Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 36
9. OKTÓBER 2014 FIMMTUDAGUR2 ● Geðhjálp Útgefandi: Geðhjálp | Umsjónarmaður auglýsinga: Atli Bergmann, atli.bergmann@365.is, s. 512 5457 | Ábyrgðarmaður: Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Afmælisdagur Geðhjálpar er ekki aðeins gleðidagur fyrir félaga í Geð- hjálp heldur allan almenning. Geðheilbrigði snertir alla, alla daga, allan ársins hring. Því er vel við hæfi að Geðhjálp bjóði almenningi að taka þátt í geðmaraþoni og þiggja sneið af afmælistertu í tilefni afmælisins á Blómatorgi Kringlunnar kl. 17 í dag. Geðhjálp hefur barist ötullega fyrir bættum aðstæðum og réttindum fólks með geðraskanir og geðfötlun og aðstandenda þeirra. Öflugt bar- áttufólk hefur lagst á árarnar og unnið sigra, stóra og smáa í þágu þessa hóps. Enn er þó langt í land með að baráttan hafi skilað tilætluðum ár- angri. Fólk með geðræna sjúkdóma stendur í skugga íslensks samfélags, á víða undir högg að sækja og mætir meiri fordómum og mismunun af hendi samborgara sinna en nokkur annar hópur í samfélaginu. Fordómar fela í sér að dæma einhvern fyrirfram án þess að hafa þekk- ingu eða getu til að setja sig í spor viðkomandi. Besta leiðin til að vinna gegn fordómum og mismunun er að leiða fólk úr ólíkum áttum saman. Með því að hlusta á sögur hvert annars færumst við nær hvert öðru og komumst fljótt að raun um að mun fleira sameinar okkar en sundrar. Í okkur bærist sama hjarta, sömu tilfinningar og þrár til hvers annars og lífsins, óháð ytri umbúnaði. Geðhjálp leiðir fram á sjónarsviðið verðuga fulltrúa fólks með reynslu af geðrænum erfiðleikum í Geðhjálparblaðinu. Ungu konurnar á forsíð- unni eru tilbúnar til að segja frá baráttu sinni við geðrænan vanda og vímuefnavanda í því skyni að leggjast á árarnar með sjálfum sér og bar- áttunni fyrir auknum skilningi og virðingu gagnvart fólki með geðrösk- un og geðfötlun. Þær segja sögu sína og kynna hugmyndir sínar um ár- angursríkt úrræði fyrir ungt fólk með tvíþættan vanda á málþingi Geð- hjálpar á Grand Hóteli þann 23. október næstkomandi. Að koma fram úr skugganum með slíkum hætti krefst bæði hugrekkis og baráttuvilja. Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn verður haldinn hátíðlegur á morgun, föstudaginn 10. október. Fyrirmyndir úr hópi fólks með geðklofa sýna hugrekki með því að segja sögu sína undir yfirskrift dagsins „Lifað með geðklofa“. Sögur þeirra eru í senn lýsandi fyrir baráttu einstaklinga og hópsins í heild eins og endurspeglast vel í frásögnum Steingríms Jónas- sonar og Katrínar Gróudóttur. Sjúkrasaga íslenskrar konu á miðri tutt- ugustu öldinni og batasaga Sveins Snorra Sveinssonar, formanns deildar Geðhjálpar á Austurlandi, sýna fram á stórstígar breytingar í meðhöndl- un fólks með geðklofa á stuttu tímabili í Íslandssögunni og áfram mætti telja. Við erum svo sannarlega á réttri leið þótt alltaf megi gera betur. Ekki má heldur gleyma því að gerð er ítarleg grein fyrir dagskrá Al- þjóðageðheilbrigðisdagsins 10. október í Geðhjálparblaðinu. Geðhjálp hvetur almenning til að taka þátt í dagskránni og raunar allri geðheil- brigðisvikunni fram til 15. október. Hægt er að nálgast frekari upplýsing- ar um dagskrána á www.10okt.com. Góða skemmtun og fróðlega lesningu, Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Innilega til hamingju með 35 ára afmæli Geðhjálpar í dag, 9. október hans því til þess þarf oft að segja óþægilega hluti. Um leið leggj- um við áherslu á að bera virðingu fyrir notendum og samstarfsaðil- um okkar eins og aðilum í öðrum félögum í stjórnkerfinu og atvinnu- lífinu. Síðast en ekki síst getum við ekki gegnt hlutverki okkar nema við séum fær um að setja okkur í spor annarra.“ 700 ERINDI Á ÁRSVÍSU Að sögn Hrannars snúa helstu dag- legu verkefni Geðhjálpar að ráð- gjöf, hagsmunagæslu og fræðslu. „Hingað berast mörg erindi á hverjum degi. Á fyrstu níu mán- uðum ársins bárust 506 erindi til félagsins í gegnum síma, tölvupóst og innlit, eða um 700 erindi á árs- grundvelli. Hér fá notendur og að- standendur persónulega ráðgjöf og stuðning til að leita til annarra úr- ræða innan kerfisins ókeypis og án skilyrða. Við hýsum einnig og styðj- um starf nokkurra sjálfshjálpar- hópa, þ.e. geðhvarfahóps, kvíða- hóps, tilveruhóps og batahóps.