Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 70
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 50 Nú er ég staddur í Nýju-Delí, höfuð-borg Indlands. Það er mikil upplifun að dvelja í þessum heimshluta og hverfið sem ég bý í er gerólíkt öllu því sem ég á að venjast á Íslandi. EINN Indverjinn spurði hvort mér fyndist göturnar ekki vera hreinar þann daginn. Ég sagðist nú hafa séð hreinni götur en spurði til baka hvers vegna mér ætti að finnast það. Jú, Narendra Modi forsætis- ráðherra hafði sagt í útvarpinu um morg- uninn að allir ættu að leggja hönd á plóg og taka til og hætta alfarið að henda rusli. MODI er líka búinn að beina þeim tilmæl- um til landsmanna að best sé að hætta að reykja og vill hann svo að menn hætti að skyrpa munntóbaki út um allt. Það er lúxus að hafa svona föðurlegan forsætisráðherra hugsaði ég. Það taka allir vel í þetta. Það elska allir Modi og allir vilja vera með honum í liði. „HANN fór og hitti Banda- ríkjaforseta um daginn og Obama greyið vissi ekkert hvernig hann átti að hegða sér, hann var svo impóneraður af Modi,“ sagði annar leið- sögumaður. AF hverju er Modi svona vinsæll? spurði ég. „Modi er einn af okkur, hann er maður fólksins. Hann var tesölumaður áður en hann fór út í stjórnmál. Hann vill sam- einað og sterkt Indland og tekur sér aldrei frí, hann vinnur á sunnudögum,“ sagði annar leiðsögumaður. Ég svaraði á móti. Þú þekkir ekki Sig- mund Davíð. HANN kynnti okkur fyrir íslenska kúrnum, gætir þess að við fáum bara hollt og gott íslenskt smjör, lambakjöt og svið. Hann er búinn að komast að því að útlensku vörurnar leiða til geðveiki eða dauða. Hann fer bara í viðtöl á Bylgjunni. Hann gætir þess að vera ekki of útkeyrð- ur í því mikilvæga starfi, sem hann gegn- ir fyrir okkur af mikilli óeigingirni og fer oft í frí til Flórída. Þegar Sigmundur hitti Barack Obama á leiðtogafundi hafði Obama orð á því að þetta væri fundur sem hann mundi aldrei gleyma. ÞAÐ var vegna þess að Sigmundur mætti í sitthvorum skónum. Einum spariskó og einum íþróttaskó. Hvað finnst þér um það? ÞÁ svaraði Indverjinn: „Bylgjan? Hvað í fjandanum er það eiginlega?“ Föðurlegir ráðherrar BAKÞANKAR Frosta Logasonar STJÖRNUSÍLIN KOMA SENN Í HEIMINN Leikkonan Blake Lively tilkynnti það í þessari viku að hún ætti von á barni með eiginmanni sínum, leikaranum Ryan Reynolds. Blake er langt frá því að vera eina stjarnan sem er barnshafandi um þessar mundir og ljóst er að von er á mikilli barnasprengingu á næstu vikum og mánuðum í heimi fræga fólksins. VILJA STÓRA FJÖLSKYLDU Leikkonan Blake Lively tilkynnti það á heimasíðu sinni Preserve að hún ætti von á barni með leikaranum Ryan Reynolds. Hjónin hafa oft látið hafa eftir sér að þau vilji stofna til fjölskyldu og jafnvel eignast nokkur börn. PRINSINN EIGNAST SYSTKINI Kate Middleton, hertogaynjan af Cam- bridge, og eiginmaður hennar, Vilhjálmur prins, eignuðust soninn George í júlí í fyrra. Þann 8. september síðastliðinn tilkynntu þau að annað barn væri á leiðinni. LINCOLN FÆR SYSTKINI Leikarahjónin Kristen Bell og Dax Shepard eignuðust dótt- urina Lincoln Bell Shepard í mars í fyrra og í júní á þessu ári kom í ljós að þau eiga von á sínu öðru barni. Á VON Á SÉR Í DESEMBER Raunveru- leikastjarnan Kourtney Kardashian á von á þriðja barninu með kærasta sínum, Scott Disick, en nýjasti fjöl- skyldumeðlimurinn er væntanlegur í heiminn í desember. Fyrir eiga þau soninn Mason, fimm ára, og dótturina Penelope, tveggja ára. ÓLÉTT IDOL-STJARNA Söngkonan Carrie Under- wood, sem fór með sigur af hólmi í American Idol árið 2005, á von á sínu fyrsta barni með eigin- manni sínum, Mike Fisher. BARN OG BRÚÐKAUPSAFMÆLI Söngkonan Alicia Keys og eiginmaður hennar, Swizz Beats, áttu fjögurra ára brúðkaupsafmæli 31. júlí síðastliðinn. Sama dag sögðu þau aðdáendum sínum frá því á Instagram að þau ættu von á öðru barni en fyrir eiga þau soninn Eygpt sem er þriggja ára. STYTTIST Í STÚLKUNA Nú styttist í að leik- konan Hayden Panettiere verði léttari en hún á von á sínu fyrsta barni með úkraín- ska boxaranum Wladimir Klitschko. Hún talaði af sér á rauða dreglinum á Emmy-verðlauna- hátíðinni í lok ágúst og missti út úr sér að þau ættu von á stúlku. THE EQUALIZER KL. 6 - 9 PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15 BOYHOOD KL. 5.40 - 9 VONARSTRÆTI KL. 6 - 9 KL. 5.45 - 8 - 10.15 DRACULA LÚXUS KL. 10.45 THE EQUALIZER KL. 5 - 8 - 10.45 THE EQUALIZER LÚXUS KL. 5 - 8 THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 - 10.30 LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8 - 10.15 PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL 2D KL. 3.30 AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30 SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR THE CONJURING THE FRIGHT FILE ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR, MORGUNBLAÐIÐ DRACULA UNTOLD 8, 10 SMÁHEIMAR 5:40 THE EQUALIZER 6, 9 WALK AMONG TOMBSTONES 5:40, 8, 10:20 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Kanadíska tvíeykið Crystal Castles hefur lagt upp laup- ana. Söngkonan Alice Glass til- kynnti um þetta á fésbókarsíðu sinni. „List mín og tjáning, á hvaða formi sem er, hefur alltaf verið tilraun til einlægni og sam- kenndar með öðrum. Vegna fjöl- margra ástæðna, persónulegra og faglegra, tel ég þetta ekki vera mögulegt lengur innan Crystal Castles. Þó að þetta séu enda- lok hljómsveitarinnar vona ég að aðdáendur mínir muni taka á móti mér sem sólólistamanni á sama hátt og þau tóku á móti Crystal Castles.“ Crystal Castles hóf störf árið 2005. Sveitin spilaði á Iceland Airwaves-tónlistarhátíðinni árið 2008. - þij Crystal Castles hætt störfum ALICE GLASS rokkari og ljóðskáld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.