Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 6
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hvað kostuðu slys í umferðinni
ríkið á síðasta ári?
2. Hvað er gígurinn Baugur orðinn
hár?
3. Hvaða íslenska kvikmynd hefur
verið tilnefnd til verðlauna á alþjóð-
legu kvikmyndahátíðinni í Chicago?
SVÖR:
1. 40 til 50 milljarða. 2. 100 metrar. 3. París
norðursins.
LÖGREGLUMÁL Fangi á Kvíabryggju
var handtekinn af lögreglu í lok
síðasta mánaðar vegna gruns um
aðild að skipulagningu, fjármögn-
un og innflutningi á fíkniefnum til
landsins.
Alls voru fjórir karlmenn hand-
teknir og settir í gæsluvarðhald í
tengslum við málið.
Handtakan var þáttur í umfangs-
miklum aðgerðum lögreglu sem
lagði hald á um hálft kíló af amfeta-
míni við rannsókn, en við húsleit var
einnig lagt hald á MDMA, stera og
umtalsverða peningafjárhæð sem
er talin vera til komin vegna fíkni-
efnasölu.
Fangar á Kvíabryggju hafa
aðgang að interneti og er frjálst að
hafa farsíma sem þeir þurfa þó að
skila til fangavarða fyrir nóttina.
Tugur manna var yfirheyrður
vegna málsins sem telst nú upplýst.
Maðurinn, sem er 27 ára gamall,
á sakaferil sem nær aftur til 2003
og hefur ítrekað komið við sögu
lögreglu. Hann var að taka út dóm
fyrir fíkniefna-, vopna- og umferð-
arbrot á Kvíabryggju þegar lögregl-
an handtók hann vegna brotanna.
Friðrik Smári Björgvinsson yfir-
lögregluþjónn segir ekkert eins-
dæmi að fangi sé tekinn við glæp-
samlegt athæfi innan fangelsismúra
og að slík brot séu alltaf litin alvar-
legum augum.
Páll Winkel fangelsismálastjóri
segir að það komi fyrir annað slag-
ið að fangar verði uppvísir að lög-
brotum innan fangelsisins. Slíkt
hafi áhrif á framgang í refsivistinni.
Fangar sem brjóta af sér eru ýmist
settir í gæsluvarðhald eða lokað
fangelsi og missa öll fríðindi. „Þetta
hefur auðvitað áhrif á framgang í
refsivistinni. Þetta hefur áhrif á
dagleyfi, reynslulausn, vistunar-
stað og svo framvegis. Ef upp koma
grunsemdir um að fangi sé að gera
eitthvað af sér fara þær upplýsing-
ar beinustu leið til lögreglu og við
gerum þá okkar besta til að aðstoða
lögreglu við að upplýsa brot,“ segir
Páll. hannarut@frettabladid.is
VEISTU SVARIÐ?
Þetta
hefur auð-
vitað áhrif á
framgang í
refsivistinni.
Þetta hefur
áhrif á
dagleyfi, reynslulausn,
vistunarstað og svo
framvegis.
Páll Winkel fangelsismálastjóri.
FERÐALÖG Efla verkfræðistofa og
Studio Grandi sigruðu í samkeppni
Vina Þórsmerkur og Vegagerðar-
innar um hönnun göngubrúar yfir
Markarfljót við Húsadal.
Dómnefndin segir helstu kosti
vinningstillögunnar þá að brúin
falli nokkuð vel inn í umhverfið og
sé látlaus.
„Form brúarinnar er einfalt, svíf-
andi og látlaust. Það er sniðið að
landslaginu báðum megin árinnar
og fellur eðlilega að landi í um níu
metra hæð yfir Markarfljótsaurum,“
segir í greinargerð hönnuðanna.
Brúin á verða 168 metra löng.
Vinir Þórsmerkur voru stofnað-
ir árið 2010 af ferðaþjónustuaðilum
með starfsemi í Þórsmörk. Þetta eru
Ferðafélag Íslands, Ferðafélagið Úti-
vist, Farfuglar og Kynnisferðir auk
Rangárþings eystra og Skógræktar
ríkisins. - gar
Samkeppni Vina Þórsmerkur og Vegagerðarinnar um hönnun göngubrúar yfir Markarfljót lokið:
Horfa gegnum brúna níu metra yfir ánni
BRÚARHAFIÐ „Bil verður á milli borða
og eykur það á nánd ferðalanga við vatns-
fallið án þess að ógna öryggi þeirra,“
segja höfundar vinningstillögunnar.
TÖLVUR Hádegisfundur var haldinn
í Verkfræðingahúsinu að Engjateig
í Reykjavík í gær í tilefni af Evr-
ópsku forritunarvikunni sem fer
fram 11.–17. október. Hún hefur það
að markmiði að vekja áhuga og auka
skilning fólks og fyrirtækja á for-
ritun. Þessa viku fer fólk um alla
Evrópu á námskeið og viðburði til
að læra og kynnast faginu.
„Þetta var fyrst haldið erlendis
í fyrra. Þá tóku 26 ESB-ríki þátt,
þrjú hundruð viðburðir voru í boði
og tíu þúsund þátttakendur. Nú eru
þátttökuþjóðirnar orðnar 38 og við
tökum þátt í fyrsta sinn,“ segir Árdís
Ármannsdóttir, framkvæmdastjóri
Skema, en fyrirtækið er fulltrúi for-
ritunarvikunnar á Íslandi.
Árdís segir vikuna mikilvæga,
enda sé forritun að finna í nánast
öllu sem fólk horfir á í kringum sig.
„Allir samskiptamiðlarnir og tölv-
urnar. Stór hluti Íslendinga situr
fyrir framan tölvur allan daginn og
þær byggja á forritun.“
Hún bætir við að mikill skortur
sé á forriturum og ef fram heldur
sem horfir vantar í 900 þúsund störf
í Evrópu árið 2020. „Við þurfum að
kynna þetta fyrir börnunum sem
fyrst og það höfum við hjá Skema
verið að gera.“
- fb
Hádegisfundur var haldinn í gær í tilefni af Evrópsku forritunarvikunni:
Vilja auka skilning á forritun
ÁRDÍS ÁRMANNSDÓTTIR Hádegis-
fundurinn í gær gekk vel fyrir sig. Auka
þarf áhuga á forritun, að mati Árdísar
Ármannsdóttur.
M
YN
D
/EFLA VERKFRÆ
Ð
ISTO
FA - STU
D
IO
G
RAN
D
I
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum
Kringlan
588 2300
Nýjar vörur
vikulega
1.795
8.995
5.495
Opið til
21
í kvöld
Skipulagði smygl
innan úr fangelsinu
Umfangsmikil aðgerð lögreglu leiddi til handtöku fanga á Kvíabryggju. Lögreglan
lagði hald á stera, MDMA og peninga við húsleit vegna málsins.
KVÍABRYGGJA Maður var að afplána dóm á Kvíabryggu þegar hann var handtekinn vegna gruns um aðild að fíkniefnainnflutn-
ingi og dreifingu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
900.000
Líklegur skortur á forriturum
árið 2020.
Save the Children á Íslandi