Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 58
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38 „Pabbi hefði orðið áttræður á þessu ári. Tónsmíðarnar hans hafa aldrei flogið hátt en nú verða flutt nokkur af hans helstu verkum. Þau spanna nánast allan tónsmíðaferil hans, allt frá hálfgerðum bernsku- brekum til þess síðasta sem hann gerði. Alltaf ný og ný stílbrigði sem taka mið af sögunni,“ segir Hákon Leifsson kórstjóri um tón- leika í Hörpu á sunnudag, helgaða minningu föður hans, Leifs Þórar- inssonar (1934-1998). Verkin verða flutt í tímaröð. Elst þeirra er Barnalagaflokkur- inn fyrir píanó sem Leifur skrifaði í Vínarborg árið 1954 fyrir Rögn- vald Sigurjónsson. Síðar var eftir- farandi setning höfð eftir Rögn- valdi: „Sérstaka ánægju hef ég af Barnalagaflokknum hans Leifs, enda er hann orðinn klassískur og hefur í sér lífsneista sem á eftir að endast lengi.“ Titill tónleikanna er eflaust sóttur í þau orð, Lífsneistar Leifs. Það er Caput hópurinn sem stendur fyrir þessum viðburði en Hákon stjórnar flutningnum að nokkru leyti. Hann kveðst þó aldrei hafa heyrt eitt verkið sem þar verður flutt, Klasar nefn- ist það. Hákon kallar það píanó- flipp. „Það hefur ekki verið flutt síðan árið 1967 þegar pabbi og Atli Heimir léku það saman í Ríkisút- varpinu en Valgerður Andrésdóttir sér um flutninginn núna.“ Afstæður voru samdar í New York árið 1960, fyrir fiðlu, píanó og selló, Hákon segir það stutt og spennandi verk sem geri feikna kröfur til flytjenda, þeir verða þau Auður Hafsteinsdóttir, Bryndís Halla Gylfadóttir og Snorri Sigfús Birgisson. Síðasta verkið á dagskránni er Grafskrift fyrir Bríeti, við ljóð Matthíasar Jochumsonar. Það var samið fyrir kvenraddir og hörpu og frumflutt við útför Bríetar Héðinsdóttur árið 1996 en aldrei verið flutt á tónleikum áður. Konur úr Kammerkór Grafarvogs- kirkju syngja það ásamt Elísabetu Waage. „Þau urðu dálítið samferða gegnum lífið pabbi og Bríet, voru saman í skóla og gott ef ekki Grænuborg. Svo vann pabbi oft í Þjóðleikhúsinu, hún var þar nátt- úrulega, þannig að þeirra vinfengi var margendurnýjað,“ lýsir Hákon. Hann getur þess líka að systir sín Alda Lóa sé að útbúa vef um föður þeirra og verið sé að rita allt höfundarverk hans til útgáfu. Lífsneistar Leifs verða í Kalda- lónssalnum á sunnudaginn klukk- an 17.15 gun@frettabladid.is Lífsneistar Leifs í Kaldalónssal Nokkur meistaraverk Leifs Þórarinssonar tónskálds hljóma í Hörpu á sunnudag. Caput hópurinn stendur að tónleikunum og Hákon Leifsson stjórnar þeim. Á ÆFINGU Hákon með vöskum hópi hljóðfæraleikara sem ætla að flytja verk föður hans á sunnudaginn. MYND/VILHELM Auðvitað er tilfinningin mjög góð, hvað viltu eiginlega að ég segi?“ spyr Oddný Eir Ævarsdóttir spurð hvernig henni líði eftir að hafa fengið þau tíðindi að hún sé ein þeirra sem hljóta Bókmenntaverð- laun Evrópusambandsins í ár. „Mér þykir vænt um að fá þessi verðlaun fyrir Jarðnæði, sérstaklega þar sem tilgangur verðlaunanna er meðal annars að auðvelda þýðing- ar á viðkomandi verki. Bókin hefur enn ekki verið þýdd á önnur tungu- mál en færeysku og sú þýðing er enn í vinnslu.