að halda. Ég þurfti að vita að ég væri ekki fórnar- lamb heimsins og að ekki væru allir á móti mér. Þessu gerði ég mér grein fyrir þegar ég fór að vinna tólf sporin. Þá fékk ég aðra sýn á heim- inn.“ Súsanna segist búa að allri þeirri hjálp sem hún hefur fengið en að hún hefði hins vegar aldrei orðið edrú ef ekki væri fyrir tólf sporin. Á málþinginu þann 23. október fær Sús- anna ásamt öðrum ungmennum tækifæri til að koma með sínar hugmyndir um hvers konar úrræði henti best ungmennum með tvíþættan vanda upp í 25 ára aldur. „Mig langar að leggja áherslu á aðstoð fyrir foreldra barna sem eru með geðsjúkdóm. Þeir vita ekki hvert þeir eiga að leita eða hvernig eigi að bregðast við þegar barnið læsir sig inni á baði með hníf eins og ég gerði,“ segir Súsanna. Hún myndi einnig kjósa að meðferðir innan BUGL væru einstaklings- miðaðri. „Ég kynntist frábæru fólki á BUGL en fannst aldrei neinn einn sjá um mín mál,“ segir hún. Hún bætir við að lokum að aðgangur að geðlæknum þyrfti að vera mun betri þegar átján ára aldri er náð. „Það er ekkert djók að fá tíma hjá geðlækni. Margir eru með fasta sjúk- linga og taka ekki nýja og fólk kemst ekki að nema gegnum klíkuskap.“ Sara H. Bjarnadóttir Blöndal (18 ára) „Ég byrjaði að finna fyrir einkennum þung- lyndis þegar ég var átta ára gömul og var í kjölfarið send á BUGL níu ára gömul eftir að hafa reynt að fremja sjálfsmorð. Þá fékk ég margar blaðsíður af greiningum,“ segir Sara, en móðir hennar vildi heldur prófa náttúrulyf þar sem hún vildi ekki setja svo ungt barn á þunglyndislyf. „Við það ágerðist þunglyndið enn meira, ég varð leiðari og leiðari, kvíðinn bættist við og ég gat ekki mætt í skólann. Ég braut sjálfa mig niður þegar mér tókst ekki að ná markmiðum mínum og að lokum komst ég á það stig að mér fannst ekkert annað að gera í stöðunni heldur en að deyfa sársaukann með því að fara í neyslu,“ segir Sara. Henni fannst á þeim tíma ákveðin lausn fólgin í neyslunni. „Ég hafði upplifað vanlíðan svo lengi og þarna losnaði ég við hana um tíma, tólf ára gömul.“ Sara var í harðri neyslu. „Ég prófaði hvert efnið á fætur öðru og fór mjög fljótt á mjög slæman stað. Hálfu ári eftir að ég byrjaði að nota efni var mér loksins boðinn viðtalstími á BUGL og þá áttuðu menn sig loksins á því að ég þyrfti þunglyndislyf en sögðu að ég yrði að hætta neyslu til að fá þau. Í kjölfarið sendu þau mig á Vog, þrettán ára gamla,“ lýsir Sara sem er ekki sátt við að það hafi verið eina úrræðið fyrir óharðnaðan ungling. Hið jákvæða var þó að eftir meðferðina á Vogi kynntist Sara tólf spora samtökum. „Þá fékk ég vonarneista og á næstu mánuðum reyndi ég og reyndi að vera edrú en alltaf þegar ég hætti kom upp þunglyndið. Ég náði þrem- ur mánuðum þegar ég var nýorðin fjórtán ára en fyrir þremur og hálfu ári náði ég að hætta alveg, þá enn þá fjórtán ára,“ segir Sara stolt. Sara segir að margt hefði mátt betur fara í hennar máli. „Til dæmis að vera send í óskipu- lagða rannsókn á BUGL níu ára gömul þar sem ég svaraði sama spurningalistanum hjá sjö mis- munandi læknum. Að vera send á Vog þrettán ára gömul. Að það sé ekki búið að endurskoða lyfin mín í þrjú ár og að ég fái enga viðtals- tíma,“ segir Sara sem nú er orðin átján ára og þarf því að leita aðstoðar utan BUGL. Hún er þó bjartsýn á framhaldið. „Já, auð- vitað. Lífið breyttist þegar ég fékk loksins rétt úrræði fjórtán ára gömul, komst í einstak- lingsmiðaða langtímameðferð á Laugalandi og komst í kynni við tólf spora samtök þar sem ég náði stjórn á eigin lífi.