Fréttablaðið - 09.10.2014, Blaðsíða 60
9. október 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
FIMMTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
17.30 Kunnir djassgeggjarar bjóða
gestum og gangandi á ókeypis tónleika
í Bókasafni Seltjarnarness í dag. Fram
koma þeir Guðjón S. Þorláksson á
bassa, Jakob Hagedorn Olsen á gítar
og Birkir Freyr Matthíasson á trompet.
Þeir flytja ljúflingslög eftir meistara á
borð við Herbie Hancock, Keith Jarrett
og Miles Davis.
19.30 Djasspíanistinn Sunna Gunn-
laugs er nýkomin frá Berlín þar sem
hún hélt dúó-tónleika með þýska
píanistanum Julia Hülsmann fyrir fullu
húsi. Að þessu sinni tekur hún á móti
hollenska bassaklarinettuleikaranum
Maarten Ornstein og munu þau halda
þrenna tónleika hér á landi í vikunni.
Þau spila í Bergi í Reykjanesbæ í kvöld.
20.00 Kristjana Stefánsdóttir söngkona
og Kjartan Valdemarsson píanóleikari
standa fyrir fernum spunatónleikum
í Hannesarholti í vetur. Þau fá til
sín góða gesti sem munu leika með
þeim á tónleikunum. Meðal viðfangs-
efna verða íslensk sönglög, amerískir
standardar, Bítlarnir og svo þekkt rokk-
og popp lög. Fyrstu tónleikarnir verða
í kvöld og verður viðfangsefni þeirra
amerískir standardar.
20.00 Sigga Beinteins, Guðrún Gunn-
arsdóttir og Jógvan Hansen spila í
Salnum í Hamraborg í kvöld. Karl
Olgeirsson píanóleikari, Róbert
Þórhallsson bassaleikari og Matthías
Stefánsson gítar- og fiðluleikari verða
þeim innan handar. Aðgangseyrir er
3.900 krónur.
20.00 Tilraunatónlistarhópurinn
S.L.Á.T.U.R. heldur upp á Sláturtíð í
Listasafni Reykjavíkur. Kl. 20.00 hefst
hátíðin.
20.00 Roland Hartwell Jr. ætlar að spila
60’s, 70’s & 80’s tónlist á Hlemmur
Square í kvöld ásamt óvæntri annarri
gleði. Hann ábyrgist stuð & stemningu
en líkt og ávallt er gítarinn við höndina.
20.30 Tónlistarkonurnar Rebekka Sif
og Silja Rós munu flytja sitt frum-
samda efni á Lofti Hosteli í kvöld.
Báðar ætla að styðjast við tónlistar-
menn og koma einnig fram Aron Andri
Magnússon á gítar og Grétar Örn Axels-
son á gítar. Ókeypis inn.
20.30 Hljómsveitin Katanes heldur
tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da í kvöld.
Magnús R. Einarsson mun hefja tón-
leikana með dagskrá helgaðri minn-
ingu Johns Lennon, sem fæddist
þennan dag. 1.000 krónur inn.
21.00 Trúbadorarnir Alexander & Guð-
mann spila enn einu sinni á English
Pub í kvöld.
21.00 Soffía Björg og Pétur Ben munu
skipta með sér fimmtudagskvöldinu
9. október á Húrra næstkomandi. Pétur
Ben byrjar kvöldið með akústískt sett
og gefur tóninn fyrir Soffía Björg Band
sem tekur svo við, en hljómsveitina
skipa Örn Eldjárn, Ingibjörg Elsa Turchi,
Þorvaldur Ingveldarson og Tómas Jóns-
son. Aðgangseyrir 2.000 kr.
21.00 Íslenska sveitin Audio Nation
spilar Rock/Pop/Salsa/Grunge/Blues á
Café Rósenberg í kvöld.
21.00 Limited Escape troða upp á
Dillon í kvöld.
21.00 Varsjárbandalagið sem spilar
balkanska tónlist með eldfjallaáhrifum
treður upp á ókeypis tónleikum á Kexi
Hosteli í kvöld.
09. OKTÓBER
500 g kjöthakki
3 dl mjólk
Leikkonan Courteney Cox er sögð
vera afar spennt fyrir því að gera
þætti með vinkonum sínum úr
Friends, þeim Jennifer Aniston
og Lisu Kudrow. Courteney
er sögð vera að vinna að nýrri
þáttaröð þar sem vinkonurnar
færu allar með hlutverk. Vinkon-
urnar voru gestir í spjallþætti
Jimmys Kimmel í síðasta mánuði
þar sem þær töluðu um hversu
gaman það hefði verið að leika
saman í Friends. Heimildarmað-
ur Heat Magazine sagði í samtali
við tímaritið að Courteney vildi
gera prufuþátt þar sem þær lékju
miðaldra vinkonur sem ættu það
sameiginlegt að eiga erfitt með
að eignast börn. Þær eru sagð-
ar hafa farið saman út að borða
stuttu eftir þáttinn þar sem þær
hafi rætt frekara samstarf og séu
allar spenntar fyrir því að vinna
saman aftur.
Saman á ný?
VINKONUR Leikkonurnar eru sagðar
vilja vinna saman á ný.
Stjörnudómarinn Simon Cowell
hefur verið þekktur fyrir að vera
óhræddur við að tjá skoðanir sínar
í gegnum tíðina og ekki endi-
lega látið skammir annarra á sig
fá. Það er þó ein manneskja sem
hann hlustar alltaf á og hlýðir, sú
er móðir hans, hin 88 ára gamla
Julie Cowell. Hann segir atvik
frá unglingsárunum enn sitja í
honum. Þegar Simon var 15 ára
sagði mamma hans fyrir framan
kærustuna hans að hann ætti að
hætta að vera alltaf að sýna sig.
„Ég gat ekki svarað henni,“ segir
hann í viðtali á útvarps-
stöðinni BBC 1. „Það
versta sem hún getur
sagt við mig er að ég
eigi að hætta að sýna
mig þegar ég er með
vini í kringum mig,“
sagði Simon einn-
ig og bætti við
hlæjandi:
„Hún
elsk-
ar enn
þá að
skamma
mig.“
Skammaður
af mömmu
SIMON COWELL