“ Jarðnæði kom út hjá Bjarti árið 2011 og hlaut Fjöruverðlaunin 2012 auk þess að vera tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna það ár og hljóta einróma lof lesenda og gagnrýnenda. Í tilkynningu um ákvörðun dómnefnda kemur fram að verðlaununum er ætlað að veita nýjustu og bestu upprennandi rit- höfundunum í Evrópu viðurkenn- ingu. „Ég held líka að hugsunin sé sú að draga fram jaðarsvæðin og koma bókmenntum sem ekki myndu spjara sig á hinum harða engilsaxneska markaði í sviðsljós- ið,“ segir Oddný Eir. „Mér finnst það fín hugsjón.“ Oddný Eir sendir frá sér skáld- sögu í haust, Ástarmeistarann, sem hún segist vera nýbúin að senda í prentun. „Það er ástarsaga, sem þykist ekki hafa neinar sjálfsævi- sögulegar skírskotanir eins og Jarðnæði.“ Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn sem fram fer í Concert Noble-höllinni í Brussel hinn 18. nóvember og Oddný Eir ætlar að sjálfsögðu að mæta þar til að veita þeim viðtöku. „Já, ég ætla bara að skvera mér,“ segir hún hlæjandi. „Ég er reyndar búin að vita af þessu í þó nokkurn tíma en það var svo rosalegt leyndar- mál að maður var eiginlega búinn að gleyma því sjálfur. En vonandi verður þetta til þess að greiða leið Jarðnæðis inn á Evrópumarkað. Maður hefur kraftinn í að skrifa bækurnar en ekki mikinn kraft í að prómótera þær þannig að þetta er rosa góð hjálp við það.“ Alls hljóta þrettán höfundar verðlaunin í ár, auk Oddnýjar, þau Ben Blushi frá Albaníu, Milen Rusk ov frá Búlgaríu, Jan Němec frá Tékklandi, Makis Tsitas frá Grikklandi, Janis Jonevs frá Lett- landi, Armin Öhri frá Liechten- stein, Pierre J. Mejlak frá Möltu, Ognjen Spahić frá Svartfjallalandi, Marente de Moor frá Hollandi, Uglješa Šajtinac frá Serbíu, Birgül Oğuz frá Tyrklandi og Evie Wyld frá Bretlandi. Sérhverjum vinn- ingshafa áskotnast 5.000 evrur í verðlaun. fridrikab@frettabladid.is Var nærri búin að gleyma þessu sjálf Oddný Eir Ævarsdóttir er ein þrettán rithöfunda frá ýmsum þjóðum sem hljóta Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins í ár. Verðlaunin hlýtur hún fyrir hina rómuðu bók Jarðnæði sem út kom árið 2011 og hlaut Fjöruverðlaunin 2012. ODDNÝ EIR „Maður hefur kraftinn í að skrifa bækurnar en ekki mikinn kraft í að prómótera þær.“ MYND/BJARTUR Allar upplýsingar á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda. Net fang: f ibut@ f ibut . is Til bókaútgefenda: Bókatíðindi 2014 Skráning nýrra bóka í Bókatíðindi 2014 er hafin. Útgefendur eru hvattir til að skrá bækur sínar sem allra fyrst en lokaskil vegna kynninga og auglýsinga er 15. október. Bókatíðindum verður sem fyrr dreift á öll heimili á Íslandi. Frestur til að tilkynna bækur vegna Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2014 er til 15. október nk. www.f ibut . is Íslensku bókmenntaverðlaunin ALÞJÓÐLEG BARNA- OG UNGLINGABÓKMENNTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 9.–12. OKTÓBER 2014 WWW.MYRIN.IS WWW.NORRAENAHUSID.IS Varúlfar í Vatnsmýrinni Hrollvekjukvöld me ð Stefáni Mána, höfundi bókarinnar Úlfshjarta Fim 9. október kl. 20:00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.