“ Glódís Tara Fannarsdóttir (24 ára) „Ég var tólf ára þegar ég byrjaði í neyslu og var send á Stuðla þrettán eða fjórtán ára gömul. Þar var ég hjá geðlækni sem gerði lítið annað en að skrifa upp á sama lyfið fyrir mig og alla hina á Stuðlum. Síðan var ákveðið að senda mig á Hvítárbakka í langtímameðferð. Þar var ég aðeins í mánuð og síðan var ég send til baka í neyðarvistun þar sem ekki var hægt að hafa mig, þeir vissu ekkert hvað var að mér,“ segir Glódís Tara. Þaðan lá leiðin í meðferðarheimil- ið Háholt. „Þeir töldu að hegðunarvanda minn mætti skýra með uppeldi en voru ekkert að at- huga hvort þetta ætti sér einhverjar aðrar skýr- ingar.“ Glódís var síðar meir greind með geð- hvörf en bendir á að ekki sé hægt að fá grein- ingu við því fyrr en eftir átján ára aldur. „Ég þvældist því í gegnum kerfið án þess að fá neina lausn. Maður lærir vissulega punkta um hvern- ig eigi að halda sér edrú en ekki meira en það.“ Glódís var 17 ára þegar hún fór frá Háholti. Hún var edrú í smátíma eftir það en féll aftur. „Ég fór í tólf spora samtök og byrjaði að taka á mínum málum í lok ársins 2009. Í kjölfarið fór ég í endurhæfingu hjá Hringsjá og fékk aðstoð sálfræðings.“ Það var síðan eftir slæmt kast sem Glódís endaði á bráðamóttöku geðsviðs Landspítalans. Hún fór í framhaldinu á göngu- deild geðsviðs þar sem hún var loks greind með geðhvörf og byrjað var að finna lyf sem gætu hjálpað. „Ég held ég sé búin að prófa sjö mis- munandi lyf og það sem ég tók síðast virkaði ágætlega. Ég er reyndar lyfjalaus núna af því ég er ólétt,“ segir Glódís sem á fyrir einn fjög- urra ára son. Hún hefur verið edrú frá því í janúar á þessu ári. Glódís segist ekki óttast að vera lyfjalaus á meðgöngunni. „Það er vel fylgst með mér þar sem ég er í áhættumeð- göngu. Það er teymi sem heitir FMB sem hitt- ir mig vikulega og ef eitthvað kemur upp á get ég farið á lyf sem hjálpa.“ Innt eftir því hvernig bæta mætti þjón- ustu við ungmenni með tvíþættan vanda svar- ar Glódís; „Þetta þarf allt að vera meira ein- staklingsmiðað. Í flestum tilfellum er eitthvað undirliggjandi hjá þeim sem fara snemma illa í neyslu. Þá þurfa viðbrögð kerfisins að vera fljótari. Það vantar sem sagt fleiri og einstak- lingsmiðaðri úrræði.“ Sunneva Ýr Sævarsdóttir (19 ára) „Mér fannst alltaf vera eitthvað öðru vísi við mig. Mér fannst skrítið að allir gætu ráðið við skap sitt nema ég, enda þurfti lítið til að ég yrði mjög þunglynd eða ofsareið,“ segir Sunn- eva Ýr sem greind var með ADHD sem barn og seinna með geðhvörf. „Þegar ég var tólf að verða þrettán var ég orðin rosalega ofbeld- isfull. Ég sá rautt og fékk brjálæðisköst, var þunglynd og alltaf að tala um að fremja sjálfs- morð. Ég tók æðisköst og var bara algjörlega stjórnlaus,“ lýsir Sunneva. Hún drakk nánast daglega á þessum tíma og misnotaði rítalínið sem hún átti að taka við ofvirkninni, tók það í staðinn í nefið. Móðir hennar fékk tíma hjá geðlækni og í framhaldinu var hún tekin í bráðainnlögn á BUGL. „Fyrst var ég í neyðarvistun í þrjá daga og síðan lögð inn í mánuð.“ Sunnevu fannst innlögnin sjálf ekki hjálpa sér mikið en segist hafa verið svo lánsöm að kynnast geðhjúkrunarfræðingi sem heitir Ragna. „Ég var alltaf með hroka og leiðindi við alla lækna og sálfræðinga en Ragna náði til mín því hún talaði við mig sem jafningja. Hún á rosa stóran þátt í því að ég er enn á lífi í dag.“ Sunneva hélt þó áfram á rangri braut. „Fjór- tán ára byrjaði ég að reykja gras og ári síðar var ég farin að reykja á hverjum degi enda Þvældust um kerfið í fjölmörg ár Mér fannst alltaf vera eitthvað öðru vísi við mig. Mér fannst skrítið að allir gætu ráðið við skap sitt nema ég. Sunneva Þeir töldu að hegðunar- vanda minn mætti skýra með uppeldi en voru ekkert að athuga hvort þetta ætti sér einhverjar aðrar skýringar. Glódís Tara Mig langar að leggja áherslu á aðstoð fyrir foreldra barna sem eru með geðsjúkdóm. Þeir vita ekki hvert þeir eiga að leita eða hvernig eigi að bregðast við þegar barnið læsir sig inn á baði með hníf eins og ég gerði. Súsanna Í kjölfarið sendu þau mig á Vog, þrettán ára gamla Sara
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.