“ Mikilvægur þáttur í starfsemi Geðhjálpar snýr að hagsmunagæslu fyrir notendur. „Við styðjum fólk til að leita réttar síns, til dæmis til að skipta um lækni eða kvarta yfir þjónustu opinberra stofnana, annarra þjónustuaðila eða félaga. Þá aðstoðum við fólk við að skrifa bréf til viðkomandi aðila og förum fram á úrbætur. Síðan sinnum við almennri hagsmunagæslu í formi heimsókna til stofnana og fyrir- tækja þar sem við tölum við notend- ur og stjórnendur og förum fram á ýmis konar úrbætur. Við eigum líka sæti í fjölmörgum nefndum um stefnumótun á vegum hins opin- bera, t.d. um geðheilbrigðisstefnu, fjölskyldustefnu og vinnumarkaðs- stefnu. Svo skrifum við greinar, höldum fundi og málþing um mál- efni í brennidepli.“ ÞÁTTTAKA STUÐLAR AÐ AUKNUM SKILNINGI Eins og áður sagði verður haldið upp á afmæli Geðhjálpar með Geð- maraþoni og afmæliskaffi á Blóma- torgi Kringlunnar í dag. „Með því að bjóða fólki að taka þátt í af- mælinu viljum við stuðla að aukn- um skilningi og virðingu gagnvart fólki með geðröskun og geðfötlun í samfélaginu,“ segir Anna Gunn- hildur og útskýrir að maraþonið fari þannig fram að fólki sé boðið að stíga á svið á Blómatorgi Kringl- unnar og tala, syngja eða leika tón- list í fimmtán mínútur. Eina skil- yrðið sé að efnið tengist geðheil- brigði með einum eða öðrum hætti. „Fjöldi góðra gesta hefur skráð sig til leiks og ræður hver og einn eigin efnistökum. Dagskráin hefst kl. 10 þegar Kringlan opnar og stendur yfir til kl. 21. Hápunktur- inn verður svo kl. 17 í dag þegar borgarstjórinn, Dagur B. Eggerts- son, fyllir sínar fimmtán mínút- ur. Hrannar talar svo í kjölfarið og býður fólki að bragða á afmæliskök- unni á meðan Elísabet Eyþórsdótt- ir söngkona syngur nokkur lög. Við hvetjum fólk til að fagna áfangan- um með okkur og leggja baráttunni lið með því að taka þátt í maraþon- inu, hlusta á þátttakendur og þiggja kökubita.“ SUM NÁ ALDREI FÓTFESTU Geðhjálp stendur fyrir málþingi í samvinnu við félagið Olnboga- börn um börn og ungmenni með tvíþættan vanda á Grand Hóteli þann 23. október. Anna Gunnhild- ur segir málefnið brýnt. „Þessi dýrmæti hópur fer því miður sí- stækkandi í samfélaginu. Fyrir- liggjandi úrræði virðast ekki ná að mæta vandanum. Börnum og ungmennum er vísað frá stofn- un til stofnunar án þess að tekist hafi að leysa vanda þeirra. Sum ná aldrei fótfestu í lífinu og falla jafn- vel frá langt fyrir aldur fram eins og nýleg dæmi sanna.“ Hrannar bætir við að markmið ráðstefnunnar sé ekki hvað síst að koma að ólíkum sjónarhornum þeirra sem tengjast málaflokkn- um. „Þannig munu raddir ung- mennanna sjálfra heyrast, foreldra þeirra, starfsmanna heilbrigðis- og velferðarkerfisins, fangelsanna og ýmissa annarra aðila. Við erum sér- staklega spennt fyrir að heyra hvað ungmennin sjálf hafa að segja. Þau munu segja frá eigin reynslu og kynna til sögunnar úrræði sem þau telja að henti ungmennum í svipaðri stöðu og munu bera árangur.“ LITIÐ TIL FYRIRMYNDA Í ÖÐRUM HÓPUM Þrátt fyrir vaxandi vanda horfa Hrannar og Anna jákvæðum augum til framtíðar. Markmið Geðhjálpar sé að fólk nái að njóta sín í samfélaginu, sé virt og verði ekki fyrir fordómum. Að allir séu í raun metnir að verðleikum. „Fólk með geðræna sjúkdóma hefur setið eftir að svo mörgu leyti. Þessi hópur er enn í skugganum og verð- ur fyrir hvað mestri mismunun og fordómum af öllum hópum í samfé- laginu. Þótt við gefum okkur tíma til að fagna höldum við baráttunni ótrauð áfram því að mikið verk er óunnið. Við ætlum okkur stóra hluti í framtíðinni og höfum horft til fyrirmynda í störfum samtaka samkynhneigðra og SÁÁ, en bæði samtökin hafa lyft grettistaki varðandi viðhorf og ýmis úrræði. Markmiðið er að fólk með geðræna sjúkdóma geti lifað innihaldsríku lífi og verið virkir þátttakendur í samfélaginu á jafnréttisgrund- velli. Það er það sem við viljum, að alls konar fólk komi saman og myndi mannúðlegt og líflegt sam- félag.“ Hægt er að skrá sig í Geðhjálp á heimasíðu samtakanna www.ged- hjalp.is. Frekari upplýsingar um fé- lagið má nálgast á heimasíðunni og Facebook-síðunni Landssam- tökin Geðhjálp. Stjórn Geðhjálpar 2014 til 2015. F.v. Róbert Lagerman, Sveinn Rúnar Hauksson varaformaður, Hrannar Jónsson formaður, Sigrún Heiða Birgisdóttir, Þórður Ingþórsson gjaldkeri, Sylviane Lecoultre, Bergþór G. Böðvarsson og Maggý Hrönn Hermannsdóttir ritari. Á myndina vantar Héðinn Unnsteinsson og varamennina Gunnar Einarsson og Jón Tryggva Sveinsson. MYND/GEÐHJÁLP Birna Þórðardóttir stýrir göngunni „Rangan á Reykjavík” í sumar. MYND/GEÐHJÁLP Markmiðið er að fólk með geðræna sjúkdóma geti lifað innihaldsríku lífi og verið virkir þátttakend- ur í samfélaginu á jafnréttisgrundvelli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.