Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 30
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Einn maður með Alzheimergreiningu hefur haldið erindi um hvernig hann tæklar lífið, það var lærdómsríkt. Guðmunda Steingrímsdóttir sjúkraliði. Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, DAGBJARTUR MAJASSON frá Leiru í Grunnavíkurhreppi, síðast búsettur í Sydney, Ástralíu, lést laugardaginn 4. október síðastliðinn. Björk Dagbjartsdóttir Gary Potter Reynir Potter Erika Hanrahan Sean Hanrahan Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN ÞÓR HANSEN málarameistari, Hólavegi 11, Sauðárkróki, sem lést 30. september, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju 11. október kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að leyfa Sauðárkrókskirkju að njóta þess. Sigurbjörg Egilsdóttir Kristján Örn Kristjánsson Egill Jón Kristjánsson Ásdís Kristjánsdóttir María Kristjánsdóttir tengdabörn, barnabörn og langafastelpa. Þökkum innilega auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og útför föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS STEFÁNS SIGURBJÖRNSSONAR Víðilundi 24, Akureyri. Fjölskylda hins látna. Ástkær eiginmaðurinn minn, faðir, fósturfaðir og afi, LEIFUR TEITSSON Prestastíg 6, lést á Landspítalanum við Hringbraut þann 4. október sl. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju föstudaginn 10. október kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir Kristín Leifsdóttir Hrafn Leifsson Skúli Leifsson Ásta Kristín Guðbjörnsdóttir Haraldur Guðbjörnsson Guðbjörn Guðbjörnsson Ástkær móðir okkar, JÓHANNA JÓHANNESDÓTTIR frá Brekkum í Mýrdal, lést að kvöldi 6. október á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík. Fyrir hönd aðstandenda, Auðbert Vigfússon Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, INGIBJARGAR MARKÚSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir góða umönnun, hlýju og alúð. Marta Katrín Sigurðardóttir Halldór Sigdórsson Áslaug Brynja Sigurðardóttir Birgir Ólafsson Ármann Óskar Sigurðsson Fríða Björnsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURLÍNA G. STEFÁNSDÓTTIR Víðilundi 24, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánudaginn 6. október. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 13. október kl. 13.30. Einar Þ. Hjaltalín Árnason Ásgerður Jónsdóttir Kjartan Hauksson Jóhanna Rósa Jónsdóttir Ríkarður Guðjónsson Þórlaug Einarsdóttir Jón Stefán Hjaltalín Einarsson Lorena Nicoleta Zamfir ömmu- og langömmubörn. „Við erum hluti af sönghópi sem var stofnaður í Eyjum á sínum tíma til að syngja lög við ljóð Jónasar Árnason- ar. Nýlega sá ég þátt um Jónas í sjón- varpinu og datt þá í hug að reyna að dusta rykið af þessum hópi og fá hann til að syngja á Alzheimerkaffi, bæði sérstaka efnisskrá og með gestum,“ segir Guðmunda Steingrímsdóttir sjúkraliði brosandi, um hóp sem er staddur heima hjá henni. Guðmunda er ein þriggja kvenna sem stofnuðu Alzheimerkaffi í félags- miðstöðinni í Hæðargarði í Reykjavík í ársbyrjun 2013 sem tilraunaverk- efni til tveggja ára og telur það hafa tekist vel. „Við erum þrjár sem höld- um utan um verkefnið en fjölmargir hafa lagt okkur lið. Eiginmenn okkar, fjölskyldur og tvær konur hafa verið með okkur allan tímann og fleiri eru á hliðarlínunni, fyrirtæki hafa stutt okkur með veitingum og fyrirlesarar og skemmtikraftar hafa flestir komið fram endurgjaldslaust. Þetta er allt ómetanlegt.“ Oftast mæta um þrjátíu manns í kaffið, mest fastur kjarni. Fólk með minnissjúkdóma er aðalgestirnir, ættingjar þeirra fylgja með og einn- ig kemur fólk sem hefur áhuga á við- fangsefninu. Fræðsla í léttari kant- inum er jafnan á dagskrá og stundum koma skemmtikraftar, að sögn Guð- mundu. „Við höfum fengið lækni, sálfræð- ing, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, uppi- standara og ljóðahóp, svo nokkuð sé nefnt. Einn maður með Alzheimer- greiningu hefur haldið erindi um hvernig hann tæklar lífið, það var lærdómsríkt. Aðalheiður Þorsteins- dóttir píanóleikari spilar oftast fyrir okkur, sem er dýrmætt og það er orðinn til lítill kór sem stendur við píanóið þegar kemur að söngstund- inni í lokin. Stundum fær fólk sér líka snúning. Við sjáum að fólk fer mjög glatt út og þá er tilganginum náð.“ Alzheimerkaffið er annan hvern fimmtudag milli klukkan 17 og 19. Slíkur dagur er í dag. Aðgangur kost- ar 500 krónur og innifalin er fræðsla, skemmtun, kaffi og meðlæti. Hvort framhald verður á starfseminni eftir áramótin veit Guðmunda ekki á þess- ari stundu en hún vonar það. „Fólkið sem mætir þarf á þess- ari upplyftingu að halda. En þó við höfum fengið smá styrki og notið stuðnings á margan hátt erum við allar að vinna þetta verkefni í sjálf- boðavinnu, ég veit ekki hvort við getum haldið því áfram þannig mikið lengur.“ gun@frettabladid.is Fólk fer glatt út og þá er tilganginum náð Alzheimerkaffi er annan hvern fi mmtudag í félagsmiðstöðinni Hæðargarði 31. Í dag er þar fræðsla um músíkþerapíu og sönghópur fl ytur lög við ljóð Jónasar Árnasonar. Í STIGANUM Guðmunda hóaði sönghópnum heim til sín til æfinga fyrir Alzheimerkaffið. Hún er fremst fyrir miðju með hinar umsjónarkon- urnar, Kolbrúnu Sigurpálsdóttur og Pálínu Skjaldardóttur, hvora á sína hönd. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Fyrsta einkarekna sjónvarpsstöðin á Íslandi, Stöð 2, hóf útsendingar þennan dag árið 1986. Hún var stofnuð að frumkvæði Jóns Óttars Ragnarssonar matvælafræðings og Hans Kristjáns Árnasonar viðskiptafræðings og á grundvelli laga sem tóku gildi í árs- byrjun 1986 sem leyfðu einkareknar útvarps- og sjónvarpsstöðvar. Fyrst á dagskrá Stöðvar 2 var ávarp Jóns Óttars sjónvarpsstjóra en eitthvað var tæknin að stríða því að þótt hann tæki sig vel út á skjánum vantaði allt hljóð svo áhorfendur heyrðu ekki boðskap hans. Páll Magnússon var fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2 og fljótlega gekk Valgerður Matthías- dóttir til liðs við stöðina og var áberandi í útlitshönnun og dagskrárgerð. ÞETTA GERÐIST: 9. OKTÓBER 1986 Stöð 2 fór í loft ið í fyrsta sinn FYRSTA ÚTSENDING STÖÐVAR 2 Jón Óttar Ragnarsson sjónvarpsstjóri flytur ávarp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.